Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 6
6 Fréttir V ið erum hér í mikilli vinnu og erum hvergi nærri hætt. Viðfangsefnið er óendan- legt og aukningin hefur ver- ið þannig að við erum og höfum verið að elta skottið á okkur,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi hef- ur aldrei verið meiri og stefnir í að yfir ein milljón sæki landið heim á þessu ári. Stjórnvöld hafa verið harð- lega gagnrýnd vegna skipulags- og aðgerðarleysis hvað varðar upp- byggingu ferðamannastaða og skemmst er að minnast umræðunn- ar um laka salernisaðstöðu víða um land. Hægt að vera vitur eftir á Hefðuð þið ekki mátt undirbúa ykk- ur betur fyrir þennan mikla fjölda ferðamanna? „Þetta er ekkert nýtt viðfangsefni og er löngu tilkomið fyrir okkar tíð í þessu ráðuneyti. Það er alveg hægt að vera vitur eftir á og segja: „Jú, við hefðum átt að bregðast við miklu fyrr“ og þá er alveg sama hver var þá við völd en það þýðir ekk- ert að gera það. Við höfum brugðist við með mjög myndarlegum hætti á síðustu tveimur árum,“ fullyrðir Ragnheiður Elín. Gistináttagjaldið gefur mjög lítið Framkvæmdasjóður ferðamanna- staða var settur á laggirnar árið 2011. Honum er þannig stillt upp að hann eigi að fá þrjá fimmtu hluta tekna þeirra sem koma inn af gistinátta- gjaldinu. „Gistináttagjaldið er að gefa mjög lítið. Það er lágt og það er óhagkvæmur skattstofn, þannig að fjármögnunin hefur hvergi nærri staðið undir þeirri uppbyggingarþörf sem er til staðar,“ segir hún. Þurfum að vinna betur saman „Framkvæmdasjóður ferðamanna- staða hefur frá upphafi úthlutað 2,3 milljörðum króna og þar af eru rúm- lega 1,7 milljarðar í okkar tíð hér. Á síðustu tveimur árum, frá því að við tókum við þessum málaflokki, hef- ur verið gefið mjög í en það er ekki bara skortur á fjármagni sem tef- ur uppbygginguna, heldur eru það fjölmörg önnur atriði. Það þarf að hanna og skipuleggja, það þarf að taka ákvörðun um hvernig og hvar eigi að byggja upp og þetta er á for- ræði mjög margra aðila,“ segir hún. „Þetta er stórt og mikið verkefni sem við þurfum að vinna betur saman. Náttúrupassinn átti að tryggja stöð- uga fjármögnun til lengri tíma og taka á alls konar málum en það fór eins og það fór.“ Náttúrupassinn er ákjósanleg leið Ragnheiður Elín segir að vinnan sem lögð var í frumvarpið um nátt- úrupassann hafi ekki verið til einskis því byggt hafi verið á henni við vinnu á nýrri stefnumótun í ferðamennsku en niðurstöður hennar verða kynnt- ar í næsta mánuði. Hún var unnin með Samtökum ferðaþjónustunn- ar og Ferðamálastofu. Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrverandi rektor og alþingismaður, hefur leitt vinnuna. Ragnheiður Elín segir það engu að síður vonbrigði að náttúrupassinn komst ekki í gegnum þingið. „Auð- vitað, við vorum búin að leggja mikla vinnu í þennan passa en ég er enn þeirrar skoðunar að þetta sé ákjós- anleg leið. Þetta er búið að vera við- fangsefni í áratugi. Menn eru bún- ir að rífast og rökræða um þetta mál svo lengi sem elstu menn muna. Ég var að að vona að þetta myndi loks- ins takast með náttúrupassanum því við þurfum að fá niðurstöðu þótt allar þessar leiðir hafi bæði kosti og galla,“ segir hún en passinn átti að gefa rúman milljarð króna á ári til viðhalds og uppbyggingar á ferða- mannastöðum. „Náttúrupassaað- ferðin til gjaldtöku er ekkert heilög í mínum huga en það sem við vorum að reyna að gera með þessu var að leysa mörg af þessum viðfangsefn- um með heildstæðum hætti.“ Hvalaskoðun og Bláa lónið Formaður Landverndar sagði nýlega við DV að ekki væri nauðsynlegt að vera með eina endanlega lausn í stað náttúrupassans. Hægt væri að beita mörgum aðferðum eins og breyttu gistináttagjaldi, bílastæðagjaldi og fleiri þjónustugjöldum. Ragnheiður segist aldrei hafa verið talsmaður hinna svokölluðu blönduðu leiða. „Það var þess vegna, að vel athuguðu máli, sem við lögðum til þá leið sem við settum fram en nú er þetta eitt- hvað sem við þurfum að skoða.“ Hún horfir til þess að með breikk- un skattstofna verði hægt að taka inn þær greinar ferðaþjónustunnar sem hafa verið undanþegnar virðis- aukaskatti. „Það er ekki síst að þeirra ósk og Samtaka ferðaþjónustunnar sem þessi vinna fer af stað. Það mun skila sér í auknum tekjum,“ segir hún og nefnir hvalaskoðun, Bláa lónið, hópferðabíla og leigubíla sem dæmi um innheimtu í gegnum virðis- aukaskattinn. Áhersla á ríka ferðamenn Ragnheiður Elín er ekki sammála því að takmarka beri fjölda ferða- manna til Íslands. „Við ráðum við miklu meiri fjölda ferðamanna. Við sjáum það ef við berum okk- ur saman við önnur lönd sem eru miklu minni en við. Við þurfum hins vegar að skipuleggja okkur,“ segir hún og telur að leggja eigi áherslu á vel borgandi ferðamenn í allri markaðssetningu. Samt eigi Íslendingar að vera tilbúnir til að taka á móti öllum sem vilja heim- sækja landið. „Flest höfum við ver- ið blankir stúdentar og farið í ferðir sem kosta minna en ferðirnar sem við förum í seinna á lífsleiðinni en við förum aftur á þá staði síðar meir. Ég hef þá tilhneigingu að vilja hafa þetta í bland en markaðssetn- ingin á kannski að vera með frekari áherslu á þá sem eru vel borgandi.“ Hún telur að auka þurfi ferða- mennsku á stöðum sem hafa ver- ið minna í umræðunni, í litlum byggðum úti á landsbyggðinni. Hún nefnir Langanes sem dæmi og einnig Vestfirði. „Það er rými fyrir miklu fleiri ferðamenn þar. Í stefnumótuninni er markmiðið að dreifa ferðamönnum betur yfir árið en einnig betur um landið og fjölga viðkomustöðunum.“ Gott viðhorf til ferðamanna Hún segir ferðaþjónustuna vera í mjög góðri sátt við samfélagið. „Ferðamálastofa hefur verið að vinna þolmarksrannsóknir og þar hefur komið í ljós að viðhorf Ís- lendinga til ferðamanna er mjög Helgarblað 25.–27. júlí 2015 „Við höfum verið að elta skottið á okkur“ n Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að það sé auðvelt að vera vitur eftir á n Ætlum að Ragnheiður Elín Árnadóttir Kynnt verður ný stefnumótun í ferðamálum í næsta mánuði. MyNd ÞoRMaR ViGNiR GuNNaRssoN„Það er beinlínis rangt hjá Össuri að halda því fram að ekk- ert hafi gerst í okkar tíð. Það væri kannski ráð að spyrja Össur af hverju þau voru ekki byrjuð á þessari vinnu fyrr. „Náttúrupassinn átti að tryggja stöðuga fjármögnun til lengri tíma og taka á alls konar málum en það fór eins og það fór Freyr Bjarnason freyr@dv.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.