Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Page 77

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Page 77
Helgarblað 25.–27. júlí 2015 Lífsstíll 33 Göldrótt súpa og gómsætur humar Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550 info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is F eng shui er ævaforn kínversk speki sem fjallar um að harm- ónísera manneskjuna við um- hverfi hennar til að hámarka árangur, hvíld, vellíðan og tækifæri. Hugtakið, sem beinþýtt er vindur-vatn úr kínversku, er oft not- að í tengingu við arkitektúr og innan- hússhönnun. Þá er mikilvægt hvern- ig við röðum umhverfinu upp þannig að orkuflæðið hafi sem best áhrif á manneskjuna sem í því dvelur. Til eru fjölmargar bækur og rit þar sem hægt er að fræðast um feng shui-listina. Hönnunarhornið gefur hér nokk- ur góð ráð sem vert er að hafa í huga þegar kemur að innréttingu rýma með tilliti til feng shui. n Að innleiða feng shui á heimilið Svefnherbergi Feng shui-svefnherbergi er heilagur griðastaður þar sem maður á að geta slapp- að vel af, fengið góðan nætursvefn eða átt rómantíska stund með makanum. Burtu með sjónvarpstæki, síma og tölvur: Þessi tæki bæta stressi og áreiti inn í líf þitt og trufla þar af leiðandi heilaga hvíldarveru. Nægt súrefnisflæði: Mikilvægt er að vera með góðan glugga eða svalahurð og lofta reglulega út til að fá nóg af frísku lofti inn í svefnherbergið. Öll þurfum við nægt súrefni til að endurnærast. Ekki stilla upp rúmi á móti hurð: Rúmið á að vera jafn aðgengilegt frá báðum hliðum og ekki stillt upp við vegg. Einnig segir feng shui okkur að við eigum að vera með góða dýnu og góð rúmföt úr náttúrulegum efnum til að endurnærast vel. Róandi litaval: Samkvæmt fræðinni á einungis að nota róandi húðliti frá mjólkurhvítum tónum yfir í súkkulaði- brúna. Þessir litir eru sagðir harmónera orkuflæði herbergis. Mismunandi ljósastyrkleiki: Gott er að geta valið á milli ljósastyrkleika eftir stemningu og því mælir feng shui með því að setja birtudeyfi á ljósrofa í svefnherbergjum. Sofðu með dyrnar lokaðar: Það passar upp á að góða orkan haldist inni í rýminu þar sem þú sefur og þú vaknar enn endurnærðari fyrir vikið. Stofa Stofan er samverustaður fjölskyldunnar og því þarf orkan þar að tryggja auð, heilsu og hamingju hennar. Blandaðu saman formum: Mikilvægt er að nýta alls kyns form inni í stofunni. Hafa skal í huga að ferhyrn- ingar tákna jörð, rétthyrningar tákna tré og þríhyrningar eru tákn fyrir eld. Gott er að umvefja náttúrunni inn í stofuna. Stofuborðið, sem oft er miðpunktur rýmisins, ætti að vera kringlótt til að leyfa góðu orkunni að flæða fyrirhafnarlaust í kringum það. Stilltu sófanum upp við vegg: Mikilvægt er að staðsetja sófann upp við miðju á heilsteyptum vegg fyrir hámarks feng shui. Spekin segir einnig að þú átt alltaf að geta horft á inngang stofunnar þegar þú situr í sófanum til þess að vera meðvitaður um það sem um er að vera og hámarka þannig tækifærin í lífi þínu. Myndir: Veldu einungis myndir sem vekja upp gleðilegar minningar til að skreyta stofuna. Þegar um myndlist er að ræða skal einnig hafa gleði í huga. Forðastu að velja list sem tengist sorg á einn eða annan hátt, því þetta allt hámarkar jákvæð áhrif á þig. Röð og regla: Mundu að hver hlutur á sinn stað! Skipulagning einfaldar lífið á sama tíma sem það minnkar áreiti í kringum þig. Þá er gott að takmarka hluti í stofunni. Blóm í tóm rými: Það er gott að bæta lífi í kringum sig og því er mælt með að fylla auð rými með plöntum. Það hreinsar loftið og eykur orkuflæði. Eldhús Eldhúsið er mikilvægasti viðverustaður hússins vegna þess að það er rýmið sem nærir og viðheldur lífi samkvæmt feng shui. Eldhús á ekki að vera staðsett nálægt útidyrahurð: Það hleypir orkuflæðinu auðveldlega út úr heimilinu. Hollusta er gott feng shui: Fylltu eldhúsið af hollustu og næringu. Það segir sig bara sjálft. Takmarka dót: Hafðu röð og reglu í eldhúsinu og losaðu þig við óþarfa dót. Ekki geyma marga hluti uppi á borðum því það eykur áreiti. Ávaxtaskál og blóm: Vendu þig á að skreyta eldhúsborðið, annaðhvort með ávaxtaskál eða lifandi blómum. Notaðu hressilega liti: Mælt er með að nota uppörvandi liti í eldhúsið og þá sérstaklega gulan því hann er sagður virka vel á meltinguna. Hönn- unar- Horn Kolfinna Von Arnardóttir kolfinna@artikolo.is n Ævaforn kínversk speki n Hvað er gott að hafa í huga? n Eldhúsið best í hressandi litum Dæmigert herbergi Hið dæmigerða svefnherbergi samkvæmt feng shui. Hér má sjá litaval, uppröðun, og fylgihluti, svo sem plöntu, sem bæta jákvæða orku í rýmið Mismunandi form Hin dæmigerða feng shui-stofa. Hér má sjá mismunandi form í skenknum, málverkinu og borðinu. Kaffiborðið er rúnnað og sófinn er upp við heilsteyptan vegg. Litavalið er einnig dæmigert fyrir feng shui. Notaðu hressa liti Hér má sjá dæmigert feng shui-eld- hús. Það er í hressandi lit, afar skipulagt og sjá má glitta í plöntu og ávexti. Maður getur ímyndað sér að mikil jákvæð orka streymi um rýmið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.