Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Blaðsíða 15
Skrýtið 15Helgarblað 25.–27. júlí 2015
Betra grænmeti
Betra kjöt
Betri ávextir
Fyrst og
fremst...
þjónusta
Horfðu aftur
n Þessar myndir þarfnast útskýringa n Sjónhverfingar
ljósmyndara
Þ
eir eru klókir,
ljósmyndar-
ar Reuters,
og hafa náð
myndum af
ótrúlegustu hlutum.
Þessar myndir þurfa
margar hverjar tals-
verða yfirlegu áður
en hægt er að átta sig
á þeim. Hefur þú náð
svona sjónhverfinga-
myndum? Sendu
okkur þær endilega á
ritstjorn@dv.is ef svo
er. n
„Alveg hauslaus“
Þó að átökin geti verið
mikil á kappleikjum þá
var þessi hafnabolta-
maður, Ben Fransisco,
ekki afhöfðaður í keppni
með Philadelphia
Phillies. Hann fékk þó
frekar þungt höfuðhögg
og ljósmyndari Reuters
náði mynd á hárréttu
augnabliki.
Ósýnilegi maðurinn Kínverski
listamaðurinn, Liu Bolin, kemur sér mak-
indalega fyrir hjá myndasögum í Caracas
í Venesúela. Hann kallar sig ósýnilega
manninn og reynir að blanda sér inn í
umhverfið eftir bestu getu.
Á ystu nöf Þetta ku vera stærsta
þríviddar listaverk sem gert hefur verið
á Canary Warf í London.Leikararnir sem
á því standa nota crossfit-búnað sem
komið hefur verið fyrir á verkinu til að
ýta undir lofthræðslu vegfarenda og
sýna hvernig crossfit-þátttakendur fara
út á ystu nöf.
Skökk mynd Þessar konur stukku í sjóinn við
Havana á Kúbu í mikilli hitabylgju. Ef myndin
prentast vel sést hvernig konurnar virðast vera í
talsvert skökkum hlutföllum.
Rétta augnablikið Þessi maður
er ekki að ganga yfir ósýnilega línu í
háloftunum og hann er ekki gæddur
ofurmannlegum eiginleikum heldur er
hann ósköp mannlegur, að líkindum, og
ljósmyndarinn snjall. Þegar maðurinn
maður tók stökk út í ána Dniprov í Kiev
í mikilli hitabylgju náði ljósmyndarinn
myndinni á hárréttu augnabliki.