Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Blaðsíða 21
Helgarblað 28.–31. ágúst 2015 Umræða 21
Nú er kominn
vetraropnunartími:
Opið virka daga 10 - 18,
laugard. 11 - 14
sunnud. 14 - 16
Rauðarárstígur 12 - 14
sími 551-0400
www.myndlist.is
Einstök listasýning
sem hefur hlotið
frábærar viðtökur
Sögur - málverkasýning
15. - 30. ágúst
Gunnella
og Lulu Yee
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist.
Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B.
Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs
Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal
og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband
í síma 551-0400
Erum að taka á móti verkum á næsta
listmunauppboð, sem verður 7. september
Við leitum að
ListavErkum
Síðasta
sýningarhelgiEgilsstaðir, Skriðuklaustur, Óbyggðasetur
nógu fáfarið til að heimahundum
á bæjunum þykir enn taka því að
gelta að bílum, svo maður varð að
slóa niðrúr öllu til að vera örugg-
ur um að keyra þá ekki niður. All-
ir voru hundarnir svipaðir, svart-
ir og hvítir, og ég bar það undir
gestgjafann í Óbyggðasetrinu á
bænum Egilsstöðum í Norður dal,
og hann sagði: „Já, það eru allir
með border-collie, það eru bestu
smalahundarnir.“ Tveir aðrir slíkir
voru fyrir á staðnum, annar til-
heyrandi „hinum bænum“ (tví-
býlt) en gestgjafarnir áttu sinn, það
eru hjónin Denni Karlsson, sem er
þekktur kvikmyndatökumaður, og
kona hans Arna Björg. Hann er ætt-
aður af bænum, og dvaldi þar löng-
um í æsku, en hún er úr Skagafirði,
útlærð safnamanneskja og vann
meðal annars við að koma upp
Sögusetri íslenska hestsins á Hól-
um. Þau hafa gert upp húsin þarna
á frábærlega smekklegan hátt, með-
al annars heila baðstofu, og bjóða
upp á ferðaþjónustu á sumrin, mat,
gistingu og leiðsögn, hestaferðir
um héraðið og inn til fjalla. Þarna
kom fólk og fór, fékk mat af svæð-
inu, og kaffi og heimabakstur sem
kom jafnóðum úr eldhúsinu.
Sonur hennar mömmu
Þarna innfrá hjá Óbyggðasetrinu í
Norðurdalnum liðast falleg á fyrir
neðan bæinn. Denni staðarhaldari
sagði mér að það hefði minnkað
nokkuð í henni vatnið eftir að
virkjanastíflur voru gerðar uppi á
hálendinu. Eitt sinn hafi hann ver-
ið búinn að lofa að sýna gestum fal-
lega fossa í ánni næsta dag, en svo
uppgötvað um morguninn að áin
væri næstum alveg vatnslaus, og
það sama auðvitað fossarnir. Þá hafi
komið sér vel að hann þekkti menn á
fjöllum sem stjórna lónum og rennsli
úr þeim og hann hringdi uppeftir og
bað þá að skrúfa örlítið frá, og því var
tekið svo ljúfmannlega að fossarnir
urðu einmitt ágætlega vatnsmiklir og
tígulegir um það bil sem Denni kom
þangað með hópinn.
Þarna voru hestar í túni, og
meðal annars folald sem gekk um
furðu státið, en reyndist bara vera
fjögurra daga gamalt. Tveggja ára
tvíburasystur voru á vappi, bentu
á stórmerki og brostu. Þarna var
svona átta ára strákur, lék sér við
heimahundana sem voru greini-
lega að góðu vanir hans félags-
skap, þeir léku sér þrír í eindrægni
og kæti. Ég spurði hvort hann væri
sonur Denna og Örnu. „Ég er sonur
mömmu,“ svaraði hann. Ég spurði
hvort ekki væri erfitt að leika sér úti
svona berfættur. „Hundarnir eru
berfættir,“ sagði hann.
Og sögurnar …
Þarna á Egilsstöðum í Fljótsdal
fæddist móðir Denna og átti ellefu
systkini. Níu þessara systkina „pipr-
uðu“ og urðu eftir saman heima á
bænum, tvö-þrjú í hverju herbergi
og urðu fjörgömul. Enn innar í
dalnum eru tvö eyðibýli, og mig
minnir að það hafi verið bóndinn á
öðru þeirra, Kleif, sem heimamenn
sögðu mér að hefði ætlað að grípa
hreindýr á fæti að vetrarlagi í byrj-
un síðustu aldar, og stökk á bak því.
En dýrið reisti makkann og keyrði
aftur hausinn svo að fætur bónd-
ans festust undir hornunum, og
þannig steypti dýrið sér út í jökulsá
og sundreið yfir. Þetta atvik not-
færði Halldór Laxness sér í Sjálf-
stæðu fólki eins og flestir muna. Og
þar sem fer saman fagurt land og
góðar sögur, þar er gott að koma og
gott að vera. n
„Ég spurði hvort
hann væri sonur
Denna og Örnu. „Ég er
sonur mömmu,“ svaraði
hann. Ég spurði hvort
ekki væri erfitt að leika
sér úti svona berfættur.
„Hundarnir eru berfættir,“
sagði hann.
Egilsstaðir En margt hefur verið gert á Egilsstöðum, ekki bara bæjarhátíð heldur líka menningarmiðstöð í gamla sláturhúsinu í miðjum
bænum, með samkomusal í gömlu frystiklefunum og málverkasýningu og alls konar fínheitum. Mynd Sigtryggur Ari JóhAnnSSOn
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609