Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Blaðsíða 24
2 Tekjublaðið 25. júlí 2015
HEILD EHF
Rúmfatnaður fyrir hótel
og sjúkrastofnanir
Stórhöfði 17 • 110 Reykjavík • Sími 5877685 • Netfang: eg.heild@simnet.is • www.egheild.is
Vandaður rúmfatnaður 100% cotton satin með 300TH. 60/60µ.
Sterk og endingargóð teygjulök, 100% cotton satin með 300TH.
Gæða handklæði 500 gsm.
Góðar sængur sem má þvo við 95° hita.
Dýnuhlífar, þola þvott við 95°, rakaheldnar.
R
íkisskattstjóri hefur lokið
álagningu opinberra gjalda
á einstaklinga árið 2015
vegna tekna á árinu 2014.
Talsverðar breytingar verða
á listanum á milli ára og kemur mað-
ur í manns stað. Þó eru nokkur vel
þekkt andlit úr íslenskum samtíma
og nokkrir sem hafa átt sæti á listan-
um ár eftir ár.
Þórður Rafn Sigurðsson útgerðar-
maður er efstur á lista ríkisskatt-
stjóra yfir þá sem greiða hæstu opin-
ber gjöldin, en Þorsteinn Sigurðsson
fylgir honum þar á eftir og þriðja
sætið skipar Kári Stefánsson, for-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Jón Árni Ágústsson, skattakóngur
ársins í fyrra, er ekki á meðal þeirra
20 sem greiða mest í opinber gjöld
en hann greiddi tæplega 412 millj-
ónir kórna í opinber gjöld árið 2013.
Þrjár konur eru á listanum og
er það mikil fækkun frá því í fyrra
þegar sjö konur voru á meðal þeirra
20 greiddu mest í opinber gjöld.
Þær eru einnig neðar á listanum en
í fyrra en Guðbjörg M. Matthíasdótt-
ir er í áttunda sæti listans, María Vig-
dís Ólafsdóttir situr í 15. sæti hans og
María Rúnarsdóttir er í 18. sæti. n
Þessi greiddu mest í skatta
n Þau greiddu hæstu skattana árið 2014 n Útgerðarmenn fyrirferðarmiklir á listanum
Þórður Rafn
Sigurðsson
671.565.763 krónur
1
Þórður er skattakóngur Íslands
árið 2014 en hann greiddi alls tæp-
lega 672 milljónir króna í skatta
á árinu 2014. Hann komst þó ekki á blað
yfir hæstu skattgreiðendur í fyrra. Þórður
Rafn starfaði í nokkra áratugi við útgerð
en hann stofnaði útgerðina Dala-Rafn árið
1993 ásamt eiginkonu sinni Ingigerði R.
Eymundsdóttur. Hjónin áttu hvort um sig
50 prósent hlut í félaginu. Hafði Þórður áður
gert út togara með sama nafni og var þar
skipstjóri lengi vel. Hjónin seldu Dala-Rafn
til Ísfélags Vestmannaeyja í byrjun ársins
2014 ásamt togskipinu Dala-Rafni VE 508
og aflaheimildum er námu tæpum 1.600
þorskígildistonnum. Ísfélagið er einmitt í
eigu Guðbjargar Matthíasdóttur, sem skipar
áttunda sæti á þessum lista. Þórður var
valinn Eyjamaður ársins af Eyjafréttum árið
2014 en hann og eiginkona hans komu upp
útgerðarsafni í Vestmannaeyjum.
Þorsteinn Sigurðsson
304.633.336 krónur
2
Þorsteinn Sigurðsson vermir
annað sætið en er samt ekki
hálfdrættingur miðað við sjálfan
skattakónginn. Þorsteinn greiddi ríflega
300 milljónir í opinber gjöld á síðasta ári.
Þar kemur fyrst og fremst til sala á 15% hlut
sem hann átti í Stálskipum í Hafnarfirði.
Kvóti félagsins og skip voru seld á síðasta
ári en félagið var mjög skuldlétt.
Kári Stefánsson
277.499.661 krónur
3
Kári Stefánsson færist upp um tíu
sæti á listanum í ár og skipar nú
þriðja sæti. Hann greindi frá því
á fimmtudag að meirihluti gjaldanna sem
hann greiði sé vegna sölu á hlutabréfum
erlendis og að hann hefði ekki haft neina
tilburði til að draga úr þeim gjöldum. Hann
sagðist í samtali við Stundina ánægður með
að geta lagt sitt af mörkum til samfélagsins
en að það væri erfitt fyrir sósíalista að sitja
uppi með að vera á meðal auðkýfinga í
þessu samfélagi. Hann segir sárt að sam-
félagið hefði ekki fundið leið til að minnka
launamun í samfélaginu.
Gunnar Torfason
180.939.049 krónur
4
Ísfirðingurinn Gunnar Torfason
stóð í stórræðum í byrjun árs 2014
þegar hann og viðskiptafélagi
hans, Bolvíkingurinn Ólafur Jens Daðason,
seldu fyrirtækið Völustein og vélbátinn
Hálfdán Einarsson ÍS. Með bátnum fylgdi
kvóti upp á 1.200 þorskígildistonn. Sölu-
verðið var ekki gefið upp en samkvæmt
landsmálavefnum á Vestfjörðum, Skutli,
var talið að það næmi tveimur milljörðum
króna. Athygli vakti að þeir félagar hugðust
halda áfram rekstri sínum á Flateyri en
ákváðu að selja kvótann til annarra útgerða
í Bolungarvík í stað þess að taka hann með
sér til Flateyrar.
Davíð Freyr Albertsson
173.206.913 krónur
5
Davíð Freyr er framkvæmdastjóri
SMI ehf. Síðla árs 2013 var tilkynnt
um kaup Eikar fasteignafélags hf.
á meginhluta fasteigna í eigu SMI en kaupin
gengu í gegn í byrjun árs 2014. Helstu eignir
félagsins voru Smáratorg 1-3 og lóð að
Smáratorgi 5 auk fasteigna á Akureyri, með-
al annars Glerártorg. Davíð Freyr var einn
stærsti einstaki hluthafinn í SMI ehf. með
15% hlut samkvæmt ársreikningi 2013. SMI
á og rekur enn fasteignir við Korputorg sem
og húsnæði Rúmfatalagersins í Skeifunni.
Bert Hanson
140.284.145 krónur
6
Bert Martin Hanson er í sjötta sæti
á lista ríkisskattstjóra yfir hæstu
skattgreiðendur Íslands og greiddi
rúmlega 140 milljónir króna í skatt. Hann
rataði ekki á lista yfir hæstu gjaldendur í
fyrra en á síðasta ári seldi hann framleiðslu-
og innflutningsfyrirtækið Íslensk-ameríska
til Guðbjargar Matthíasdóttur, líkt og Þórður
Rafn, skattakonungurinn sjálfur, gerði með
Dala-Rafn. Bert stofnaði ÍSAM hinn 15.
apríl 1964 eftir að hann flutti til Íslands frá
Bandaríkjunum með konu sinni Ragnheiði
Jónasdóttur en fyrirtækið hefur alla tíð
verið í eigu fjölskyldunnar.
Jón Guðmann
136.371.742 krónur
7
Jón Guðmann Pétursson er í
sjöunda
sæti yfir þá
sem greiða hæstu
skattana árið 2014.
Jón Guðmann er
fyrrverandi forstjóri
Hampiðjunnar og
lét af störfum í mars
2014. Hann hafði
starfað í 27 ár hjá
fyrirtækinu og þar af um helming tímans
sem forstjóri. Við starfslok sín fékk hann
greiddar 1,5 milljónir evra, sem jafngildir 240
milljónum króna, samkvæmt samningi við
stjórn félagsins. Stærstur hluti af því var
uppgjör á bónusgreiðslu vegna hækkunar
á gengi hlutabréfa í félaginu. Árið á undan
hafði Jón Guðmann verið annar launahæsti
forstjóri landsins með rúmlega 11 milljónir
króna í mánaðarlaun.
Guðbjörg M.
Matthíasdóttir
127.296.164
krónur
8
Útgerðar-
konan
í Vest-
mannaeyjum hefur
verið fastagestur á
listanum undanfarin
ár. Hún greiðir mest
Árni Harðarson
121.618.964 krónur
9
Árni skipar 9. sæti á lista ríkis-
skattstjóra yfir þá sem greiddu
hæsta skatta á landinu árið 2014.
Hann hefur verið náinn samstarfmaður Ró-
berts Wessman forstjóra lyfjafyrirtækisins
Alvogen og starfar nú sem yfirlögfræðingur
hjá fyrirtækinu.
Kristján V. Vilhelmsson
110.473.857 krónur
10
Kristján er einn eigenda útgerðar-
fyrirtækisins Samherja á Akureyri
ásamt frænda sínum Þorsteini
Má Baldvinssyni. Áður sat Kristján í sjötta
sæti listans og greiddi 189.902.544 krónur í
skatta árið 2013. Nú greiðir hann 110.473.859
milljónir króna í skatta og hefur því fallið
niður um fjögur sæti.
Stefán Hrafnkelsson
103.185.589 krónur
11
Stefán er stofnandi hugbúnað-
arfyrirtækisins Betware og situr
í ellefta sæti yfir þá sem greiddu
hæstu skatta á landinu í fyrra en hann
greiddi rúmar 103 milljónir króna í skatta. Í
lok ársins 2013 seldi Stefán 90 prósent hlut
í Betware til austurrískrar fyrirtækjasam-
steypu, Novomatic, en kaupverðið var sagt
vera trúnaðarmál. Stefán á þó enn 10% hlut
í fyrirtækinu með áður helstu stjórnend-
um þess og er enn framkvæmdastjóri. En
fyrirtækið sérhæfir sig í þróun peningaleikja
fyrir rekstraraðila sem leyfi hafa til þess frá
Adolf Guðmundsson,
Guðjón Harðarson og
María Vigdís Ólafsdóttir
102.093.894 / 96.516.183
og 94.486.876 krónur
12, 14, 15
Þremenningarnir eru
öll frá Seyðisfirði og
högnuðust verulega
á sölu útgerðarinnar Gullbergs til Síldar-
vinnslunnar í fyrra. Gullberg var stofnað árið
1963 og eigandi þess, Ólafur Marel Ólafsson,
betur þekktur sem Óli Óla, lést árið 2009 og
átti þrjár dætur; áðurnefnda Maríu Vigdísi,
Theódóru og Hrönn. Adolf er eiginmað-
ur Theódóru og Guðjón er eiginmaður
Hrannar. Adolf og Guðjón störfðu báðir hjá
fyrirtækinu en Adolf var framkvæmdastjóri
Gullbergs og var formaður LÍÚ frá árinu
2008 til 2014.
Grímur Karl Sæmundsen
96.753.634 krónur
13
Grímur Karl Sæmundsen, læknir
og forstjóri
Bláa lónsins,
situr í 13. sæti á lista
ríkisskattstjóra yfir
hæstu skattgreiðend-
ur á Íslandi árið 2014.
Grímur hefur frá árinu
1992 byggt upp Bláa
lónið en rekstur þess
hefur gengið afar vel
og er geysivinsælt
meðal ferðamanna. Uppbygging er nú hafin
á svæðinu sem felst meðal annars í byggingu
nýs lúxushótels. Rekstur fyrirtækisins hefur
frá árinu 2008 verið í evrum. Grímur var
kjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunn-
ar árið 2014 en auk þess var hann meðal tíu
hæst launuðu forstjóra landsins sama ár.
kvenna en fellur þó niður um nokkur sæti
yfir þá einstaklinga sem greiddu hæstan
skatt frá því á árinu 2013 þegar hún var
í öðru sæti. Nú situr Guðbjörg í áttunda
sæti listans og greiðir 127.296.164 króna í
skatta. Guðbjörg greiðir meira en helmingi
minni skatt frá því í fyrra þegar hún greiddi
389.183.843 krónur í opinber gjöld. Guðbjörg
rekur eina stærstu útgerð landsins, Ísfélagið
í Vestmannaeyjum, en útgerðin á mikinn
kvóta. Síðastliðin ár hefur Guðbjörg verið
einn helsti hluthafi Árvakurs, útgáfufélags
Morgunblaðsins.
stjórnvöldum viðkomandi lands. Fyrirtækið
skilaði 130,2 milljóna króna hagnaði árið
2013 en eignir Betware námu um áramótin
2013 alls 427,6 milljónum króna en skuldir
námu 184,9 milljónum.