Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Side 71
Fréttir 43Áramótablað 29. desember 2015
HRYÐJUVERKAÓGN, UMSÁTUR OG FÁRVIÐRI
Synti í land Lítil flugvél hrapaði
í sjóinn við Leirvogstungu í Mosfellsbæ.
Flugmaðurinn slapp með skrekkinn og synti
sjálfur í land. Mynd Sigtryggur Ari
Slys við Reykdals-
stíflu Betur fór en á horfðist þegar tveir
drengir, bræður, festust í fosshyl undir
Reykdalsstíflu í Hafnarfirði. Piltarnir, og
maður sem reyndi að bjarga þeim,
björguðust með naumindum. Mynd Sigtryggur Ari
Stjórn SPRON fyrir dómi Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara
gegn fyrrverandi forstjóra og stjórnarmönnum SPRON hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í
júníbyrjun. Allir ákærðu voru sýknaðir af því að hafa veitt Exista tveggja milljarða lán án
trygginga. Mynd Sigtryggur Ari
Sýknaðir af hópnauðgunarákæru Fimm piltar voru síðla
árs sýknaðir af ákæru um hópnauðgun í íbúð í Breiðholti. Einn þeirra var sakfelldur fyrir að gera
myndskeið af verknaðinum. Niðurstaðan vakti talsverð viðbrögð í samfélaginu. Mynd Sigtryggur Ari
Viðskiptabann á Ísrael Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti umdeilda
tillögu um að sniðganga ísraelskar vörur í september. Ákvörðunin var að lokum dregin til baka
eftir nokkurt þóf. Borgarstjóri sagði ákvörðunina hafa verið illa undirbúna. Mynd Sigtryggur Ari
Leitað að Herði
Björnssyni Björgunarsveitir hófu í
október ítarlega leit að Herði Björnssyni, 25
ára. Einkanlega var leitað í Laugarnesi og í
Hveragerði. Hörður er ófundinn þegar þetta
er ritað. Mynd Sigtryggur Ari
Perlan í kafi Dæluskipið Perla sökk í Reykjavíkurhöfn eftir að hafa verið í slipp.
Brösuglega gekk að ná skipinu á flot, en það hafðist þó eftir nokkrar tilraunir, tveimur vikum
eftir að skipið sökk. Mynd Sigtryggur Ari
Friða hálendið
Andri Snær Magnason og Björk Guðmunds-
dóttir héldu í nóvember blaðamannafund til
þess að vekja athygli á nauðsyn þess að
friða hálendi Íslands gegn frekari
virkjunaráfomum. Fundinn héldu þau í
kjölfar yfirlýsinga Camerons, forsætisráð-
herra Bretlands, og Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar um áform um sölu á
rafmagni til Bretlandseyja um sæstreng.
Mynd Sigtryggur Ari
Flugslys á Reykjanesi Tveir menn létust í flugslysi í hrauni á
Reykjanesskaga þann 12. nóvember síðastliðinn. Mynd Sigtryggur Ari
Djúpar lægðir Tvær kröftugar lægðir fóru yfir landið í desemberbyrjun. Sú fyrri
með mikilli ofankomu en hin seinni með meiri vindhraða en mælst hafði um árabil. Mynd Sigtryggur Ari
Ásta Kristín sýknuð Ásta Kristín Andrésdóttir var í desember sýknuð af ákæru um manndráp af gáleysi í störfum
sínum sem hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum. Fagnaðarlæti brutust út í dómsal þegar dómurinn var kveðinn upp. Saksóknari áfrýjaði
ekki. Mynd Sigtryggur Ari