Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Page 65

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Page 65
snýr aftur á spítalann í samskonar göngu á milli sömu deilda, þá er það jafnan látið draga upp greiðslukort á hverjum þessara staða, hverri einustu deild þar sem stoppað er og rukkað um háar upphæðir. Nákvæmlega þarna, þegar lífið er því að öðru leyti sem örðugast, fullt óvissu og kvíða. Á þennan hátt, og með fleiri aðgerð­ um sem tilheyra veikindunum, er fólk kannski látið reiða fram meira en milljón krónur á eins eða tveggja ára tímabili, þegar veikindin herja sárast. Jafnvel ekki í Bretlandi Svona er þetta. Og þetta getur ekki gengið. Svona eru ekki velferðarsam­ félög. Annars staðar á Norðurlöndum er þetta að sjálfsögðu ekki svona; fár­ veikt fólk er þar ekki látið draga upp veskið ef það hrekst inn á spítala. Og svona er þetta ekki bara á Norð­ urlöndum, sem eru þekkt fyrir sína velferð. Alltaf er verið að tala um að Margaret Thatcher hafi rústað vel­ ferðarkerfinu í Bretlandi, og að hinn skelfilegi Blair hafi jafnvel bætt um betur, en samt er það enn sem fyrr svo að ef fólk í Bretlandi veikist af til dæmis krabbameini, þá er það tekið inn í spítalakerfið og veitt með­ höndlun án þess að vera látið strauja öll sín kort. Ef einhver ætlar að segja að við höfum ekki efni á að breyta þessu rangláta og mannfjandsamlega kerfi, þá ætla ég að benda á að ný­ lega var ákveðið að veita 80 milljörð­ um af opinberu fé í hina svokölluðu skuldaleiðréttinu. Og það vita allir að drjúgur hluti alls þess fjár renn­ ur til fólks sem er í góðum málum á okkar mælikvarða; skuldar tiltölu­ lega lítið, miðað við sína eignastöðu, skuldar jafnvel ekki neitt – sumt af því fór til fólks sem átti fyrir meira en hundrað milljónir í hreinni eign. All­ ir vita að stór hluti þeirra sem fengu leiðréttingu finnur þrátt fyrir hana enga merkjanlega breytingu á lífs­ afkomu sinni og sinna. Og nær hefði verið að láta brot af þessu fé nýtast til þess að hætta að láta kvíðafullt fólk í nauðum greiða fyrir þá lækningu og umönnun sem alltaf hefur þótt sjálf­ sagt að veita sjúkum. Og ef einhver stjórnmálahreyfing fer ekki að setja þetta mál á oddinn þá þarf að stofna þannig flokk. Forsetinn í Úrúgvæ, og víðar … Nú eru áramót, og næsta vor verða forsetakosningar hér á landi. Þeir fimm einstaklingar sem gegnt hafa forsetaembættinu frá stofnun lýð­ veldisins eru allir mikið sómafólk, en samt hefur alltaf verið eitthvað hálf hallærislegt við þessa stöðu. Hún er auðvitað næsta valdalaus samkvæmt stjórnarskrá, enda svar Íslendinga við þeim konungs­ og drottningaremb­ ættum sem enn eru látin halda sér vegna hefðar í nágrannalöndun­ um, en hafa fyrir löngu misst sitt gamla formlega hlutverk, að stjórna ríkinu. Rétt eins og utanríkisþjónusta okkar nýja og fátæka lýðveldis var á sínum tíma löguð að siðum, um­ búnaði og hefðum stærri ríkja og þeim aðalsættum sem lengi höfðu haft einkarétt á að gegna embættum ambassadora, þá hefur forsetaemb­ ættið hér alltaf lifað í hættunni við að vera fyrst og fremst upp á punt; í seinni tíð hafa menn þó farið að tala um það hlutverk forseta að fara með móralska forystu fyrir þjóðinni. Og þá varð mér hugsað til José Mujica, sem var forseti í Úrúgvæ frá 2010 og þar til fyrr á þessu ári. Eins og margir vita, þá var það maður sem í sínu embætti hreykti sér á engan hátt, bjó sparlega, keyrði gamlan Fólksvagen, gaf 90% af sínum laun­ um til góðgerðamála. Og honum tókst að veita þjóð sinni móralska forystu, um það er ekki deilt; boð­ skapur hans var jafnan skýr, um frið, jöfnuð og náungakærleik. Minnir óneitanlega á fræg dæmi úr fortíð­ inni: ekki var það ytri umbúnaður sem dró athygli fólks að Kristi, eða Mahatma Gandí, Tómasi af Assisí sem talaði við fugla, eða Guðmundi okkar góða Hólabiskupi. Mörgum finnst svona tal vera billegur popúl­ ismi, en mér sýnist hins vegar að fólk í veröldinni vilji í æ ríkari mæli heyra boðskap manna og kvenna sem sýna í verki að þeim sé annað mikilvægara en vegur og hátign sjálfs sín. Franz páfi, frá nágrannalandi Úrúgvæ, Argentínu handan La Plata fljótsins, hefur gerbreytt afstöðu fólks til páfa­ dómsins og kaþólsku kirkjunnar á undrastuttum tíma, og einmitt með auðmýkt sinni og áherslu sinni á samúð í garð olnbogabarna heims­ ins. Hvað sem verður úr væntanleg­ um kosningum og hverju sem völva Vikunnar spáir, þá mun verða hlustað á þann einstakling sem býður sig fram og hefur sýnilega lært af svona fordæmum. n Áramótablað 29. desember 2015 Umræða 37 Betra grænmeti Betra kjöt Betri ávextir Fyrst og fremst... þjónusta Magnús Geir Þórðarson „Með hliðsjón af svona staðreyndum verða menn að leita lausna, en ekki með því að æpa bara á útvarpsstjóra að ef stofnun hans eigi við vandamál að stríða þá skuli hann gjöra svo vel að leysa þau sjálfur.“ Mynd SiGtryGGur Ari Landspítalinn „Veikist nú fólk, segjum frískur og fullvinnandi einstaklingur, jafnvel með börn á framfæri, af alvarlegum sjúkdómi tekur að sjálfsögðu við mikil og erfið þrautaganga.“ Mynd SiGtryGGur Ari „Og nær hefði verið að láta brot af þessu fé nýtast til þess að hætta að láta kvíða- fullt fólk í nauðum greiða fyrir þá lækningu og um- önnun sem alltaf hefur þótt sjálfsagt að veita sjúkum. Og ef einhver stjórnmálahreyfing fer ekki að setja þetta mál á oddinn þá þarf að stofna þannig flokk. Franz páfi „Hefur gerbreytt afstöðu fólks til páfadómsins og kaþólsku kirkjunnar á undra- stuttum tíma, og einmitt með auðmýkt sinni og áherslu sinni á samúð í garð olnbogabarna heimsins.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.