Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2015, Page 78
Áramótablað 29. desember 201550 Sport
Ár strÁkanna
okkar
n Karlalandsliðin í körfubolta
og fótbolta stálu senunni
n Handboltaliðið rétti úr kútnum
Ísland komst á stórmót Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér á
árinu sæti í lokakeppni EM, sem fram fer í Frakklandi næsta sumar. Sterkum útisigri gegn Kasökum í mars var fylgt
eftir með sætum heimasigri á Tékkum í júní. Staðan var orðin vænleg því Ísland var á toppi riðilsins. Íslendingar
stóðu á öndinni í september þegar liðið hélt til Hollands. EM var innan seilingar. Aftur vannst frækinn sigur, nú á
bronsliðinu af HM árið áður. Sigurinn þýddi að íslenska liðinu nægði jafntefli í síðasta heimaleiknum jafnvel þó að
útileikur við Tyrki væri svo eftir. Jafntefli þurftu þeir og jafntefli gerðu þeir í bragðdaufum leik við Kasaka. Íslenskt
A-landslið var í fyrsta sinn í sögunni komið á stórmót í knattspyrnu karla. Hollendingar sátu eftir með sárt ennið.
Ísland lauk keppni í riðlinum með afar naumu tapi gegn Tyrkjum úti, en úrslitin skiptu Tyrki – sem voru í sárum eftir
hryðjuverk – meira máli. Þeir tryggðu sér með sigrinum beint sæti á EM, vegna hagstæðra úrslita í öðrum riðlum.
Hetjan og skúrkurinn Í vor stóð
Jose Mourinho uppi sem sigurvegari með lið sitt, Chelsea, í ensku
knattspyrnunni. Hann hafði lofað stuðningsmönnum titli og hann
fengu þeir. Chelsea vann deildina með miklum yfirburðum en liðið
tapaði aðeins þremur leikjum á leiktíðinni. En skjótt skipast veður
í lofti. Eftir aðeins að hafa aðeins fengið 15 stig í 16 leikjum í haust
fékk Roman Abramovic eigandi nóg að sparkaði sínum manni.
Frábært ár hjá Eygló Eygló Ósk Gústafsdóttir varð í þriðja sæti á Evrópumótinu í
sundi í 25 metra laug í byrjun desember, þegar hún sló eigin Íslandsmet í 100 og 200 metra baksundi. Eygló var valin
íþróttamaður Reykjavíkur í desember, en á árinu hefur hún einnig synt í úrslitum á HM í sundi, sett Norðurlandamet
og náð lágmörkum á Ólympíuleikana í Ríó í 100 og 200 metra baksundi.
Laminn sundur og saman
Bardagakappinn Gunnar Nelson barðist í júlí við Brandon Thatch. Sá
gafst upp í fyrstu lotu í bardaga sem fram fór í Las Vegas í Banda-
ríkjunum. Gunnar mætti svo Demian nokkrum Maia núna í desember
og tapaði frekar illa. Hann átti aldrei möguleika og var langt frá sínu
besta. Maia veitti Gunnari á annað hundrað höfuðhögg í bardagan-
um, sem varð aldrei spennandi.
Unnu allt Ekkert lið stóðst
Barcelona snúning á árinu. Liðið vann
Meistaradeild Evrópu eftir úrslitaleik
gegn Juventus í vor, spænsku deildina auk
spænska bikarsins. Liðið kórónaði svo árið
með því að verða heimsmeistari félagsliða
nú í desember. Erfitt er að sjá lið í Evrópu
sem getur velgt spænska stórveldinu undir
uggum en vart þarf að taka fram að liðið er
á toppi deildarinnar.
Þrír leikir – þrír sigrar Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í knattspyrnu hófu
undankeppni EM 2017 af krafti. Þær unnu Hvít-Rússa 2-0 á Laugardalsvelli í september og Makedóníu 4-0 ytra í
október. Nokkrum dögum síðar, í Slóveníu, vannst 6-0 sigur. Liðið er því með fullt hús stiga og markatöluna 12-0, eftir
þrjá leiki. Næsti leikur verður við Hvít-Rússa ytra en í júní mætast stelpurnar efsta liðinu, Skotlandi.
FH og Breiðablik meistarar
FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í Pepsi-deild karla með nokkuð
sannfærandi hætti. Blikar voru það lið sem komst næst þeim en fyrir
síðustu umferðina varð ljóst að ekkert lið gæti náð FH að stigum.
Valsarar urðu bikarmeistarar eftir sætan 2-0 sigur á KR-ingum, sem
gengu snauðir frá keppnistímabilinu. Í kvennaboltanum báru Blikar
höfuð og herðar yfir andstæðingana og fóru taplausir í gegnum
mótið. Í bikarnum mættust Stjarnan og Selfoss, annað árið í röð – og
annað árið í röð vann Stjarnan. Í þetta sinn var Harpa Þorsteinsdóttir
hetja Garðbæinga þegar hún skoraði sigurmarkið á 87. mínútu.
Tíu meta mót
Sundkonan Kristín Þorsteinsdóttir setti
tvö heimsmet og átta Evrópumet á EM í
sundi einstaklinga með downs-heilkenni.
Þátttakendur á mótinu voru 107 talsins
frá 20 löndum en Kristín stóð af sér mikla
samkeppni í sínum greinum. Hún vann
til fimm gullverðlauna auk þess að vinna
silfurverðlaun og bronsverðlaun.
Bestur í golfi
Hinn 21 árs gamli Jordan Spieth vann sigur
á Mastersmótinu í gólfi sem fram fór í apríl.
Spieth lék aá 18 höggum undir pari og vann
mótið með fjórum höggum. Justin Rose og
Phil Mickelson urðu jafnir í næstu sætum.
Spieth er næstyngsti kylfingurinn sem
vinnur Masters. Hann gerði sér svo lítið fyrir
og vann að auki Opna bandaríska meistara-
mótið sem fram fór í júlí.
m
y
n
d
e
pa
m
y
n
d
e
pa
m
y
n
d
þ
o
r
m
a
r
v
ig
n
ir
m
y
n
d
þ
o
r
m
a
r
v
ig
n
ir
m
y
n
d
r
ú
v
m
y
n
d
s
ig
tr
y
g
g
u
r
a
r
i
m
y
n
d
s
ig
tr
y
g
g
u
r
a
r
i
m
y
n
d
e
pa