Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 70
Helgarblað 25.–27. júlí 201526 Fólk Viðtal E inu sinni þekkti ég vöðva­ stæltan og fallegan strák. Ljóshærðan og sólbrúnan í sumrinu 1995. Hann vann við uppskipun og var einn af strákunum sem við stelpurnar djömmuðum með. Eina fallega sum­ arnótt lentum við saman uppi í rúmi. Það var ljómandi skemmtilegt en hafði lítil eftirmál. Ég hafði ekki hug­ mynd um það fyrr en mörgum árum síðar að ég hefði varið nóttinni með transkonu, og þegar ég hugsa til baka finnst mér það bara dálítið fallegt. Ég fylgdist með henni gegnum árin úr fjarlægð en ákvað að hafa samband eftir að ég sá hana tvo daga í röð í bænum. Í annað skiptið sá ég Toru, glæsilega konu sem stik­ aði niður Bankastrætið bein í baki og íklædd pilsi, en í hitt skiptið var hún klædd í buxur og með hárið í tagli, og þá fannst mér ég sjá strákinn sem ég þekkti í gamla daga. Þarna upp­ lifði ég fötin sem kynskiptandi, sem er algjörlega dæmigert fyrir okkur sem erum alin upp í samfélagi hinn­ ar kynjuðu tvíhyggju. Hvers vegna þurfti hún að vera í pilsi til að ég sæi hana sem konu? Eftir þetta leitaði ég Toru upp á Facebook og við töluðum saman í fyrsta sinn í 20 ár – hún var til í við­ tal. Við mæltum okkur mót á kaffi­ húsi í miðbænum eldsnemma á ísköldum sumarmorgni. Ég stóð fyrir utan þegar hún kom hjólandi á móti mér, skælbrosandi, í leður stígvélum og aðsniðnum jakka. Hárið í tagli og með sólgleraugu sem huldu þó ekki meira af andlitinu en svo að ég sá brosið í augunum. Kom út hægt og rólega Tora Victoria fæddist árið 1967 en lifði lengi vel undir fölsku flaggi. Hægt og rólega leyfði hún sér að koma út gagnvart heiminum, en stór varða á þeirri leið var heimasíða sem hún setti í loftið árið 1999 undir yf­ irskriftinni „Hi mama, I’m a trans­ vestite“. „Ég flutti til Kaupmanna­ hafnar, burt frá litla Íslandi til að fela mig í fjöldanum og geta verið ég. Hægt og rólega hleypti ég fleira og fleira fólki að mér.“ Tora segir erfitt að upplifa sig sem algjöra konu á meðan hún er enn­ þá í karlmannslíkama. „Ég var alin upp sem strákur en fílaði mig alltaf sem stelpu frá fyrstu tíð. Mér er mjög minnisstætt þegar eldri mað­ ur í fjölskyldunni tók af mér dúkku sem ég var að leika með og sagði að strákar léku sér ekki með dúkkur. Ég hélt að ég hefði gert eitthvað af mér og skömmin óx innra með mér. Ég fór alltaf með mitt rétta eðli eins og mannsmorð og reyndi alltaf að vera töffari. Það mótaði mig mjög mikið í uppvextinum.“ Typpi eða ekki Toru fannst ekki rétt að þeir einstak­ lingar sem gengu inn í kynleið­ réttingarferli LSH þyrftu að hafa óbeit á kynfærum sínum. Fjölmargar transkonur velja að lifa áfram með typpi, enda er typpi ekkert ann­ að en stór snípur ef út í það er far­ ið. „Þetta hefur sem betur fer breyst. Ég var lengi í miklum mótþróa gagn­ vart kynleiðréttingarferlinu. Það er eiginlega bara minn karakter, ég er vön að vera fiskurinn sem syndir á móti straumnum. Skömmu eftir að ég kom út var teymið á Landspítal­ anum búið til og umræðan opnaðist. Ég upplifði bara að þetta væri orðin einhver tíska og leist ekkert á það. Ég þarf alltaf að fara löngu leiðina.“ Blaðamaður misstígur sig Ég spyr Toru hvort hún hafi verið „píndur“ til að afplána tiltekinn tíma áður en hægt er að ganga lengra í kynleiðréttingarferlinu, til dæm­ is að hefja hormónameðferð. „Æ, ekki karlgera mig,“ segir hún. Ég sýp hveljur og skammast mín skelfilega á meðan ég bið hana innilegrar afsök­ unar. Tora fyrirgefur mér en útskýrir að í hvert sinn sem einhver í daglega lífinu karlgerir hana sé til finningin eins og hnífur í brjóstið. Ég endurtek spurninguna, um hvort hún hafi verið pínd til að lifa tiltekinn tíma sem kona áður en meðferðin komst á skrið. „Þetta er auðvitað lítið land, þeir sem þekkja mig vita að ég er búin að lifa sem kona í fjölda ára, þannig að það er tekið tillit til þess í mínu ferli. Ég veit að það er mikilvægt skref fyrir mig að leggja á bak við mig mitt gamla karl­ mannsauðkenni, þá getur fólk ekki lengur notað þjóðskrána sem afsök­ un fyrir því að karlgera mig.“ Ferlið leysir ekki allan vanda Tora segir að það sé alls ekki sjálf­ sagður hlutur að kynleiðrétting sé lausnin í lífi alls transfólks. Það eru kostir og ókostir við að hefja það ferli. „Í transheiminum er til nokk­ uð sem heitir eftirsjá. Sumir sjá eftir því að ganga í gegnum leiðréttingar­ ferlið – það er reyndar mikið tabú í okkar heimi. Væntingar til ferlisins Tora Victoria passar ekki inn í staðlaðar hugmyndir samfélagsins um karla og konur. Hún kýs að láta ávarpa sig í kvenkyni og tala um sig sem konu – enda er hún transkona. Hún leggur áherslu á að transkonur séu ekki það sama og aðr- ar konur, og vill helst tala um þriðja kynið. Tora er dauðþreytt á fordómum í samfélaginu sem hún upplifir nánast daglega. Nýlega hóf hún kynleið- réttingarferli hjá teymi Landspítalans sem heldur utan um mál transfólks í þeim sporum – en hún segist gera það frekar fyrir umhverfið en sjálfa sig. „Ég er ekki kona ég er kven-maður“ Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Gítar og blúndur Tora leikur listilega á gítar á rúmstokknum. myndiR þoRmaR viGniR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.