Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Page 72
Helgarblað 25.–27. júlí 201528 Fólk Viðtal
á samkynhneigðum og transfólki.
Það er stór munur á þeim sem eru
samkynhneigðir og klæða sig í drag,
karlmönnum sem eru klæðskipt-
ingar og klæða sig í kvenföt fyrir kyn-
ferðislegt kikk, og transfólki. Þessu
er endalaust ruglað saman í um-
ræðunni.“
Ég spyr Toru hvort hún hafi fundið
samhljóm með fólki í Samtökunum
'78. Svarið kemur mér dálítið á óvart.
„Í kringum aldamótin fóru samtök-
in að breytast úr félagsskap sem var
áður með sterkan fókus á homma
og lesbíur, yfir í hóp þar sem trans-
fólk var velkomið. Þá skráði ég mig.
En innan samtakanna hef ég upp-
lifað óvænta fordóma, úr hörðustu
átt. Ég hélt að þarna væri ég komin
heim – en það var alls ekki tilfinn-
ingin. Þegar transfólk varð velkomið
inn í samtökin og ég fór að umgang-
ast fólk þar, þá kom það mér mjög á
óvart að jafnvel fólk, sem gefur sig út
fyrir að berjast gegn fordómum og
skilningsleysi, gat ekki skilið að ég
væri transkona. Mér var ekki sýnd sú
tillitssemi sem ég hélt að ég mundi
mæta þarna, ég var stöðugt karlgerð,
þrátt fyrir að ég gæfi það í skyn með
öllu mínu atferli að ég vildi láta koma
fram við mig sem konu. Það kom
mér mjög á óvart að það virtist alveg
skorta vilja til að sýna tilfinninga-
legt umburðarlyndi. Ég á mun auð-
veldara með að skilja slíkt úti í hinu
almenna samfélagi en á þessum stað
sem er byggður í kringum að berjast
gegn tillitsleysi og skilningsleysi. Ég
skal líka alveg viðurkenna að ég er
full af fordómum gagnvart fólki sem
er með fordóma gagnvart mér,“ segir
Tora og hlær. „Enginn er fordóma-
laus,“ bætir hún við.
Transfólk í menningunni
Transfólk hefur alltaf verið til. Í
mörgum ættbálkum er hefð fyrir
því að við transfólk séum shamanar,
segir Tora mér. „Transfólk hefur séð
um andlega leiðsögn fyrir aðra, séð
um jarðarfarir og sálusorgun, af því
það er talið hafa víðari sjóndeildar-
hring með sjónarhorn beggja kynja
– innsýn í báða heimana. Leifarnar
af þessu má til dæmis sjá á þeirri
staðreynd að prestar þjóðkirkjunnar
klæðast kjólum.“
Transfólk sést oft á tíðum í klám-
efni og sem viðfangsefni blætis hjá
fólki sem ekki er trans. „Mér finnst
sá heimur óþægilegt fyrirbæri. Oft fæ
ég fyrirspurnir á netinu frá fólki með
alls konar fantasíur en ég vísa þeim
bara annað. Ég tek mig alvarlega sem
manneskju og nýt þeirra forréttinda
að þurfa ekki að selja mig eða eitt-
hvað slíkt. Í Taílandi, þar sem ég hef
dvalið, draga sumar transkonur fram
lífið með vændi. Þær eru kallaðar
katohey eða ladyboys, og eru viður-
kenndar í samfélaginu. Eitthvað er
um að vestrænir menn fari þangað til
að prófa kynlíf hjá konum með typpi.
Reyndar er mikið að gerast í trans-
heiminum í Taílandi, transkonur eru
farnar að vinna fyrir sér á eðlilegan
hátt og eru smám saman að komast í
betri stöðu. Eitt af stóru flugfélögun-
um þar var til dæmis að ráða fyrstu
flugfreyjurnar sem eru katohey. Skil-
yrði var reyndar að þær væru sér-
staklega fallegar og kvenlegar. En
þetta er skref í rétta átt. Svo eru litl-
ir hlutir eins og þriðja klósettið í
menntaskólum, fyrir transfólk, sem
skipta máli.“
Ég skýt inn spurningu um það
hvaða almenningsklósett Tora velji
þegar hún er á ferðinni. „Það fer eftir
ýmsu. Hugarástandi mínu, aðstæðum
og auðvitað röðinni,“ segir hún og hlær.
Spjallið leiðist að poppmenn-
ingunni og því að transfólk hefur
á síðustu misserum sést meira og
meira í blöðum og sjónvarpi. Skyldi
það vera jákvætt? „Mér finnst við að-
eins þurfa að passa okkur á þessu.
Við erum fæstar einhverjar glæsi píur
– flestar eru frekar karlmannlegar og
við virkum sennilega ekki sem for-
síðumódel. Það er eins og við þurf-
um að vera extra kvenlegar til að fá
jákvæða athygli. Þú hefðir til dæmis
örugglega aldrei sagt „hann“ við Cait-
lyn Jenner. Ég veit að þú meintir ekk-
ert illt með því en það stingur samt.“
Við erum ekki allar gordjöss
Tvær transkonur hafa verið áberandi
umfram aðrar á forsíðum blaða og
í sjónvarpi, en það eru þær Caitlyn
Jenner og Laverne Cox. Tora bend-
ir á að þessar konur séu líklega bún-
ar að ganga í gegnum heilan hell-
ing af aðgerðum og breytingum á
líkama sínum. „Við transkonur ger-
um það oft meira fyrir umhverfið en
okkur sjálfar. Svo það sé auðveldara
fyrir ykkur að umgangast okkur sem
konur. Það er ein ástæða þess að ég
ætla í leiðréttingarferlið, ég er orðin
svo endalaust þreytt á þessu. Þetta er
samt allt á yfirborðinu og breytir ekki
mínum karakter. Helst af öllu vildi ég
að þið gætuð bara séð mig sem Toru,
en það eiga svo margir erfitt með það
og sjá bara karlinn. Þetta er auðvitað
sambærilegt við það sem konur búa
almennt við. Þú þarft að vera horuð
og með eitthvert ákveðið útlit til að fá
jákvæða athygli fjölmiðla til dæmis.
Það er eitthvað rangt við að transfólk
fái fyrst skilning og jákvæða athygli
þegar stórstjörnur byrja að koma
út. En auðvitað höfum við séð þetta
áður, til dæmis þegar HIV-vírus-
inn kom fyrst fram, þá þurftu stór-
stjörnur og íþróttahetjur að koma
út úr skápnum sem smitaðir til þess
að samúð kviknaði í samfélaginu. Ég
er til dæmis alveg með frekar karl-
mannlegt andlit, og verð sennilega í
margra augum alltaf gaurinn í pils-
inu, nema ég gangi í gegnum skelfi-
legar aðgerðir á andliti sem geta far-
ið á hvorn veg sem er. Við erum ekki
allar gordjöss gellur, frekar en venju-
legar konur. Ég lít út eins og Brad Pitt
en langar til að líta út eins og Jenni-
fer Aniston! Í raun og veru eru allar
Hollywood-stjörnur transkonur.
Þeim hefur verið breytt í eitthvað
sem þær voru ekki áður – sjáðu bara
Marilyn Monroe, hún fæddist rauð-
hærð og var búttuð sveitastelpa áður
en hún varð að ljóshærðri glæsidívu.“
Nýr kafli að hefjast
Í haust er Tora að fara í háskólanám.
„Ég er mjög spennt fyrir þessu. Sótti
um í vetur í algjöru bríaríi. Ég þurfti
virkilega að telja í mig kjark, komin
þetta langt í mínu lífi, og hvað ef mér
hefði verið hafnað? En bingó! Ég
komst í gegnum þetta og var ég sjálf,
Tora, í öllu ferlinu og þurfti ekkert að
fela mig. Það er eins og allt sé að falla
í rétt far núna. Loksins er minn tími
kominn, eins og Jóhanna sagði.“ n
„Þegar fornleifa-
fræðingar grafa
mig og þig upp hlið við
hlið munu þeir finna
beinagrind karls og konu.
Ég veit að ég verð aldrei
kona, ég er transkona,
og breytingaferlið mun
hjálpa mér, en ekki leysa
öll mín vandamál.
Gróðurvin í
miðbænum
Garðurinn
hennar Toru
er grænn og
notalegur.
Trúlofunarhringar
- okkar hönnun og smíði
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind