Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Síða 8
8 Fréttir Vikublað 28.–29. apríl 2015 Launakrafan langt frá því að duga fyrir framfærslu n 300 þúsund króna lágmarkslaun hrökkva skammt n Vantar enn 150 þúsund miðað við opinber við- K rafa verkalýðshreyfingarinn­ ar í yfirstandandi kjaravið­ ræðum um 300 þúsund króna lágmarkslaun innan þriggja ára er langt frá því að duga fyrir dæmigerðu framfærslu­ viðmiði velferðarráðuneytisins að viðbættu meðalleiguverði í Reykja­ vík. Láglaunamann, sem hækkar upp í 300 þúsund krónur í heildar­ laun á mánuði, vantar enn rúmar 150 þúsund krónur upp á til að ná opinberum viðmiðum. Eina leiðin til að eiga afgang af þeim launum sem krafan hljóðar upp á er ef mið­ að er við algjört grunnviðmið ráðu­ neytisins og ef að húsnæðiskostn­ aður er ekki hærri en um hundrað þúsund krónur á mánuði. Fram­ kvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands segir þetta sýna í raun hversu hófsamar kröfur sambandsins eru. Fá 228 þúsund útborgað Harpa Njálsdóttir, sérfræðingur í velferðarrannsóknum og félagslegri stefnumótun, velti upp þeirri spurn­ ingu í grein í Morgunblaðinu um helgina hvort launakrafa verkalýðs­ forystunnar dygði fyrir mannsæm­ andi framfærslu. Með greininni birti Harpa töflu með útreikningum sem sýna að svo sé ekki. DV birtir hér sína eigin sambærilegu útreikninga þar sem gert er ráð fyrir heldur hófstillt­ ari útgjöldum til húsaleigu en Harpa gerir í grein sinni. Húsnæðiskostn­ aður sem DV gerir ráð fyrir byggjast á upplýsingum um meðalleiguverð á hvern fermetra í Reykjavík sam­ kvæmt leigugagnagrunni Þjóðskrár. Er þá miðað við íbúð sem staðsett er einhvers staðar á milli Kringlu­ mýrarbrautar og Reykjanesbrautar. Einstaklingur sem fær 300 þús­ und krónur í heildarlaun á mánuði fær um 228.478 krónur útborgaðar eftir skatta, greiðslur í lífeyrissjóð og stéttarfélag. Dæmigert og grunnviðmið Hinar opinberu upplýsingar sem við höfum til að miða við er að finna í framfærslureiknivél á vef velferð­ arráðuneytisins. Þar getur þú fund­ ið bæði dæmigert og grunnviðmið einstaklings og fjölskyldna sem sjá má í meðfylgjandi töflum. Sé miðað við hið dæmigerða viðmið velferðarráðuneytisins fyr­ ir barnlausan einstakling á höfuð­ borgarsvæðinu er gert ráð fyrir að heildarútgjöld hans á mánuði, án húsnæðiskostnaðar, sé 234.564 krónur. Sáralítið óhóf er að finna í þeim útreikningum en sé miðað við algjört grunnviðmið, byggt á tals­ verðri naumhyggju, þá þarf sami að­ ili 99.758 krónur á mánuði. En fólk þarf þak yfir höfuðið. Ef þú leigir tveggja herbergja íbúð í austur­ bæ Reykjavíkur getur þú vænst þess að greiða að minnsta kosti 123 þús­ und krónur fyrir hana á mánuði mið­ að við meðalleiguverð í Reykjavík á vef Þjóðskrár. Að viðbættum hita, rafmagni og greiðslum í hússjóð gæti heildarupphæðin numið rúmlega 149 þúsund krónum. Dæmigerða viðmiðið er því komið upp í 383.684 en grunnviðmiðið 248.878. Þegar haft er í huga að viðkomandi er með aðeins 228 þúsund krónur í útborg­ uð laun er auðvelt að sjá að talsvert vantar enn upp á. Grasrótin taldi 300 þúsund duga Má því velta fyrir sér hvort kröf­ ur verkalýðshreyfingarinnar hefðu hreinlega mátt vera hærri, enda hef­ ur Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands (SGS), látið hafa eftir sér að þar á bæ hefðu menn fundið út að fólk þyrfti 300 þúsund að lágmarki til að fram­ fleyta sér, en þá gæti það reyndar ekki leyft sér neitt. „Grundvöllur okkar krafna eru kröfur sem félögin sjálf setja fram á sínum félagsfundum. Þetta er það sem fólk taldi sig geta farið fram með og taldi sig þurfa. Það er eina viðmið­ ið. Síðan förum við að móta þess­ ar kröfur sem koma frá grasrótinni við framfærsluviðmið og það rímar ágætlega við það,“ segir Drífa í sam­ tali við DV. Hún bendir á að það sé mjög breytilegt hver útgjöld fólks vegna húsnæðis séu. „Þegar ég var að máta þetta skellti ég 100 þúsund krónum í húsnæðis­ kostnað og fékk út í kringum 300 þúsund kall fyrir einstakling. En það er mjög breytilegt hvar á landinu þú ert. Þessar kröfur eru frá fólki á landsbyggðinni sem við erum að fara fram með,“ segir Drífa aðspurð um málið. DV setti því líka inn til gam­ Þetta segir ríkið að þú þurfir Miðað við einn fullorðinn, barnlausan einstakling á höfuðborgarsvæðinu. Útgjaldaflokkar Dæmigert viðmið Grunnviðmið Neysluvörur Matur, drykkjarvörur, aðrar dagvörur til heimilishalds 43.587 kr. 43.587 kr. Föt og skór 14.328 kr. 9.054 kr. Heimilisbúnaður 7.406 kr. 741 kr. Raftæki og viðhald raftækja 4.709 kr. 471 kr. Samtals 70.030 kr. 53.852 kr. Þjónusta Lyf, lækningavörur og heilsugæsluþjónusta 9.082 kr. 9.082 kr. Sími og fjarskipti 11.481 kr. 9.415 kr. Menntun og dagvistun 1.068 kr. 1.068 Veitingar 12.465 kr. 0 kr. Önnur þjónusta f. heimili 5.083 kr. 3.812 kr. Samtals 39.179 kr. 23.377 kr. Tómstundir Tómstundir og afþreying 38.985 kr. 13.229 kr. Samgöngur Ökutæki og almenningssamgöngur 74.131 kr. 9.300 kr. Annar ferðakostnaður 12.239 kr. 0 kr. Samtals 86.369 kr. 9.300 kr. Heildarútgjöld án húsnæðiskostnaðar 234.564 kr. 99.758 kr. Upplýsingar úr reiknivél fyrir neysluviðmið af vef velferðarráðuneytisins. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Kröfurnar hófsamar og varfærnar Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS, segir að kröfur sambandsins byggist á kröfum grasrótarinnar sem hafi talið sig geta farið fram með og lifað á 300 þúsund króna lágmarkslaunum. Opinber viðmið segja hins vegar annað. „Það er alltaf að koma betur í ljós að þetta eru hófsamar, skynsamar og varfærnar kröfur. Þær eru það, þó að þeir súpi hveljur yfir þessu Nýr Skoda Roomster eftirársbíll Þennan er hægt að nota bæði sem sendibíl og fjölskyldubíl en er samt á lægra verði en 2ja sæta sendibíll. Hægt að fjarlægja aftursæti í þremur hlutum á ca. 1 mínútu. Eyðsla í blönduðum akstri aðeins 5 lítrar. Langt undir listaverði á 2.990 þús. með vsk. ←

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.