Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2015, Page 36
36 Fólk Vikublað 16.–18. júní 2015
Plankaparket
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Þýsk gæði!
Átta sjóðandi heit pör
Sumir eru bara af öðru kalíberi. Þegar heitustu
stjörnur Hollywood finna sér kærasta eða kærustu
vekur það alheimsathygli. Hér eru nokkur af kyn-
þokkafyllstu pörum í heimi.
Tróna á toppnum Hasarmyndahetjan Jason Statham er alltaf
rosalegur og Rosie Hungtington-Whitely er ein fallegasta kona í heimi. Ótrúlega flott par.
Löðrandi
kynþokki
Leikkonan Amber
Heard er 23 árum
yngri en eiginmað-
urinn, Johnny Depp.
Hvort í sínu lagi toppa
þau flesta lista yfir
kynþokkafyllstu
stjörnur Hollywood
og saman eiga þau
alltaf heima á listum
yfir heitustu pörin.
Einhverjar sögusagnir
herma þó að parið lifi
hvort sínu lífinu og
að hjónabandið sé
aðeins til málamynda
en við spyrjum að
leikslokum.
Sæt
saman
Leikarahjónin
Ashton Kutcher
og Mila Kunis
eignuðust
nýlega sitt
fyrsta barn.
Hjónin
kynntust fyrst í
þáttunum
That' 70 Show
en fóru ekki að
vera saman fyrr
en löngu
seinna.
Engin spurning Rokkstjarna og ofurfyrirsæta komast sjálfkrafa á svona
lista. Adam Levin, söngvari Maroon 5 og dómari í The Voice, er kvæntur hinni 24 ára Victoriu
Secret-fyrirsætu Behati Prinsloo.
Umdeilt samband
Íþróttastjarnan Russell Wilson úr Seattle
Seahawks er nýr kærasti söngkonunnar
Ciara. Russell skildi nýlega við æskuástina
sína og hefur fengið skammir í hattinn frá
slúðurpressunni fyrir hvað hann var snöggur
að finna sér nýja konu.
Fallega Scarlett
Einhvern veginn tókst blaðamanninum
Romain Dauriac að vinna hjarta Scarlett
Johansson. Leikkonan situr alltaf í efstu
sætum yfir heitustu konur Hollywood og
fær sæti á lista yfir heitustu pörin sama hver
kærasti hennar er.
Tónlist og fótbolti
Kólumbíska söngstjarnan Shakira og
knattspyrnugoðið Gerard Pique eru
hrikalega flott hjón.
Nýtrúlofuð
Leikkonan Charlize
Theron og leikarinn Sean
Penn trúlofuðu sig á
dögunum. Parið á
ýmislegt sameiginlegt
eins og leiklistina og
ástríðu gagnvart
hjálparstarfi.