Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Blaðsíða 17
Helgarblað 28.–31. ágúst 2015 Fréttir Erlent 17 úrval nýrra og nýlegra sendibíla Langur. Aukabúnaður: TREND pakki kostar 400.000 í umboði. Innifalið = Samlitir stuðara - Handfrjáls búnaður - Hraðastillir - Kastarar - Loftkæling - Hiti í framrúðu - Hiti í útispeglum - Leðurstýri og gírhnúi - LED ljós í innréttingu. Dráttarkrókur 180.000,- Einnig : Fjarstýrðar samlæsingar - Spólvörn - Stöðugleikakerfi. okkar verð: 3.990.000 án vsk. (4.947.600,- með vsk. ) Um 900.000 undir listaverði. Ford TransiT CUsToM 2015 bíllinn er á staðnum á frábæru verði! Hágæða hunda- og kattafóður hátt kjötinnihald – ekkert kornmeti Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is sómasamlegra lífi. Eftir fyrsta árið í herþjónustunni gangast íbúar undir próf. Þeir sem standa sig vel fá þjálf­ un til að verða kennarar, prestar eða jafnvel fréttamenn hjá ríkisreknum miðlum. Mehari, 22 ára, sem nú býr á Ítalíu, vann sem kennari í Erítreu en á næturnar var hún stundum kölluð til að þjóna hernum. „Þeir gátu feng­ ið mann hvenær sem er sólarhrings­ ins til að, til dæmis, standa vörð við byggingu. Það var mjög þreytandi. Maður þurfti að skvetta vatni framan í sig til að halda sér vakandi.“ Þora ekki út á götu Í umfjöllun The Guardian kemur fram að hópsamkomur séu með öllu bann­ aðar í Erítreu. Komi fólk saman í hóp­ um úti á götu hættir það á að verða handtekið. Sögum flóttamanna ber þó ekki saman hvað þetta tiltekna at­ riði varðar. Sumir segja að íbúar, sér­ staklega á strjálbýlum svæðum, séu svo varir um sig að þeir láti helst ekki sjá sig úti á götu. Aðrir segja að íbúar séu afslappaðri og sögur um ógnar­ stjórn séu ýktar. Blaðamaður sem flúði landið árið 2012 segir að hann hafi oft hitt vini sína, stundum tólf saman, og þeir tjaldað saman á ströndinni án þess að lögregla hefði nokkur afskipti af þeim. Hvað sem þessu líður eru yfirvöld með fjölda útsendara á sínum snær­ um og íbúar eru varir um sig í sam­ skiptum við hver annan. „Vantraustið á milli fólks er mjög mikið. Þú getur ekki einu sinni treyst bróður þínum,“ hefur The Guardian eftir einum flótta­ manni. Blaðamaðurinn, sem vill ekki láta nafns síns getið, segir að íbúar séu vissulega varir um sig en það sé ekki alls kostar rétt að fólk geti ekki lifað eðlilegu fjölskyldulífi. Eftir að Erítrea fékk sjálfstæði var dómskerfi sett á laggirnar en mis­ vísandi fréttir hafa borist af því hvort það sé enn við lýði eða hvort lögregla handtaki fólk og setji í fangelsi án dóms og laga. Omar, 27 ára, sem flúði til Ítalíu, segir að hann hafi fyrst heyrt af því þegar hann kom til Ítalíu að til væri fræðigrein sem heitir lögfræði. Welde Giorgis segir að glæpamenn – eða þeir sem grunaðir eru um glæpi – komi ekki fyrir dómara og geti því ekki haldið uppi vörnum. Þurfti að hætta tannlækningum Þegar allt kemur til alls virðist lífið í Erítreu ekki vera neinn dans á rós­ um, allavega hjá þeim sem ekki til­ heyra elítunni í höfuðborginni As­ mara. Herþjónusta, ógnarstjórn og fátækt eru helsti orsakaþátturinn en einnig tilbreytingarsnauð tilvera. Frjáls fjölmiðlun er bönnuð og eina afþreyingar efnið sem hægt er að nálg­ ast í sjónvarpi er áróðurskenndar frétt­ ir frá ríkissjónvarpinu. Það er að segja þegar rafmagnið fer ekki af eins og gerist oft. Innan við eitt prósent lands­ manna hefur aðgang að internetinu og skemmtanir fyrir íbúa eru fáar sem engar. Þá hafa íbúar fá tækifæri til að byggja upp sómasamlegt líf. Frelsi til að stofna fyrirtæki er lítið eins og Sarah, sem lærði tannlækningar, komst að raun um. Hún rak litla tann­ lækningastofu samhliða störfum sín­ um fyrir ríkið, eða allt til ársins 2010 þegar yfirvöld bönnuðu reksturinn. „Frá árinu 2010 hefur öllu verið stýrt af ríkinu,“ segir hún. Besti möguleiki íbúa til að stofna eigin rekstur er að opna litla matvöru­ búð. En það er erfitt að skila hagnaði í landi þar sem meirihluti íbúa býr við fátækt og á varla fyrir mat. Til að létta undir með íbúum gefa yfirvöld út svo­ kallaða matarmiða. „En ef þú ert ekki í náðinni hjá yfirvöldum færðu enga matarmiða. Og ef þú færð enga matar­ miða færðu ekkert að borða.“ „Bjargarlaus fórnarlömb“ Þeir sem The Guardian ræddi við í um­ fjöllun sinni eru flestir á sama máli um að auðvelt ætti að vera að breyta fyr­ irkomulaginu í Erítreu til hins betra. Dan Connell, blaðamaður sem fylgst hefur náið með gangi mála í Erítreu síðastliðin 40 ár, segir að einræðis­ stjórn Afwerkis sé veikari nú en nokkru sinni. Það sjáist meðal annars í aukn­ um straumi flóttamanna frá landinu. En hvað gæti tekið við? „Það er erfitt að spá fyrir um það því það er engin skipulögð stjórnarandstaða í landinu,“ segir Connell. Yfirvöld í Erítreu hafa sjálf kennt skipulögðum mansalshringjum um flóttann frá landinu. Fyrr í sumar biðl­ uðu yfirvöld meira að segja til Öryggis­ ráðs Sameinuðu þjóðanna um aðstoð í baráttunni gegn þessum hringjum. Flóttamenn hafa aðra sögu að segja. Welde Giorgis yfirgaf landið því hann hafði ekki trú á kerfinu sem þar var við lýði. Meðalmaðurinn í Erítreu er nú „bjargarlaust fórnarlamb“ eins og hann sjálfur orðar það. „Þess vegna erum við að sjá þennan mikla fjölda flótta­ manna frá Erítreu sem leggja líf sitt í hættu í leiðinni. Margir deyja úr ofþorn­ un í Sahara­eyðimörkinni eða drukkna í Miðjarðarhafi. Málið er að öllum er sama. Erítrea er orðið að helvíti á jörðu fyrir fólkið – þess vegna tekur það þessa miklu áhættu. Það er ekki hægt að búa þarna lengur.“ n Erítrea í hnotskurn n Erítrea er land á austurströnd Afríku, á landamæri að Eþíópíu og Súdan. Landið er 117.600 ferkílómetrar að stærð. n Íbúar eru um 6,5 milljónir. Tígrinja er opinbert tungumál landsins. n 40 prósent íbúa eru 14 ára eða yngri og 20 prósent á aldrinum 15 til 24 ára. n Íbúar geta vænst þess að verða tæp- lega 64 ára. Karlar 61 árs en konur 66 ára. n Landið ver þremur prósentum af lands- framleiðslu sinni til heilbrigðismála sem er með því minnsta sem gerist í heiminum. n Áætlaðar skuldir ríkisins námu 101,3 prósentum af landsframleiðslu árið 2014. n Verðbólga í landinu var 12,3 prósent árið 2014. n Árið 2014 voru fluttar út vörur að verð- mæti 573 milljóna dala, gull þar á meðal. Pólitískir fangar í Erítreu Ófáir Erítreumenn, eða ríflega tíu þúsund, hafa verið hnepptir í varðhald án dóms og laga síðan Afewerki forseti komst til valda. Talið er að fjöldinn nemi allt að tíu þúsund- um. Margir þeirra eru blaðamenn sem voru handteknir árið 2001 þegar frjáls fjölmiðlun var bönnuð. The Guardian tók saman lista yfir nokkra þekkta blaðamenn sem hafa verið á bak við lás og slá síðan. Amanuel Asrat Asrat hafði getið sér gott orð sem ljóðskáld og menningar- blaðamaður. Hann var ritstjóri menningarblaðsins Zemen og var mjög virtur sem slíkur. Ljóð hans fjölluðu oft um daglegt líf, stríð, frið og smælingja. Asrat var handtekinn á heimili sínu að morgni 23. september 2001 þegar ritstjórar allra sjálfstæðra fjölmiðla voru handteknir. Eftir því sem næst verður komist er hann enn í haldi í öryggisfangelsinu Eiraeiro, norður af höfuðborginni Asmara. Seyoum Tsehaye Tsehaye var handtekinn eftir að hafa fjölmörgum sinnum birt gagnrýna umfjöllun í dagblaðið Setit. Eftir því sem næst verður komist er Tsehaye, sem var 49 ára þegar hann var handtekinn árið 2001, enn á lífi í Eiraeiro-fangelsinu. Hann starfaði áður fyrir yfirvöld en eftir að hafa skrifað með gagnrýnum hætti um þær áskoranir sem biðu íbúa Erítreu eftir sjálfstæðisbaráttuna var hann handtekinn. Medhanie Haile Haile er lögfræðimenntaður en starfaði einnig sem íþrótta- fréttamaður. Hann var talsmaður þess að lögum og reglu yrði komið á í landinu. Hann var handtekinn á vinnustað sínum, dómsmálaráðuneyti Erítreu, í september 2001. Haile var talsmaður lýðræðis og frjálsrar fjölmiðlunar sem hann sagði að væri grundvöllur þess að búa í upp- lýstu samfélagi. Talið er að Haile hafi látist í fangelsi. Joshua Yohannes Yohannes var leikskáld, ljóðskáld og blaðamaður. Hann var meðstofnandi fyrsta sjálfstæða dagblaðs landsins, Setit, sem naut talsverðra vinsælda í Erítreu. Yohannes var vel liðinn, duglegur og áreiðanlegur. Hann var handtekinn í september 2001 en talið er að hann hafi látist í fangelsi árið 2006 eða 2007.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.