Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Blaðsíða 7
Helgarblað 25.–27. júlí 2015 Fréttir 7
Stefnir í frjókornamet
Ofnæmislyf mokseljast en margir gætu haldið að þeir væru með kvef
F
rjókorn mælast nú í miklu
magni í Garðabæ og stefnir
í met en eru í lágmarki á Ak-
ureyri. Gera má ráð fyrir að
hámark grasfrjóa á Akureyri verði í
ágúst. Þetta kemur fram á vef Nátt-
úrufræðistofnunar. Frjókorn valda
miklum óþægindum hjá mörgum,
en frjókornaofnæmi er eitt algeng-
asta ofnæmið. Þá er metsala á of-
næmislyfjum í apótekum víða um
land, en mikilvægt er að fá hjálp frá
lækni áður en þau eru keypt. Margir
telja sig vera að glíma við kvef yfir
sumartímann en eru oftar en ekki að
glíma við frjókornaofnæmi, að því er
kemur fram á vefnum doktor.is.
„Nú þegar frjómælingar í júlí eru
hálfnaðar hafa mælst 733 frjó/m3 í
Urriðaholti. Meðalfrjótala fyrir júlí
er 888 frjó/m3. Með þessu áfram-
haldi stefnir í met í heildarfjölda frjó-
korna í júlímánuði frá upphafi mæl-
inga í Urriðaholti. Tæpur helmingur
þessara frjókorna hingað til eru
grasfrjókorn sem flestir hafa ofnæmi
fyrir. Þau eru helst að dreifast í þurr-
um vindi og hlýindum. Undanfar-
in ár hafa mun færri grasfrjó mælst í
ágúst en í júlí og eru góðar líkur á að
svo verði einnig í ár og ágústmánuð-
ur því þolanlegri fyrir þá sem hafa
frjókornaofnæmi,“ segir á vef Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands.
Ástandið hefur verið betra í júlí
fyrir þá sem finna fyrir ofnæmisein-
kennum á Akureyri þar sem höfðu
mælst 293 frjó/m3 um miðjan júlí.
Þar er meðalfrjótala júlímánaðar
870 frjó/m3. Grasfrjó hafa einungis
mælst 107 frjó/m3. „Miðað við þess-
ar lágu frjótölur og þá staðreynd að
grasfrjó mælast yfirleitt fleiri í ágúst
en í júlí eru miklar líkur á að ágúst
verði aðalgrasfrjómánuður sum-
arsins fyrir norðan. Þetta ræðst þó
mikið af veðri næstu vikurnar,“ segir
Náttúrufræðistofnun Íslands. n
Slá gras Fyrir þá sem þjást af frjó-
kornaofnæmi er best ef gras er slegið
reglulega, en þó er betra að einhver ann-
ar en sjúklingurinn taki sláttinn að sér.
„Við höfum verið að
elta skottið á okkur“
læra af þeim bestu
gott og sannarlega ekki eins og
mætti kannski ráða af umræðunni
undanfarna daga. En við þurfum
að vanda okkur.“
Ummæli Össurar
dæma sig sjálf
Össur Skarphéðinsson, fyrrver-
andi ráðherra og formaður Sam-
fylkingarinnar, sagði nýlega að það
eina sem Ragnheiður Elín hefði
gert í embætti væri misheppnaður
náttúrupassi. Talaði hann í raun-
inni um að hún væri úti að skíta.
Því er hún ósammála.
„Mér finnst þau ummæli dæma
sig sjálf. Auðvitað finnst mönn-
um eins og Össuri gott að benda
á pólitískan andstæðing og segja
að hann hafi ekki náð þessu máli
í gegn. Ég vil miklu frekar horfa
til þess árangurs sem við höfum
náð í málaflokknum. Ég lagði fram
sautján frumvörp á þingi og fjórtán
þeirra urðu að lögum,“ segir hún
og nefnir frumvarp um bætt rekstr-
arumhverfi bílaleiga sem dæmi.
„Það er beinlínis rangt hjá Össuri
að halda því fram að ekkert hafi
gerst í okkar tíð. Það væri kannski
ráð að spyrja Össur af hverju þau
voru ekki byrjuð á þessari vinnu
fyrr. Hann talar um að þau hafi
byrjað með átökin Ísland allt árið
og Inspired By Iceland. En bíddu,
hafði hann ekki trúi á sinni eigin
markaðssetningu? Hann var ekk-
ert að gera ráð fyrir því að bregðast
við þessum fjölda.“
Ætlum að læra af þeim bestu
Ragnheiður Elín segir nauðsynlegt
að styrkja stjórnsýsluna í kringum
ferðamálin. Það hefur verið rætt
í vinnunni við nýju stefnumót-
unina. „Við erum fá og með litla
stjórnsýslu en ef við pössum upp
á að samhæfa hlutina betur á milli
ráðuneyta og vinnum eftir skýrri
stefnu mun okkur farnast vel,“ seg-
ir hún og nefnir einnig að staða
ferðamála í öðrum löndum hafi
verið skoðuð. „Þeir bestu eru Nýja-
Sjáland, Skotland og Kanada, til
dæmis. Við ætlum að læra af þeim
bestu og marka okkur stefnu til ná-
lægrar og lengri framtíðar,“ seg-
ir hún og bætir við að 50 milljarða
skatttekjur fáist núna úr ferðaþjón-
ustunni árlega. „Með þeim rökum
má vel réttlæta að taka opinbert
fjármagn og leggja í þennan mála-
flokk til að tryggja að hann fái þrif-
ist til framtíðar.“
Verðum að ganga öll í sömu átt
„Í næsta mánuði ljúkum við
þessari vinnu sem er búin að
standa yfir í tæpt ár. Án þess að
niðurstöðurnar séu komnar þá
blasir við þörfin á samstarfi. Þetta
er málaflokkur sem snertir svo
margar atvinnugreinar. Hann
snertir mitt ráðuneyti sem yfirum-
sjónaraðili ferðamála, umhverfis-
ráðuneytið sem fer með forræði
yfir náttúruperlunum, forsætisráð-
herra fer með þjóðlendumál, fjár-
málaráðuneytið með skattamálin
og innanríkisráðuneytið með sam-
göngumálin. Við sjáum fyrir okkur
tillögu sem snýst um að við sam-
hæfum okkur. Það er ekki hægt að
vinna þetta hvert í sínu horninu.
Við verðum að ganga öll í sömu
átt.“ n
Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is
GÆÐAVARA Á GÓÐA BÍLA
Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is
GÆÐAVARA Á GÓÐA BÍLA