Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2015, Side 46
Vikublað 28.–29. apríl 201534 Fólk
n Hanna Rún og Nikita Íslandsmeistarar í latin dönsum n Mamma og pabbi pössuðu soninn
Í
slandsmeistaramót í standard
dönsum fór fram í Laugar-
dagshöll um helgina og var þar
að sjálfsögðu fremst í flokki,
stjörnudansparið Hanna Rún
Óladóttir og Nikita Bazev. Þau sigr-
uðu í latin dönsum í flokki full-
orðinna með miklum yfirburðum.
Eftir mótið setti Hanna Rún inn
stöðuuppfærslu á Facebook þar
sem hún þakkaði veitta aðstoð, sem
gerði sigurinn mögulegan, sem og
allan stuðninginn. Hún þakkaði for-
eldrum sínum sérstaklega fyrir að
gæta sonar síns og Nikita, Vladimirs
Óla, meðan á keppninni stóð. Þá
sagði hún soninn mjög sáttann við
nýju bikarana sem bættust í safnið
um helgina.
Hanna Rún klæddist nokkrum
kjólum á mótinu um helgina, en
einn þeirra saumaði hún sjálf
daginn fyrir mótið. Vakti hún jafn-
framt athygli á því á Facebook og
hlaut mikið hrós fyrir, enda kjólinn
einstaklega fallegur. n solrun@dv.is
Saumaði kjólinn
daginn fyrir mót
Kjóllinn fallegi Hanna Rún og Nikita geisluðu af gleði á dansgólfinu en kjóllinn sem hún
klæddist saumaði hún sjálf daginn fyrir mótið.
Í öðru sæti Sigurður Már og Jóna Kristín
lentu í öðru sæti í latin dönsum í flokki full-
orðinna, en þar áttu þau í harðri samkeppni
við Hönnu Rún og Nikita.
Svífa yfir gólfið Arnar og Laufey svifu
eins og í lausu lofti yfir dansgólfið í Laugar-
dalshöllinni.
Einbeitt Þorkell og Denise voru full ein-
beitingar og létu ljósmyndara ekki trufla sig.
Gleði Kristófer og Sara brostu út að eyrum
í dansinum.
Sigurvegarar í latin dönsum Stórglæsilegur hópur sem hlaut verðlaun í latin dönsum,
en Hanna Rún og Nikita eru þarna á efsta palli.
Margfaldir meistarar Elvar og Sara Lind eru margfaldir Íslandsmeistarar og það fór
ekkert á milli mála á dansgólfinu.
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609