Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Side 18
Áramótablað 29. desember 201518 Fréttir Innlendur fréttaannáll
samþykkir þar sem fiskveiðiauð-
lindum er ráðstafað til lengri tíma
en eins árs. Það er svipaður fjöldi og
skrifaði undir áskorun um að forset-
inn synjaði fjölmiðlalögunum stað-
festingar árið 2004.
8. maí
300 þúsund í
lágmarkslaun
Þingeyingar gefa tóninn í kjara-
málum þegar Aðalsteinn Baldurs-
son, verkalýðsforingi hjá Framsýn
á Húsavík, skrifar undir samninga
við 23 fyrirtæki á svæðinu. Þar er
kveðið á um 300 þúsund króna lág-
markslaun á samningstímanum. „Ég
gerði drög að samningi sem reyndist
eins og uppskrift hjá góðum bakara.
Hún fellur vel að öllum,“ sagði hann
hróðugur við DV.
12. maí
Smálánakóngar
mala gull
DV greinir frá því að fjögur smá-
lánafyrirtæki af þeim fimm sem eru
starfandi á Íslandi, hafi hagnast um
samtals 402 milljónir króna árin
2012 og 2013. Tveir aðilar eru skráð-
ir eigendur þessara félaga en þeir
hafa greitt sér tugi milljóna króna í
arð á tímabilinu. Starfsemi fyrir-
tækja sem bjóða smálán er afar um-
deild í samfélaginu.
13. maí
Ráðherra bakkar
Sjávarútvegsráðherra til-
kynnir starfsmönnum
Fiskistofu að hver
starfsmaður hafi val
um hvort hann hafi
starfsstöð á Akur-
eyri eða á höfuð-
borgarsvæðinu,
þvert á fyrri yfirlýs-
ingar. Áður höfðu
verið sagðar fréttir af
því að enginn starfs maður
ætlaði sér norður, þrátt fyrir
ívilnun sem átti að bjóða þeim sem
það gerðu.
16. maí
Bjarna sendur
fingurinn
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra greinir frá því í útvarpsviðtali
að ljós- og síðhærður strætóbílstjóri
hafi ítrekað flautað og sent honum
fingurinn eftir ríkisstjórnarfundi á
hveitibrauðsdögum hans í embætti.
18. maí
Laminn með stálröri
DV greinir frá því að þrír menn hafi
ráðist á einn og veitt honum alvar-
lega áverka um hábjartan dag við
Iðufell í Breiðholti. Stálrör var á
meðal þess sem notað var við
árásina. Um var að ræða
uppgjör vegna meintrar
fíkniefnaskuldar.
19. maí
Halldór látinn
Fjölmiðlar greina frá því
að Halldór Ásgrímsson,
fyrrverandi forsætisráðherra,
sé látinn. Halldór fékk hjartaáfall í
sumarhúsi sínu við Álftavatn og var
haldið sofandi í tvo daga áður
en hann lést.
19. maí
„Ég ældi út
um allt“
Ásmundur Einar
Daðason segist hafa
verið veikur í ferð utan-
ríkismálanefndar Alþingis
til Washington. Hann kastaði
upp yfir aðra flugfarþega og nokkur
sæti við salernisaðstöðu flug-
vélarinnar en DV bárust
ábendingar um að þing-
maðurinn hafi verið
illa haldinn af drykkju.
Hann vísaði því á bug.
„Ég er seinasti þing-
maðurinn sem á við
áfengisvandamál að
stríða.“ Fyrir liggur að
Ásmundur kastaði upp
á báðum leiðum, sem og í
ferðinni sjálfri. Hann leitaði sér
að sögn lækninga vegna maga-
vandamála þegar heim var komið.
23. maí
Buðu milljón og kynlíf
Arna Ýr Jónsdóttir, 19 ára, segir frá
því að hún hafi auglýst bílinn sinn
til sölu á bland.is. Í kjölfar-
ið hafi hún fengið mörg
dónaleg skilaboð
frá karlmönnum,
þar sem henni var
meðal annars boð-
in greiðsla í bílinn
með því skilyrði að
kynlíf fylgdi með.
„Einu alvöru tilboð-
in í bílinn hafa komið
frá konum og stelpum,“
sagði hún við DV. Síðar var Arna Ýr
kjörin ungfrú Ísland.
27. maí
Kalt í maí
Greint er frá því að maímánuður
hafi verið sá kaldasti í 36 ár, eða
frá árinu 1979. Á síðustu 70 árum
hafa aðeins þrír maímánuðir reynst
kaldari, en meðalhitinn var 4,1 stig.
29. maí
Grimmur og hjartalaus
Siguringi Hólmgrímsson,
25 ára, er dæmdur til sjö
ára fangelsisvistar af
dómstóli í Ástralíu,
fyrir tilraun til að
smygla kílói af
kókaíni til lands-
ins. Dómari í mál-
inu lýsir Siguringa
sem „grimmum“ og
„hjartalausum“ vegna
þess að hann reyndi að
koma sök á félaga sinn.
JÚNÍ
2. júní
Systur reyndu að kúga
forsætisráðherra
DV greinir frá því að systurnar Hlín
Einarsdóttir og Malín Brand hafi
verið handteknar, grunaðar um fjár-
kúgunartilraun á hendur forsætis-
ráðherra. Systurnar voru handtekn-
ar í Vallahverfi í Hafnarfirði þar sem
þær biðu fjárins. Þær játa að hafa
farið að heimili forsætisráðherra,
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
með handskrifað bréf þar sem þær
kröfðust peninga vegna upplýsinga
sem þær byggju yfir vegna meintra
KR flugeldaR
KR Heimilinu Frostaskjóli
Opið til kl.22 í dag
Og til kl.16 á gamlársdag