Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Page 86

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2015, Page 86
42 Fólk Helgarblað 25.–27. júlí 2015 úrval nýrra og nýlegra sendibíla DCI 125 L2H2 3,5 HÁÞEKJU 2015 árgerð. Aukabún- aður í þessum bíl sem kostar aukalega í umboðinu er Skilrúm á milli vörurýmis og farþega = 55.000 - 270° opnun á afturhurðum kr. 99.000 - Loftkæling kr. 130.000 - Bakkskynjari kr. 100.000 - Stöðugleikakerfi - Spólvörn - USB tengi - Varadekk kr. okkar verð: 3.900.000 þús án vsk. (4.836.000 með vsk. ) Um 850 þús. undir listaverði. bíllinn er á staðnum á frábæru verði! renaUlT MasTer MillilangUr Þau dóu næstum í tökum n Í sumum tilfellum mátti vart tæpara standa n Heppni réð því að stundum fór ekki verr Þ að er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera Hollywood- leikari og stundum getur það jafnvel verið lífshættu- legt, sérstaklega fyrir þá sem leika sjálfir í áhættuatriðum. En slys- in geta líka átt sér stað í hefðbundn- um tökum og á tökustað. n  Varð næst- um því undir grjóthnullungi Við tökur fyrstu þáttaraðar Breaking Bad munaði litlu að illa færi þegar vindhviða feykti grjóthnullungi af þaki húsbíls. Nokkrum andartökum áður hafði Aaron Paul staðið þar sem steinninn lenti en hann hafði beðið leikstjórann um að taka atriðið upp frá öðru sjónarhorni og var því nýbúinn að færa sig þegar grjót- hnullungurinn skall á jörðina.  Hnakkurinn losnaði Johnny Depp komst heldur betur í hann krappan við tökur á myndinni The Lone Ranger þegar hann var geystist um á hestbaki og hnakkurinn losnaði. Hann féll ekki af baki, heldur hékk út á hlið á lausum hnakknum og dróst eftir jörðinni. Depp hefur sjálfur lýst atvikinu og því sem fór í gegnum huga hans í þessum aðstæðum. En hann varð að taka ákvörðun um hvort hann sleppti taki og kastaði sér í jörðina, eða biði eftir að því að hesturinn stigi á hann. Hann valdi fyrri kostinn en lenti undir hestinum sem einmitt á sama tímapunkti lyfti upp hófunum, þannig að Depp slapp með skrekkinn.  Fékk raflost Leikarinn Chevy Chase var næstum tekinn af lífi með raflosti við tökur á myndinni Modern Problems. Persónan sem hann lék var að dreyma að hún væri flugvél og Chase var því með lendingarljósabúnað á sér. Það fór ekki betur en svo að hann fékk raflost af búnaðinum og missti meðvitund um tíma.  Drukknaði næstum Litlu mátti muna að Gerard Butler drukknaði við tökur á myndinni Chasing Mavericks. Myndin gerist að miklu leyti á sjó og tökuliðið hafði töluverðar áhyggjur af öldugangi. Þær áhyggjur áttu greinilega rétt á sér því Butler drukknaði næstum því þegar hann lenti í einni öldunni og fór á kaf.  Myndavélin losnaði Eitt atriði í þáttunum Brady Bunch var tekið upp í rússíbana en áður en það var gert óskaði Robert Reed eftir að því rússíbaninn yrði prufukeyrður með tökuvélinni framan á tómum vagninum. Honum þótti uppsetningin á vélinni ekki traustvekjandi og hafði rétt fyrir sér því hún flaug af í prufunni. Ef einhver hefði verið í vagninum þá hefði getað farið mjög illa.  Missti meðvitund Michael J. Fox misreiknaði sig aðeins við tökur á myndinni Back to the Future 3 þegar hann var aðeins of lengi með snöru um hálsinn á sér og missti meðvitund í um 30 sekúndur.  Bremsurnar biluðu Jason Statham er aðallega þekktur fyrir leik sinn í hasarmyndum og við upptökur á einni slíkri, Expandables 3, munaði litlu að illa færi í einu atriðanna. Statham var að keyra stóran vöruflutningabíl þegar bremsurnar biluðu og hann keyrði beint út í Svartahaf. Mótleikari hans, Terry Crew, sagði að allir viðstaddir hefðu að sjálfsögðu orðið mjög skelkaðir og öskrað á Statham. Honum tókst hins vegar að komast út úr bílnum af sjálfdáðum og synda í land áður en bíllinn sökk niður á botn.  Festist í kafi Leikkonan Isla Fisher komst í hann krappan við tökur á myndinni Now You See Me. Einhverra hluta vegna festist hún þegar verið var að taka upp töfraatriði í tanki fullum af vatni. Hún var ofan í tankinum í handjárnum og komst ekki upp á yfirborðið fyrr en neyðarhnappur var notaður. Fisher var ansi hvekkt og þrekuð eftir atvikið og átti erfitt með halda tökunum áfram.  Stunginn með hníf Matthew Fox lét næstum lífið við tökur á þáttunum Lost, þegar mótleikari hans, Terry O'Quinn, stakk hann óvart með alvöru hníf í stað skaðlauss leikmunar. Fox var sem betur fer í hlífðarvesti sem gerði að verkum að hnífurinn stakkst ekki langt inn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.