Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Síða 2
Vikublað 16.–18. júní 20152 Fréttir Lífrænt Valið besta heilsuefnið Fæst í apótekum, Hagkaup, Krónunni, Grænni heilsu, Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup. www.thebeautyshortlist.com Best Health Supplement - Overall Wellbeing Hreinsar líkamann, bætir andadrátt og líkamslykt, fegrar og frískar húðina Bætir meltingu, gerir líkamann basískan, kemur á réttu pH gildi Yr 100 lífræn næringarefni sem gefa orku, einbeitingu og vellíðan Spirulina, Chlorella & Barleygrass Lifestream framkvæmir þrefaldar næringarprófanir; við uppskeru, eftir framleiðslu og að lokum með vottun frá óháðri prófunarstofu. Dagleg græn upplyfting. Heilnæmt fæði, hámarks upptaka og nýting á næringarefnum. 120 hylki. „Þetta er alveg ótrúlegur fjöldi“ n Níu þúsund Íslendingar skrafla á netinu n Tómstundaverkefni Vilhjálms Þorsteinssonar n Verður alltaf ókeypis Þ að fara fram rétt um 2.000 viðureignir á sólarhring; meira um helgar en minna í miðri viku,“ segir Vilhjálm- ur Þorsteinsson, forritari og höfundur Netskrafls. Í liðinni viku skráði níu þúsundasti notandinn sig til leiks á vefsíðunni netskrafl.is. Vilhjálmur segir í samtali við DV að hann hafi, þegar hann setti vef- inn í loftið um áramót, ekki órað fyrir viðtökunum. Hann hafi gert sér vonir um að tvö til þrjú hund- ruð skraflarar myndu nýta sér netskraflið. „Þetta er alveg ótrúleg- ur fjöldi.“ Með góðri samvisku má fullyrða að skraflæði hafi runnið á Íslendinga. Sex milljón orð Netskrafl er orðaleikur sem byggist á borðspilinu Scrabble, sem margir þekkja. Leikreglurnar á netskrafl. is eru eins og í hefðbundnu borð- skrafli. Þau orð eru leyfð sem fyrir- finnast í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls auk tveggja stafa orða sem eru á lista sem Skraflfélag Ís- lands hefur sett saman. Um sex milljón orð og beygingarmyndir eru leyfðar. Viðmótið og virknin í Netskrafli ber með sér að mikil vinna liggi að baki. Þrátt fyrir það hefur Vilhjálm- ur ekkert innheimt fyrir notkun- ina. Hann segir aðspurður að það standi heldur ekki til. Til greina komi – á einhverjum tímapunkti – að fá stuðningsaðila að verkefninu, auglýsanda, en að einnig komi til álita að opna á frjáls framlög. Hann vilji hins vegar að öllum standi til boða að spila ókeypis. Kvarta og hreykja sér á Facebook Á Facebook mynda notendur Netskrafls samnefndan hóp þar sem fólk skiptist á skoðunum; kvartar eða hreykir sér, eða kem- ur með ábendingar um hvað bet- ur megi fara. Vilhjálmur segist að- spurður hafa gaman af að fylgjast með umræðum á þeim vettvangi og segir að um tíundi hver spilari sé þar inni. Hann njóti samskiptanna við notendur. „Kerfið er orðið ágætt en ég held lista af ábendingum um það sem betur mætti fara.“ Spurður hvort áreitið sé mik- ið segir hann svo ekki vera. Það sé í raun furðu lítið. Núorðið sé vinn- an ekki mikil en einhver þó flesta daga. Hann vinni til dæmis að því að auðvelda fólki að leita uppi and- stæðinga sem eru svipaðir að styrk- leika. Það sé næsta breyting sem notendur muni verða varir við. Stigakeppni Netskrafl notast við ELO-stiga- kerfi, eins og þekkist í skák. Einu sinni á sólarhring uppfærast stigin og er baráttan á toppnum stund- um hörð. Gísli Ásgeirsson þýðandi er, þegar þetta er skrifað, efstur níu þúsund spilara. Vel fer á því. Gísli er ríkjandi Íslandsmeistari í Skrafli. Rætt er við hann hér til hliðar. Vilhjálmur skraflar sjálfur og er þegar þetta er skrifað í 16. sæti á lista yfir 100 bestu spilara landsins. Hann segist hafa gaman að leikn- um sjálfur en að hann spili þó ekki mikið í samanburði við aðra. Gat ekki haldið uppi samræð- um um forritun En hvernig kom það til að hann réðist í þetta verkefni? Vilhjálmur segist vera hugbúnaðarmaður og forritari frá gamalli tíð en hafi lítið fengist við það á umliðnum árum. Hann segir að hann hafi fundið það á dóttur sinni, sem sé nýútskrifað- ur tölvunarfræðingur, að þekkingu hans á nýjustu tækni var ábóta- vant. „Mér fannst ég ófær um að halda uppi gáfulegum samræðum,“ segir hann glettinn og bætir við að forritun hafi gjörbreyst. Hon- um fannst hann þurfa að uppfæra þekkingu sína og naut við verkefnið aðstoðar dóttur sinnar. Hann hafi ákveðið að skrifa Netskrafl eftir að hafa sjálfur not- að forvera Netskraflsins, ordaleik- ur.appspot.com, sem Norðmaður nokkur bjó til, staðfærði fyrir ís- lensku og sá um. „Allmargir kunn- ingjar mínir voru þar og þetta var skemmtilegt. Viðmótið var frum- stætt og ýmislegt sem ég hefði vilj- að gera öðruvísi. Ég ákvað að prófa þetta og læra um leið á Python-for- ritunarmálið.“ n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is „Kerfið er orðið ágætt en ég held lista af ábendingum um það sem betur mætti fara. Bjó til vinsælt forrit Vilhjálm óraði ekki fyrir aðsókninni að netskrafl.is. Svona verður veðrið 17. júní Veður fer hlýnandi H öfuðborgarbúar fengu að upplifa þriðja sólardaginn í röð á mánudag en þegar líða tók á daginn snerist vindátt í suðvestanátt og dró fyrir sólu. Almennt virðist veður fara hlýn- andi næstu daga en á bloggi sínu leið- ir Trausti Jónsson veðurfræðingur lík- ur að því að veðrið fari einhvers staðar upp í 20 stig á landinu í vikunni. Í heildina skiptast á skin og skúr- ir í vikunni. Þjóðhátíðarveðrið verð- ur ekkert sérstakt. Á hádegi 17. júní verður til dæmis hiti undir 10 stig- um í Reykjavík en lítið eitt hærri fyr- ir norðan og austan. Skúrir verða með köflum á þjóðhátíðardaginn en ekki mikil rigning. Er nær dregur helgi fer að hlýna aftur og má til dæmis búast við sól og 12 stiga hita í Reykjavík á föstudaginn, eða svipuðu veðri og var um nýliðna helgi. n agustb@dv.is Skin og skúrir til skiptis Er nær dregur helgi fer að hlýna aftur, en 17. júní verður líklega rigning. Mynd Eyþór ÁrnaSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.