Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Síða 4
4 Fréttir Vikublað 16.–18. júní 2015
Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
NÝ
TT PRENTAÐU ÞITT EIGIÐ
IPHONE 4/5 HULSTUR
Aðeins 1.690 kr. stk.
Versta geitungavorið
á Íslandi frá upphafi
Erling Ólafsson skordýrafræðingur hefur aldrei kynnst öðru eins ástandi og býst við færri geitungum í sumar
É
g hef aldrei upplifað eins
aumt geitungavor,“ seg-
ir Erling Ólafsson, skor-
dýrafræðingur hjá Nátt-
úrufræðistofnun Íslands.
Geitungarnir hafa ekki far-
ið eins illa út úr vorinu síðan þeir
náðu fótfestu hér á landi um miðj-
an áttunda áratuginn, eða fyrir um
fjörutíu árum síðan. Vorið var eitt
það kaldasta sem sögur fara af og
til að mynda var maímánuður í
Reykjavík sá kaldasti í yfir þrjátíu
ár.
Býst við færri geitungum í
sumar
Erling þykir líklegt að mun færri
geitungar verði á landinu í sumar
en vill samt ekki fullyrða neitt um
það.
Eins og hann átti von á eru bæði
holugeitungar og trjágeitungar
komnir á stjá. Óvíst er samt hvern-
ig þeir muni spjara sig. „Þetta fer
alla vega mjög hægt og varlega af
stað út af þessu kalda vori,“ segir
hann.
Þurfa þrjá og hálfan mánuð
„Maður veit ekkert hvað verður.
Þetta er ekkert vonlaust hjá þeim,
þótt þeir byrji svona illa. En af því
að þeir fara svona seint af stað þá
býst ég við því að búin verði fálið-
aðri og að einhverjir gætu lent í
vanda við að ljúka búskapnum, því
núna þurfa holugeitungar þrjá og
hálfan mánuð til þess að framleiða
nýjar drottningar,“ útskýrir Erling,
sem býst við því að geitungarnir
eigi mest eftir að verða áberandi
upp úr 10. júlí.
Hann segir að fari svo að
holugeitungurinn nái ekki að ljúka
búskapnum geti það haft veruleg
áhrif fram á næsta ár. „En trjágeit-
ungurinn þarf ekki svona langan
tíma. Það eru bara tveir og hálf-
ur mánuður sem hann þarf til að
framleiða nýjar drottningar. Ég hef
ekki áhyggjur af honum. Hann lif-
ir allt af.“
Holugeitungurinn gæti horfið
Að sögn Erlings er trjágeitungur- inn búinn að festa sig í sessi úti
um allt land. Í höfuðborginni og
nágrenni er holugeitungurinn aft-
ur á móti mest áberandi. „Hann
er að nálgast okkur en er ekki eins
traustur í sessi og hinn. Hann
vantar þennan stöðugleika,“ seg-
ir hann og bendir á að holugeit-
ungurinn hafi átt í erfiðleikum í
Svíþjóð í fyrrasumar. „Það er eitt-
hvað að angra hann, meira en á
Íslandsvísu. Það verður væntan-
lega minna af honum í sumar út af
veðrinu og hann gæti horfið héð-
an, það er ekki útilokað.“
Tvær tegundir hafa nú þegar
horfið af landinu, húsageitungur
og roðageitungur. Sá fyrrnefndi,
sem er suðrænni, átti sitt blóma-
skeið á tíunda áratugnum.
„Kannski endum við bara með
eina tegund, trjágeitung.“
Fiðrildi eiga mjög bágt
Vegna hins kalda vors hefur lífrík-
ið verið tveimur vikum lengur að
taka við sér en venjulega. „Fiðrildi
eiga til dæmis mjög bágt. Ég hef
verið með sérstaka fiðrildavökt-
un síðan 1995 og ég man ekki eftir
svona aumu fiðrildavori á þessum
tuttugu árum,“ segir Erling. n
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
„Maður veit ekk-
ert hvað verður.
Þetta er ekkert vonlaust
hjá þeim, þótt þeir byrji
svona illa
Erling Ólafsson
Hið kalda vor gæti
haft veruleg áhrif
fram á næsta ár hvað
geitungastofninn
varðar.
Geitungur
Búast má við
færri geitungum í
sumar vegna hins
kalda vors.
Mynd Kristinn MaGnússon
Segja birgja velta hækk-
unum út í vöruverð
Mjög eldfimir tímar þegar kemur að verðlagsmálum
A
ð undanförnu hefur borið
talsvert á því að birgjar hafi
hækkað verð á vörum sín-
um í heildsölu segja Neyt-
endasamtökin. Samtökin segjast hafa
fengið þær upplýsingar að hækkan-
ir erlendis og hækkanir á almennum
kostnaði, þar á meðal vegna nýgerðra
kjarasamninga, séu ástæður hækk-
unarinnar.
Neytendasamtökin hafa því
ákveðið að birta lista yfir verðhækkan-
ir sem hafa átt sér stað eftir 1. maí sl.
og má nálgast þær á vef samtakanna.
Ef samtökunum berast upplýsingar
um fleiri hækkanir munu þau bæta
þeim á þennan lista.
„Neytendasamtökin minna á að
nú eru mjög eldfimir tímar þegar
kemur að verðlagsmálum. Ljóst er að
nýgerðir kjarasamningar eru kostnað-
arauki fyrir fyrirtækin. Það er þó ekki
sjálfgefið að þau þurfi að velta þess-
um kostnaðarauka út í verðlagið. Þess
í stað beina Neytendasamtökin því til
fyrirtækja að þau leiti leiða til að hag-
ræða sem mest svo ekki þurfi að koma
til frekari hækkana á verðlagi,“ segir í
tilkynningu frá samtökunum. n
Hættir eftir
áratuga starf
Árið 1961 hófu yfir 200 krakk-
ar á aldrinum sjö til átta ára nám
við Öldutúnsskóla. Var Haukur
Helgason þá ráðinn skólastjóri
og með honum nokkrir kennarar.
Einn þeirra var Sigríður Þorgeirs-
dóttir, eða Stella eins og hún er
jafnan kölluð. Stella hefur kennt í
rúmlega 50 ár við Öldutúnsskóla
en síðasti vinnudagur hennar var
miðvikudaginn 10. júní síðast-
liðinn. Í tilefni af því tók Stella við
þakklætisvotti frá samstarfsfólki
sínu þar sem henni var þakkað
fyrir bæði gott og gefandi starf í
gegnum árin.
Mynd öldutúnssKÓli
Vildu 40–50
prósenta
hækkun
Ríkið bauð hjúkrunarfræðing-
um 20 prósenta launahækkun á
næstu árum en kröfur þeirra voru
upp á 40 til 50 prósenta hækk-
un. Þetta kom fram í svari Bjarna
Benediktssonar, fjármála- og
efnahagsráðherra, við óundirbú-
inni fyrirspurn Árna Páls Árna-
sonar, formanns Samfylkingar-
innar, um kjaradeilurnar á Alþingi
í gær. „Í þessu tiltekna máli, ef
menn vilja vita það, þá hefur rík-
ið boðið um það bil 20 prósenta
hækkun á næstu árum til hjúkr-
unarfræðinga. Ég get fullyrt það
að laun hjúkrunarfræðinga á
Norðurlöndunum eru ekki að fara
að hækka um þær fjárhæðir en
það er langt í land með að jafna
kjörin en það gerist ekki í einum
samningi,“ sagði Bjarni.