Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Síða 38
Áramótablað 29. desember 20154 Völvuspáin 2016
búbót og við seljum mikið til Rúss
lands, loks þegar leyfi fæst til þess á
nýjan leik.
Þorskstofninn er sífellt stækk
andi en hefðbundnar deilur fiski
fræðinga og sjómanna blossa upp.
Þorskgengd er ævintýraleg en fiski
fræðingar rýna í tölfræðina. Mikill
þrýstingur verður á Hafró að auka
kvótann hressilega. Það gera þeir
ekki en engu að síður verður ein
hver aukning. Sjómenn verða ekki
fullsáttir við þá niðurstöðu.
Nýtt stórfyrirtæki á sviði sem er
framandi okkur Íslendingum leitar
hófanna og vill setja upp starfsemi
sína hér á landi. Þetta verður mikið
fréttamál þó að einungis sé um að
ræða viðræður um möguleika á að
hefja starfsemi.
Nýjar viðskiptablokkir mynd
ast á árinu og ná þar saman
á nýjan leik fyrrver
andi andstæðingar.
Orrustan um Ís
land eftir hrun
stendur sem
hæst á árinu.
Bygginga
iðnaður
inn glímir
við vaxtar
verki. Mikið
er flutt inn af
erlendu vinnu
afli og spretta upp
margvísleg átök af
því tilefni. Það er ein
faldlega ekki nóg til
í landinu af raf
virkjum, pípulagn
ingarmeisturum,
húsasmiðum og
múrurum, svo dæmi
séu tekin. Samt snúa
margir þeirra aftur frá
Noregi á árinu, enda
gullæðið á enda þar og
olíuverð í lægstu lægðum.
Samkeppniseftirlitið hnykl
ar vöðvana og mun grípa til
harðari aðgerða en áður hefur sést.
Stöndugt fyrir
tæki verður
klofið upp í ein
ingar og málið fer í
hendur lögreglu. Reiði
bylgja fylgir í kjölfarið. Hún
rís hátt en varir stutt.
En eftirlitið sjálft mun sæta
harðri gagnrýni á árinu. Forstjórinn
mun eiga í vök að verjast og mun
þurfa að standa fyrir máli sínu. Sú
málsvörn mun ekki styrkja stöðu
hans.
Seðlabankinn mun sæta vax
andi gagnrýni og þá sérstaklega
gjaldeyris eftirlitið. Þorsteinn Már í
Samherja hefur ekki sagt sitt síðasta
orð. Hann mun hefja herferð sína
gegn bankanum og vill að haus
ar fjúki. Átökin verða langvinn og
málaferli eru á næsta leiti. Óháð
ur aðili verður skipaður til að fara
yfir vinnubrögð bankans með
sérstaka áherslu á
gjaldeyriseftirlitið.
Embættismenn
verða í kast
ljósi fjölmiðla
og manna
breytingar
eru í kort
unum hjá
bankanum.
Þó mun Már
bankastjóri
sitja sem fast
ast. En hann mun
fá tvo bankastjóra
sér við hlið sem stjórnar
flokkarnir verða ánægðir með.
Vaxtalækkunarferli hefst óvænt á
vormánuðum. Það stendur fram á
sumar en þá mun dæmið snúast við
þegar verðbólga fer á skrið. Þensla
verður illviðráðanleg síðari hluta
árs, enda elska Íslendingar dýrtíðina
og vilja ekkert frekar en vertíðar
stemningu í þessum efnum sem
öðrum.
Eldsumbrot
undir ís
Náttúran er alltaf í aðalhlutverki á
landinu okkar. Eldsumbrot verða
undir jökli. Völvan nær ekki að
greina umfang en haustið er sá
tími sem henni finnst jörð opnast
undir miklu fargi af ís. Jarð
skjálftahrina mun lengi
vel hrista Suðurland
og miðhálendið áður
en krafturinn leys
ist í læðingi. Mikið
jökul vatn mun
hlaupa fram en
á óbyggðu landi.
Rafmagn mun fara
af og bæir einangr
ast en mannskaði
verður ekki. Umbrotin
standa ekki lengi.
Hafsbotn mun skjálfa
um langa hríð úti fyrir Reykjanesi.
„Svo djúpt sé ég ekki að vita hvort
eldur brýtur sér leið í gegnum jarð
skorpuna. En mikið gengur á og
munu sjómenn greina margvísleg
merki.“
Jarðvísindamenn verða áber
andi á árinu. „Magnús Tumi og
Ármann Höskuldsson verða oft í
fréttatímanum. En þeir verða ekki
alltaf sammála og ekki mun öllum
líka þær spár sem Ármann mun
setja fram um aðsteðjandi
hættur,“ segir hún.
Nýtt hverasvæði
mun líta dagsins ljós
á Norðurlandi. Þetta
mun verða mikið
sjónarspil á vor
dögum og hætta
steðjar að mönnum.
Erlendir fjölmiðlar
fagna, enda er þetta
myndefni sem allar
sjónvarpsstöðvar í ver
öldinni vilja sýna áhorfend
um sínum á besta tíma.
Dýralíf verður oft í fréttum. Ref
fækkar og skýrist það af einhverri
pest sem leggst á dýrin.
Ísbjörn gengur á land á Horn
ströndum. Dýrsins verður leitað um
nokkra hríð og á endanum finnst
það og verður skotið. Helmingur
þjóðarinnar mun syrgja það mjög.
Rostungur mun sjást við Austfirði en
hann stoppar ekki lengi. Hefur vit á
að forða sér.
FálkaEggja-
þjóFar
Enn eitt met verður slegið í fjölda
ferðamanna. Ísland er í tísku. Þess
ir gríðarlegu vaxtarverkir taka toll.
Slysum fjölgar mikið og á ís
lenskan mælikvarða
munu margir ferða
menn ekki eiga aft
urkvæmt. Bílslys
verða flestum
að aldurtila.
Mannskætt
rútu slys verður
á Suðurlandi
um hásumar.
Vegirnir þola
ekki allan þenn
an fjölda og margir
útlendingar eiga erfitt
með þrönga íslenska
sveitavegi.
En hluti af góðærinu er þeir
miklu fjármunir sem fylgja öllum
þessum ferðamönnum. Sífellt
Hjólar í bankann Þorsteinn Már
Baldvinsson hefur ekki sagt sitt síðasta
orð í samskiptum við Seðlabankann.
TERTUR
PAKKAR
RAKETTUR
SMÁVARA
OPNUNARTÍMAR
28.- 29.- 30. des. 10–22
31. desember 9–16
www.stjornuljos.is