Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2015, Qupperneq 48
Helgarblað 28.–31. ágúst 201540 Menning
Project1_Layou
t 1 24/11/2011
12:58 Page 1
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík
Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði,
sími 511-7000, www.innrammarinn.is
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði
Velkomin á nýtt
rammaverkstæði
og verslun
Úrval tilbúinna
ramma og
myndaalbúma
Þ
að var kominn tími á
að Svíar fengju loksins
að vera vondu gaurarn-
ir í Hollywood-mynd.
Flestar aðrar Evrópuþjóðir
hafa fengið að sinna hlutverk-
inu, meira að segja Íslendingar
í Mighty Ducks 2, og þó Dolph
Lundgren hafi lagt Apollo
Creed í gröfina gerði hann það
sem Rússi.
Auðvitað er þetta Mission
Impossible-mynd, og ekki er allt sem
sýnist. Leikkonan Rebecca Ferguson
er hálfensk og hálfsænsk og ekki ljóst
með hverjum hún stendur, en sænski
beinalæknirinn Jens Hultén er í það
minnsta hreinræktað illmenni. Þrátt
fyrir fríðan hóp aukaleikara er þó Tom
Cruise að sjálfsögðu fyrirferðarmestur,
virðist hafa jafnað sig eftir skilnaðinn
og dvölina í Eyjafirði og er í fantaformi.
Og sem hasarmynd er MI:5 nán-
ast óaðfinnanleg. Eins og njósnamynd
sæmir er komið við í stórborgum á
borð við London og Vín, og þeyst um
sveitavegi Marokkó. Cruise er sem fyrr
í forsvari fyrir IMF-hópinn, sem er því
miður ekki Alþjóða gjaldeyrissjóður-
inn (áhugavert væri að sjá hann tak-
ast á við skuldavanda Grikkja) heldur
tekst Tom á við önnur ómöguleg
verkefni sem gefa meira tilefni
til að vera ber að ofan.
Skúrkurinn bendir réttilega
á að hetjur eru alltaf að verja
núverandi ásigkomulag, en
að hann vilji reyna að breyta
því. Hvernig hann ætlar að
fara að því er ekki alveg ljóst,
og við eigum að samþykkja
að eftirlitslausar njósnastofn-
anir séu best til þess fallnar að
bjarga heiminum. Ef ekkert af
þessu virkar vitrænt þá hreyf-
ist myndin svo hratt að maður tek-
ur varla eftir því, og Daniel Craig þarf
að hafa sig allan við ef hann ætlar að
toppa Tom Cruise í njósnahasarnum
í ár. n
Næstum betri
Bond en Bond
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Mission Impossible:
Rogue Nation
IMDb 7,8 RottenTomatoes 93% Metacritic 75
Handrit og leikstjórn: Christopher McQu-
arrie Aðalhlutverk: Tom Cruise, Rebecca
Ferguson og Jeremy Renner.
131 mínútur
Riddari
götunnar Tom
Cruise geysist
um á mótorfák í
Mission Impossi-
ble: Rogue
Nation.
Í súrrealískum hugarheimi Klang
Mundi Vondi er einn stofnenda Klang Games sem gefur út tölvuleikinn ReRunners á næstunni
G
aldrar tölvuleikjanna byrja
að myndast þegar þú ert
kominn inn í heim sem þér
líður vel í og langar að halda
áfram að vera inni í. Þetta
eru eins og vel gerðar teiknimyndir,
sem eru mjög ríkar í smáatrið-
um,“ segir Mundi Vondi, einn stofn-
enda tölvuleikjafyrirtækisins Klang
Games, sem stefnir á að gefa út sinn
fyrsta leik, ReRunners, í lok ársins.
DV hitti Munda í Berlín og spjall-
aði um útlit og söguheim tölvuleiks-
ins, tvívíðu „platform“ fjölspilunar-
leik sem er dýpri en fyrst virðist.
Afi með tröllatrú á verkefninu
Nokkur eftirvænting er eftir
tölvuleiknum ReRunners sem stefnt
er á að komi út síðar á árinu. Leik-
urinn er sá fyrsti frá tölvuleikjafyrir-
tækinu Klang Games sem var stofn-
að árið 2013 af þremur Íslendingum
búsettum í Berlín í Þýskalandi. Ný-
lega fjárfesti breska félagið London
Venture Capital í fyrirtækinu fyrir
tugi milljóna króna.
Klang var stofnað af Guðmundi
Hallgrímssyni, listamanni og fata-
hönnuði, sem er betur þekktur sem
Mundi Vondi, auk Ívars Emilsson-
ar og Odds Snæs Magnússonar –
sem höfðu meðal annars starfað við
tölvuleikjaframleiðslu hjá CCP.
„Það var æskudraumur hjá mér
að gera þetta. Þegar ég var í lista-
háskólanum kynntist ég Ívari og
Oddi, sem voru þá að vinna hjá CCP,
og við fórum að pæla í að búa til
einhvern brjálaðan tölvuleik,“ seg-
ir Mundi. Fyrsti stuðningsaðilinn
var afi hans, Eiríkur Óskarsson. „Ég
minntist á þetta við hann á kaffihúsi
og hann alveg stökk til og hafði trölla-
trú á þessu.“
Eftir mikla útreikninga komust
þeir að þeirri niðurstöðu að Berlín
væri hentugasti staðurinn fyrir fyrir-
tækið, framfærslukostnaður lágur
og umhverfi fyrir lítil fyrirtæki
spennandi. Hann segir að fljótt hafi
þó komið í ljós að fjármagnið dugði
skammt í framleiðslu á hinum epíska
tölvuleik og þeir þyrftu að byrja á
minna verkefni. „Við fórum að skoða
snjallsíma-leikjaiðnaðinn, pæla hvað
vantaði þar og hvernig við gætum
komið þangað inn á ferskan hátt.“ Þá
kviknaði hugmyndin að ReRunners.
Hoppað á eftir félaganum
ReRunners er tvívíður „platform
jump-and-run“ tölvuleikur en þá
gerð tölvuleikja þekkja margir frá
Mario Bros-leikjunum. Í leiknum
hleypur þú, hoppar upp og niður
framhjá ýmsum hindrunum og safn-
ar hlutum, á leið þinni í átt að marki
borðsins. En það sem er óvenjulegt
við ReRunners er að þrautabrautina
þarf maður að hlaupa í kapp við aðra
spilara leiksins.
„Það helsta sem við erum
að koma með nýtt inn er þessi
möguleiki á fjöldaspilun. Það er erfitt
að framkvæma það á snjallsíma því
nettengingin er ekki alltaf hröð og
það getur haft neikvæð áhrif á spilun-
ina, leikurinn höktir og svo framveg-
is. Við leysum þetta með því að taka
upptökur af karakterum annarra
spilara og tefla þeim fram á móti þín-
um karakter þegar þú spilar. Þú ert
ekki að keppa við annað fólk í raun-
tíma, en þér líður eins og þið séuð að
spila samtímis,“ útskýrir Mundi.
Klassískt en lifandi útlit
Útlitslega vísar leikurinn í grafík
gamalla tölvuleikja af sömu tegund,
hann byggist á stórum dílum eða
greinilegum pixlum. „Við vildum að
fólk gæti tengt þetta við klassíska
„platform“ leiki. Við vorum að kynna
svo mikið af nýjum þáttum inn í
þessa leikjategund að við töldum
réttast að fara frekar klassíska leið
útlitslega. Um leið reynum við að
spila með og skapa ferska útgáfu af
þessum klassíska pixelstíl. Til dæmis
fara hlutir í bakgrunninum úr fókus
og búa þannig til svolítið þrívíddar-
lega hreyfingu,“ segir Mundi.
Hverju vilduð þið reyna að ná
fram í útlitinu: „Fyrst og fremst vor-
um við að reyna að skapa litríkan og
skemmtilegan heim sem er eins lif-
andi og mögulegt er. Upphaflega átti
útlitið að vera miklu einfaldara en
með tímanum þróaðist það og við
fórum að bæta við alls konar smá-
atriðum. Núna reyni ég að gæða
hvern einasta hlut lífi: láta grasið og
trén hreyfast í vindinum, láta fiðrildi
og fugla út um allt og láta ryk hrist-
ast af kassa þegar þú lendir á hon-
um. Í sumum leikjum er eins og um-
hverfið sé steypt en ekki lifandi. Við
vildum að allt í kringum þig myndi
bregðast við því sem þú gerir,“ segir
Mundi.
Hann segir svipuð lögmál gilda
um hljóðmyndina sem á að vera lif-
andi og fjölbreytt og vega upp á móti
hinum einfalda sjónræna stíl. Davíð
Magnússon vinnur hljóðin en auk
hans koma Gunnar Tynes úr Múm,
og Mike Shroud úr Ratatat að gerð
tónlistarinnar.
Ekki fastur á lestarteinum
Mundi segir leikinn eiga að höfða til
venjulegs fólks – sem spilar hann á
leiðinni í vinnuna, á klósettinu eða
hvar sem nokkrar auðar mínútur gef-
ast – jafnt sem þeirra sem vilja sökkva
sér ofan í söguheiminn og verða nán-
ast eins og afreksmenn sem keppast
við að verða sem stigahæstir.
Hann segir að leikurinn gefi
spilurum meira frelsi en flestir snjall-
símaleikir. „Þeir byggjast yfirleitt á
einfaldara „konsepti“ þar sem þú
klárar eitt borð og heldur áfram yfir í
það næsta. Þá ert þú eins og á lestar-
teinum og getur voðalega lítið stig-
ið út af þeim. Við erum að reyna að
brjóta þetta upp – hér kemur þú inn í
einhvern heim þar sem eru alls konar
sögur í gangi og ólík verkefni sem þú
getur tekist á við. Þú finnur sérstök
kapphlaupshús og ferð þangað inn
til að keppa á móti öðrum spilurum.
En þar á milli er stór heimur fullur af
fólki sem við höfum búið til, fólki sem
þú getur talað við, það getur hjálpað
þér eða þú keppt við það.“
Súrrealískur hugareimur Klang
En hvernig er hægt að lýsa þessum
söguheimi? „Í leiknum er konungur
sem nefnist King Klang. Hann hefur
búið til þennan heim og allir því mjög
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Við vorum að
kynna svo mikið
af nýjum þáttum inn í
þessa leikjategund að
við töldum réttast að
fara frekar klassíska
leið útlitslegaAllir regn-
bogans litir
Múmínálfar læra litina er bók þar
sem Múmínfjölskyldan kennir
barninu að þekkja litina. Skemmti-
legt bók fyrir ung börn, prýdd stór-
um og litríkum myndum.
Nýjar bækur
Fyrstu orðin
Múmínálfar læra orð
er ný bók um þess-
ar yndislegu verur.
Þar getur barnið
lært fyrstu orðin í
fylgd Múmínsnáð-
ans. Stórar og lit-
ríkar myndir prýða
bókina.
Uppgjör við
fortíðina
Krakkaskrattar er skáldsaga eftir
Anne-Cathrine Riebnitzsk. Lisa
gegnir her-
þjónustu í
Afganistan
þegar hún
fær símtal að
heiman. Yngri
systir hennar
hefur reynt að
fyrirfara sér. Á
leiðinni heim
til Danmerkur
rifjar Lisa upp erfiða bernsku sína
á sveitabæ á Jótlandi. Bókin hlaut
Dönsku bóksalaverðlaunin og
Skáldsagnaverðlaun Politiken.