Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Page 49
Áramótablað 29. desember 2015 Kynningarblað - Komdu með í … gamlárspartí 7
Vinalegt áramótastuð
á Den Danske Kro
D
anska kráin, eða Den
Danske Kro, Ingólfsstræti
3, keyrir upp áramóta-
stemninguna með því að
hafa opið á gamlársdag
eins og á venjulegum degi og á
nýársnótt eins og um helgi væri að
ræða. Hefðbundin dagskrá staðar-
ins er fínasta uppskrift að afslapp-
aðri áramótagleði.
Staðurinn verður opnaður á há-
degi og gleðistundin – eða Happy
Hour – er í gangi milli kl. 16 og 19.
Búast má við því að það smáfjölgi
á staðnum eftir því sem nær dreg-
ur áramótunum en áramótaskaup-
ið verður sýnt á staðnum.
„Hérna hittist alls konar fólk og
horfir saman á skaupið, fer síðan
út og kíkir á flugeldana þegar þeim
er skotið upp rétt eftir miðnættið,
kemur svo inn aftur og skemmtir sér
saman um nóttina,“ segir Melkorka
Bjartmarz, einn eigenda Den Danske
Kro, en staðurinn er meðal annars
þekktur fyrir mikla lifandi tónlist.
„Lifandi tónlist byrjar hjá okkur
á slaginu 12 en þá treður upp
trúbador sem kemur öllum í ekta
nýársskap og það verður dansað
af hörku fram undir morgun,“ segir
Melkorka.
Den Danske Kro er þekkt fyrir
vinalega stemningu og glaðvært
starfsfólk staðarins smitar við-
skiptavini af lífsgleði sinni. Hinn
vinalegi gleðiandi Den Danske
Kro mun væntanlega ná hámarki á
nýársnótt.
Den Danske Kro – Danska kráin
– óskar öllum landsmönnum gleði-
legs nýárs! n