Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 79

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Síða 79
Menning 35Helgarblað 25.–27. júlí 2015 Hostelvæðing grasrótarinnar n Er ferðamannaiðnaðurinn að gera út af við grasrótina? n Túristabylgjan ekki á arðsemiskröfu fyrir hverja tón­ leika. Það er ómögulegt að halda ná­ kvæmar tölur yfir tónleikastaði sem þjóna grasrótinni, því þeir birtast í raun hvar sem mögulegt er að koma fyrir trommusetti og mögnurum (eða tölvu og tveimur hátölurum). En virkustu tónleikastaðir grasrót­ arinnar um þessar mundir eru lík­ lega Gamli Gaukurinn, Húrra, Bar 11, Dillon, KEX Hostel, Loft Hostel, Mengi, Café Rosenberg og Gamla bíó. Enginn viðmælenda DV vill stað­ hæfa nokkuð um raunverulega fækk­ un tónleikastaða í miðborginni – en tónleikastaðalandslagið hefur alltaf verið óstöðugt. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves, bendir á að tónleikastaðir í Reykjavik hafi oft átt stuttan líftíma og iðulega þurft að víkja fyrir arðbærari fjár­ festingum. Hann segir hins vegar að skipuleggjendur Airwaves finni fyrir því að erfiðara sé að finna smærri tónleikastaði fyrir hátíðina nú en áður. Hann kallar eftir því að borgar­ yfirvöld sýni meiri ákefð og taki skýr­ ari pólitíska afstöðu um að halda lífi í miðbænum. Hann segir að rétt eins og sparkvellir séu nauðsynlegir fyrir krakka sem stundi íþróttir þurfi að vera fjölbreyttur vettvangur fyrir ungt tónlistarfólk til að æfa sig og þroskast. Hann nefnir til dæmis að í Danmörku séu sérstakir tónleika­ staðasjóðir sem geri það að verkum að tónleikastaðir víða um landið geti boðið minni hljómsveitum að spila án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að tapa peningum. Húrra fyrir útlendingum Neikvæð umræða um ferðamanna­ iðnaðinn, eins og sú sem hefur átt sér stað um ferðamenn á Íslandi í sumar, á alltaf á hættu að þróast yfir í útlendingaandúð. Flestir við­ mælendur DV vilja leggja áherslur á þær góðu afleiðingar sem aukinn straumur útlendinga til landsins hafi. Ferðamenn geri Reykjavík kleift að halda út fjölbreyttari viðburðum og skemmtanalífi. „Nú er mjög neikvæð umræða í gangi um túrista. En þessi bylgja túrista hefur í raun breytt bænum í eitthvað. Miðbærinn var grautfúll staður þangað til fyrir nokkrum árum. Það var ekkert um að vera og enginn nennti að vera þar. Ég sakna þess ekki neitt. Nú eru kaffihúsin og veitingastaðirnir í blóma, grasrótin er líka í blóma því það er fjöldi fólks í bænum,“ segir Grímur. Njörður Sigurjónsson, lektor í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst, vill heldur ekki einblína á slæmar afleiðingar ferðamanna­ iðnaðarins. „Túrisminn er það sem gerir landið byggilegt í augnablikinu. Ekki bara peningalega heldur and­ lega, menningarlega. Við þurfum svo sárlega á öðru fólki að halda, til að fylla göturnar og kaffihúsin og búð­ irnar,“ segir hann. „Það er voða mikil nostalgía í kringum þessa umræðu, allt var svo frábært einu sinni og ef eitthvað breytist fer allt til helvítis, en svo einhvern veginn reddast hlutirnir og nýjar kynslóðir finna sinn eigin Glaumbæ og Sirkus. Við finnum annað húsnæði ef þarf, betra og skemmtilegra, og gerum eitthvað ennþá áhugaverðara en það sem er búið að gera. Eða þau, krakkarn­ ir sem hafa eitthvað að segja – svona lið eins og ég getur bara verið heima hjá sér. En ef það á að setja einhvern ramma utan um þetta, plan eða reglugerð, þá legg ég til að við byrjum á að banna trúbadorinn sem spilar á English og öllum hinum stöðunum. Þetta er komið gott hjá honum,“ segir Njörður. Jón Mýrdal, eigandi Húrra, tekur undir að ferðamannaiðnaðurinn og menningin séu ekki andstæður, þvert á móti geti Húrra, í krafti er­ lendra gesta, greitt djasstónlistar­ mönnum fyrir að koma fram á viku­ legum fríum tónleikum. Hann segir að á milli tvö og þrjú hundruð manns komi vikulega á tónleikana og um 60 prósent þeirra séu erlend. breytir bænum n Græðum á fámenninu Framhald á næstu síðu  Húrra fyrir túrista Þegar Stundin greindi frá óljósum hugmyndum lóðaeiganda um mögulegar breytingar á skemmtistöðunum Húrra og Gamla gauknum létu viðbrögðin ekki á sér standa.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.