Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Page 26
26 Lífsstíll
S
æl, Ragga, og takk fyrir pistl
ana þína
Ég hef verið að herða
mig upp í að senda þér línu
og lét loksins verða af því.
Þannig er mál með vexti að fyrir
áratug hitti ég konu á dansleik og
þar spjölluðum við smá stund og
síðan skildu leiðir.
Þremur árum síðar hittumst við
næst, þá á vinnustað mínum. Sam
skiptin þá voru öll á faglegum nót
um og snerust um starfið mitt.
Nokkrum dögum seinna sendi hún
mér póst og tjáði mér hrifningu sína,
sem hafði varað síðan við hittumst
fyrst árið 2005. Ég hafði ekki þor
að að vona neitt því aldursmunur
inn á okkur er mikill,
ég er 13 árum eldri
en hún. Upp úr
þessu hittumst
við og hófum bréfaskipti í nokkurn
tíma, þangað til að eitthvað gerðist.
Það skal tekið fram að hún á eitt
barn sem hún hafið alið ein upp í
tíu ár og hafði ekki, að hennar sögn,
verið með neinum öðrum manni
eftir stutt samband við barnsföður
inn.
Hún flutti inn til mín skömmu
síðar og allt virtist ganga mjög vel til
að byrja með. Það fór reyndar ekki
vel í mig að hún dvaldi öllum stund
um inni í herbergi hjá barni sínu og
ég hékk einn inni í stofu. Við eign
uðumst svo barn saman og höfum
staðið saman í uppeldinu. Kynlífið
framan af var stórkostlegt og hún
fékk sína fyrstu fullnægingu með
mér, að hennar sögn.
Vandinn er að hún þarf að vera
ofan á til að fá fullnægingu, og mér
er farið að finnast það einhliða og
leiðigjarnt. Ljósin þurfa alltaf að
vera slökkt og hún er ekki
fyrir að vera nakin, nema
í rúminu.
Leiðir skildu fyrir
nokkru síðan en við
héldum góðu sam
bandi vegna barnsins
okkar. Mér leiddist
að hanga einn inni
í stofu og kynlíf
ið var af skornum
skammti að mínu
mati. Ég tel mig
þurfa kynlíf tvisvar
í viku hið minnsta.
Ári síðar spurði ég
hana hvort hún
hefði áhuga á kyn
lífi með mér og nú
hittumst við í myrkri á nokkurra
mánaða fresti. Hún ákveður hvenær
við hittumst með nokkurra daga fyr
irvara.
Nú langar mig að leita til þín og
fá ráð um hvað ég eigi að gera. Ég tel
mig þurfa meiri ástaratlot og sam
farir.
Kær kveðja, Ragnar ráðalausi
Kæri Ragnar
Þvílíkt hörmungarsamband er
þetta sem þú lýsir. Eftir lestur á bréfi
þínu finnst mér eins og konan hafi
kannski verið í húsnæðisvanda og
látið sig hafa að sænga hjá þér endr
um og eins í skiptum fyrir herbergi.
Ég veit að þetta hljómar kuldalega,
og að sjálfsögðu veit ég lítið um aðr
ar hliðar málsins en þær sem þú
reifar í alllöngu bréfi þínu, en þetta
hljómar skelfilega og ég er viss um
að þér hefur ekki liðið vel í þessum
aðstæðum. Að því leyti áttu samúð
mína.
Hins vegar finnst mér ómaklegt
að þú kvartir yfir stellingunni sem
konunni hentar best til að fá full
nægingu. Ég heyri stundum svona
tal hjá körlum og verð alltaf jafn
pirruð. Ef karlmaður þyrfti að standa
á öðrum fæti og drekka smúþí til að
fá það mundi hann sko ekki hika við
að uppfylla þau skilyrði í hvert sinn
– og ástkonur hans mundu líklega
ekki kippa sér upp við það. Þetta
er bara frekja í körlum og þeir ættu
frekar að samgleðjast ástkonum sín
um og fagna fullnægingum þeirra,
sama hvaða skilyrði þarf að uppfylla
til að þær verði að veruleika.
Svo viltu meira kynlíf, kæri vin
ur. Það er greinilega ekki í boði með
barnsmóður þinni – kannski hefur
hún almennt lítinn áhuga á kynlífi og
kannski hefur hún einfaldlega lítinn
áhuga á kynlífi með ÞÉR og mögu
lega er hún búin að finna sér annan
ástmann. Þið eruð ekki skuldbundin
hvort öðru og því sé ég ekkert því til
fyrirstöðu að þú farir á fjörurnar við
annað kvenfólk í þessum tilgangi.
Hættu að þráhugsa um þessa konu
og hennar meintu galla og beindu
orkunni í annan farveg. Ég vona að
þú finnir hamingjuna og kynlíf sem
nægir. Bestu kveðjur, Ragga n
Vikublað 16.–18. júní 2015
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Föst sölulaun
Sölulaun eigna
yfir 60 milljónum
aðeins 1% með vsk
upp að 60 milljónum
299.900.- með vsk
VantaR – VantaR
Vegna mikillar sölu vantar
allar stærðir eigna á skrá.
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is
Hún fær það bara ofan á
n Karlmaður kvartar n Fær ekki nógu mikið kynlíf n Hvað er til ráða?„Vandinn er að hún
þarf að vera ofan
á til að fá fullnægingu,
og mér er farið að finn-
ast það einhliða og leiði-
gjarnt.
Leiðir skildu Ragnar spurði konuna ári eftir skilnað hvort hún vildi stunda kynlíf með honum.
Ragnar er
ósáttur Hann fílar
ekki hvernig hún fær
fullnægingu og hann
vill meira kynlíf.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Íslenskir limir
Taktu þátt í stóru typpakönnun Kynlífspressunnar
N
ýlega var birt alþjóðleg rann
sókn þar sem yfir 15.000 karl
menn fórnuðu sér í þágu vís
indanna með því að láta mæla
lengd og ummál lima sinna. Reyndar
var um að ræða greiningu á 20 rann
sóknum þar sem limir höfðu verið
mældir á sama hátt. Limirnir voru
mældir, af heilbrigðisstarfsmanni,
bæði í slökun og reisn og kom í ljós
að meðallimurinn á heimsvísu er
13,12 sentímetra langur og 11,66
sentímetrar að ummáli, en í slakri
stöðu 9,16 að lengd og 9,31 að um
máli.
Rannsakendur notuðu niður
stöðurnar til að búa til graf sem sýn
ir stærðardreifingu lima og staðalfrá
vik, en von þeirra er að gögnin geti
gagnast í meðferð til hjálpar karl
mönnum sem þjást af reðurkvíða.
Áhyggjur af stærð lims geta haft nei
kvæð áhrif á lífsgæði karlmanna
en rannsakendurnir telja líklegt að
stærðargrafið geti hjálpað í meðferð
þeirra sem þjást.
Greiningardeild Kynlífspressunn
ar hefur af þessu tilefni sett af stað
könnun meðal íslenskra karlmanna
á lengd og gildleika getnaðarlima
þeirra. Einnig þótti greiningar
deildinni forvitnilegt að kanna hvort
tengsl séu milli menntunar og typpa
stærðar, og sömuleiðis hvort tengsl
séu við búsetu. Skyldu gildir limir
til dæmis hafa safnast saman í Mos
fellsbæ? Athugið að fylgja nákvæm
lega leiðbeiningum um mælingar,
því ekki er boðið upp á aðstoð heil
brigðisstarfsmanns að svo stöddu.
Hægt er að taka þátt með því að
heimsækja Kynlífspressuna á www.
pressan.is/raggaeiriks. Ekki er hægt
að rekja svör til einstaklinga. n
Spáð í stærð Margir karlmenn hafa
talsverðar áhyggjur af stærð tólsins.