Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Qupperneq 25
Vikublað 28.–29. apríl 2015 Garðurinn 7 Lappset-útileiktækin hafa sannað sig á Íslandi Jóhann Helgi & co ehf. býður upp á heildarlausnir fyrir leiksvæði J óhann Helgi & co ehf. var stofnað sem verktakafyrirtæki í skrúðgarðyrkju árið 1990 þegar Jóhann Helgi Hlöðversson út- skrifaðist sem garðyrkjumaður frá Garðyrkjuskóla ríkisins. Heildarlausnir á leiksvæðum Árið 1994 hóf fyrirtækið innflutn- ing á Lappset-útileiktækjunum frá Finnlandi. Lappset er einn af þrem- um stærstu framleiðendum úti- leiktækja í Evrópu og er selt í yfir 40 löndum um allan heim. Lapp- set hefur sannað sig vel á Íslandi og býður allt að 20 ára ábyrgð á sínum tækjum. Í dag leggur Jóhann Helgi & co ehf. áherslu á heildarlausnir á leik- svæðum og býður upp á aðstoð við úrvinnslu hugmynda, uppsetningu tækja og viðhald þeirra. „Við erum með yfir 30 umboð af ýmsum vöruflokkum eins og t.d. úti- leiktækjum, gervigrasi, girðingum, gúmmíhellum, gúmmígrasmott- um, bekkjum, reiðhjólagrindum og vörum fyrir götur og torg, ásamt vöru fyrir íþróttasvæði og inn á skóla og leikskóla,“ segir Jóhann Helgi. Gervigras í garðinn „Við flytjum inn og þjónustum Five star-gervigrasið frá Hollandi,“ segir Jóhann Helgi. „Í Hollandi er mjög algengt að fólk noti gervigras á einkalóðir í stað venjulegs grass og þarf þess vegna ekki að hugsa eins mikið um viðhald eins og slátt og hirðingu.“ Grasið er framleitt í mismunandi tegundum og litum. Í dag eru mörg leiksvæði Reykja- víkurborgar þakin gervigrasi með fallvörn. Jóhann Helgi & co ehf. býður góð tilboð í útileiktæki til fjölbýlis- og sumarbústaðalóða. Jóhann Helgi rekur einnig, ásamt Margréti Orms- dóttur eiginkonu sinni, sveitahótel- ið Vatnsholt í Flóa. Hægt er að hafa samband við Jóhann Helga í síma 565-1048 eða 820-8096 og einnig með því að senda tölvupóst á netfangið jh@jo- hannhelgi.is n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.