Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Side 20
20 Fréttir Innlendur fréttaannáll Áramótablað 29. desember 2015 liggi þar að baki. Lúsmýið reyndist hinn mesti skaðvaldur og voru margir sárir eftir atlögu þess, þar á meðal blaðamaður DV sem fann mýið í glugga í Kópavogi. 1. júlí Hjálmar sekur um einelti Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni 600 þúsund krón- ur í miskabætur vegna eineltis sem hann varð fyrir af hálfu Hjálmars Árna- sonar, framkvæmdastjóra Keilis og fyrrverandi þingmanns Framsóknar- flokksins. 2. júlí. Fallegir endurfundir Mikil gleðistund er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er palestínsk flóttakona sem dvalist hefur hér á landi sam- einast sonum sínum tveimur á ný. Mæðginin höfðu beðið um langa hríð eftir upplýsingum um hvort og hvenær þau yrðu sameinuð. 3. júlí Rök fyrir endurupp- töku Geirfinns- málsins Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkissaksóknari vegna endurskoðunar á Geirfinns- og Guðmundar- málunum, telur rök vera fyrir endurupptöku fjögurra sakborninga í málunum, þeirra Sævars Ciesielskis, Tryggva Rúnars Leifssonar og Alberts Klahns Skaftasonar. Saksóknarinn hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að rök væru fyrir því að taka upp mál Guðjóns Skarphéðinssonar en ekki Erlu Bolladóttur. Endurupp- tökunefnd tekur síðan ákvörðun um hvort málin verði tekin upp að nýju. Rúm 40 ár eru síðan Guðmundur Einarsson og Geirfinnur Einarsson hurfu sporlaust. 3. júlí Rannsakar samninga ríkisins við Sinnum Ríkisendurskoðun ætlar að ráðast í úttekt á samn- ingi sem Sjúkra- tryggingar Íslands (SÍ) og Landspít- alinn gerðu við Sinn- um ehf. árið 2011, og öðrum samning- um sem SÍ gerði við Sinnum og Heilsumið- stöðina ehf. fyrr á þessu ári, vegna reksturs einkarekna sjúkrahótels- ins við Ármúla í Reykjavík. Stofnun- in gerði forkönnun á samningunum í maí síðastliðnum, í ljósi mikill- ar umfjöllunar um rekstur hótels- ins, og ætlar að kynna niðurstöður úttektarinnar í skýrslu til Alþingis í febrúar á næsta ári. 7. júlí Skipsskaði á Vestfjörðum Fiskiskipið Jón Hákon fórst skammt utan Aðalvíkur. Einn maður lést en þremur var bjargað af kili skipsins. Maðurinn sem fórst hét Magnús Kristján Björnsson. Magn- ús Kristján var búsettur á Bíldudal og var var 61 árs gamall. 9. júlí Svona er bara lífið „Svona er bara lífið,“ seg- ir Eyjólfur Kristjánsson REKSTRAR- OG ÖRYGGISVÖRUR VERKTAKANS – Þekking og þjónusta í 20 ár Tunguhálsi 10 • www.kemi.is KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! Óskum landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þökkum við- skiptin á liðnu ári

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.