Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Side 52
Áramótablað 29. desember 201510 Komdu með í … gamlárspartí - Kynningarblað
Bryggjan Brugghús:
Glæsilegur nýársfagnaður framundan
Þ
etta er búið að vera algjört
ævintýri frá því við opnuðum
þann 5. nóvember. Við stört-
uðum með risa Airwaves-
dagskrá og þar fóru öll okkar
plön um að opna hægt og rólega og
fara mjúklega inn í jólin út um glugg-
ann, því um leið og fólk kemur hing-
að og sér hvað þetta er flott hérna þá
lætur það aðra vita og það er búið að
vera fullt hús hjá okkur frá opnun.“
Þetta segir Ásgeir Guðmundsson,
viðburðastjóri hjá Bryggjunni Brugg-
húsi, sem var opnað á hafnarsvæð-
inu við miðbæinn í byrjun nóvem-
ber og hefur slegið rækilega í gegn.
Framundan er glæsilegur nýársfagn-
aður á Bryggjunni Brugghúsi á ný-
ársdag sem að þessu sinni ber upp á
föstudag.
„Þetta verður í fínni kantinum,
svona eins og þekktist hér áður fyrr,“
segir Ásgeir.
Forsala er á nýárfagnaðinn á miði.
is. Á nýársfagnað með dansleik kostar
28.000 krónur. Innifalið í verðinu er
fordrykkur og sjö rétta hátíðarmat-
seðill með vín- og bjórpörun, en þar
er valinn drykkur sem hentar hverj-
um rétti; skemmtiatriði undir borð-
haldi, en þar kemur fram tónlistar-
fólkið Sigríður Thorlacius, Valdimar
Guðmundsson og Bjartey og Gígja úr
Ylju, en Hugleikur Dagsson fer með
gamanmál; hljómsveitin Hjálmar
leikur síðan fyrir dansi frá kl. 22.30 en
húsið verður opnað kl. 18.
Hægt er að kaupa miða eingöngu
á dansleikinn en þeir eru þó ekki ýkja
margir í boði. Miði á dansleik ein-
göngu kostar 6.000 krónur.
„Föstudagskvöld hentar vel fyrir
nýársfagnað því það er frí hjá flestum
daginn eftir og fólk ætti að geta sofið
út. Aldurstakmark er 22 ár. Nú þegar
er búið að kaupa um helming mið-
anna sem eru til sölu á nýársfagn-
aðinn og þær pantanir gefa til kynna
að gestir verði á aldursbilinu 25 til 50
ára. Þetta eru mikið vinahópar en líka
pör,“ segir Ásgeir.
„Það verða 150 manns í veisl-
unni sjálfri en síðan bætast við 100
á dansleikinn. Við viljum hafa þetta
flott og vinalegt í senn, ekki of stóran
hóp,“ bætir hann við.
Sem fyrr segir er miðalsala á miði.
is en upplýsingar um matseðil og
fleira er að finna á Facebook-síðu
Bryggjunnar Brugghúss. n