Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Blaðsíða 20
20 Fréttir Innlendur fréttaannáll Áramótablað 29. desember 2015
liggi þar að baki. Lúsmýið reyndist
hinn mesti skaðvaldur og voru
margir sárir eftir atlögu þess, þar á
meðal blaðamaður DV sem fann
mýið í glugga í Kópavogi.
1. júlí
Hjálmar sekur
um einelti
Keilir, miðstöð
vísinda, fræða
og atvinnulífs,
þarf að greiða
fyrrverandi
starfsmanni 600
þúsund krón-
ur í miskabætur
vegna eineltis
sem hann varð fyrir
af hálfu Hjálmars Árna-
sonar, framkvæmdastjóra Keilis og
fyrrverandi þingmanns Framsóknar-
flokksins.
2. júlí.
Fallegir endurfundir
Mikil gleðistund er í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar er palestínsk flóttakona
sem dvalist hefur hér á landi sam-
einast sonum sínum tveimur á ný.
Mæðginin höfðu beðið um langa
hríð eftir upplýsingum um hvort og
hvenær þau yrðu sameinuð.
3. júlí
Rök fyrir endurupp-
töku Geirfinns-
málsins
Davíð Þór Björgvinsson,
settur ríkissaksóknari
vegna endurskoðunar á
Geirfinns- og Guðmundar-
málunum, telur rök vera
fyrir endurupptöku fjögurra
sakborninga í málunum,
þeirra Sævars Ciesielskis, Tryggva
Rúnars Leifssonar og Alberts Klahns
Skaftasonar. Saksóknarinn hafði
áður komist að þeirri niðurstöðu
að rök væru fyrir því að taka upp
mál Guðjóns Skarphéðinssonar en
ekki Erlu Bolladóttur. Endurupp-
tökunefnd tekur síðan ákvörðun um
hvort málin verði tekin upp að nýju.
Rúm 40 ár eru síðan Guðmundur
Einarsson og Geirfinnur Einarsson
hurfu sporlaust.
3. júlí
Rannsakar samninga
ríkisins við Sinnum
Ríkisendurskoðun ætlar að ráðast
í úttekt á samn-
ingi sem Sjúkra-
tryggingar Íslands
(SÍ) og Landspít-
alinn gerðu við Sinn-
um ehf. árið 2011,
og öðrum samning-
um sem SÍ gerði við
Sinnum og Heilsumið-
stöðina ehf. fyrr á þessu ári, vegna
reksturs einkarekna sjúkrahótels-
ins við Ármúla í Reykjavík. Stofnun-
in gerði forkönnun á samningunum
í maí síðastliðnum, í ljósi mikill-
ar umfjöllunar um rekstur hótels-
ins, og ætlar að kynna niðurstöður
úttektarinnar í skýrslu til Alþingis í
febrúar á næsta ári.
7. júlí
Skipsskaði á
Vestfjörðum
Fiskiskipið Jón Hákon fórst skammt
utan Aðalvíkur. Einn maður lést en
þremur var bjargað af kili skipsins.
Maðurinn sem fórst hét Magnús
Kristján Björnsson. Magn-
ús Kristján var búsettur á
Bíldudal og var var 61
árs gamall.
9. júlí
Svona er
bara lífið
„Svona er bara lífið,“ seg-
ir Eyjólfur Kristjánsson
REKSTRAR- OG
ÖRYGGISVÖRUR
VERKTAKANS
– Þekking og þjónusta í 20 ár
Tunguhálsi 10 • www.kemi.is
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
Óskum
landsmönnum
öllum gleðilegs
nýs árs og
þökkum við-
skiptin á liðnu ári