Fréttatíminn - 19.02.2016, Síða 32
Heil og sæl, kæra amma og auð-
vitað mamma og afi. Litla stúlkan
ykkar er lánsöm að eiga svo marga
uppalendur hjá sér. Hjartans
þakkir fyrir traustið og hlý orð og
þakkir fyrir að opna þetta mikil-
væga umræðuefni. Það gefur mér
kærkomið tækifæri til að fjalla al-
mennt um hægðir og hægðavanda
barna, tabúið í umræðunni, áður
en ég vík að spurningunni þinni.
Almenna umfjöllunin er í lengri
útgáfu á vefnum; frettatiminn.is
en svörin til þín eru óstytt hér á
eftir.
Lófatak og sköpun eða vandi og
leyndarmál
Hægðavandi barna er mjög al-
gengur enda er hægðastjórnun
langvinnt ferli með misvísandi
skilaboðum frá umhverfinu. Á
fyrsta æviárinu fylgjumst við glöð
með öllu sem barnið lætur frá sér
og á öðru árinu fær barnið lófatak
og húrrahróp ef eitthvað kemur í
koppinn. Á þriðja og fjórða árinu
fagnar enginn hægðunum sem
eiga að fara ósýnilegar í klósettið
og barnið fær óánægjusvip ef
„slys“ verður. Á fimmta og sjötta
ári eru hægðir, og hvað þá hægða-
vandi, einkamál og leyndarmál
sem fáir ræða.
Viðkvæm og vandmeðfarin mál
Börn eru ólík og viðkvæm gagn-
vart líkamlegum þörfum sínum,
sérlega hringrás næringar og
hægða og þurfa sinn tíma. Þið
gætið án efa að góðri og trefja-
ríkri fæðu og eins er mikilvægt
að hvetja hana til vatnsdrykkju
því við búum við þann hönnunar-
galla að finna of seint fyrir þorsta.
Allt þetta hjálpar fyrir reglulegar
hægðir.
Stundum skapast hægðavandi
af erfiðri reynslu eins og hægða-
tregðu eða harðlífi sem jafnvel er
löngu gengið yfir – en óttinn við
sársaukann situr eftir. Þá reyna
þau stundum að halda í sér og þrá-
látur klíningur getur fylgt. Skömm
yfir að hafa misst í buxurnar
skapar líka vanlíðan og svo má
lengi telja.
Hvað er til ráða?
Hjá fjögurra ára stúlku skipt-
ir þó orsökin ekki máli ef allt
er í lagi með hægðirnar. Mín til-
laga er að þið nefnið ekki klósettið
við hana því að fullorðinsklósett
er stórt og ógnandi. Hægðir og
þvaglát eru líka ólíkar aðgerðir,
það er fljótlegt að pissa og hoppa
niður en hægðalosun tekur lengri
tíma. Það getur valdið órökréttum
kvíða um að detta niður eða bíða
eftir hjálp þegar hún er búin.
Hægðalosun er auðveldust í örugg-
um aðstæðum og mörg börn fara
í felur til að fá frið. Loks skiptir
líkamsstellingin máli, mörg börn
kjósa að standa, krjúpa eða sitja á
hækjum sér.
Töfralausnin koppur
Hins vegar þarf að vinna með
henni að breytingum og því ferli
þurfið þið að gefa tíma. Hafið
bleyjurnar innan seilingar þannig
að hún viti að þær séu alltaf í boði
og segið henni að þið séuð mjög
sátt við hana. Fullvissið hana um
að þið getið hjálpað henni til að
hætta með bleyjuna þegar hún er
tilbúin og að ekkert liggi á. Það
er líka jákvætt að hún hafi svona
góða stjórn á hægðunum og ekk-
ert fari í buxurnar. Ræðið líka að
mörg börn á hennar aldri noti
kopp og hún eigi líka að fá kopp
inni á salerni. Svo er klókt að fara
saman og leyfa henni að velja
kopp sem er góður hvati til að nota
hann. Svo velur hún bara á milli
bleyjunnar eða koppsins þegar
hún þarf að hafa hægðir. Þessi
lausn getur verið töfralausn fyrir
hana sem smátt og smátt færir
hana að því að ráða við klósettið.
Gangi ykkur allt í haginn og
gaman væri að vita hvernig málin
þróast hjá stúlkunni ykkar.
Hlýjar kveðjur,
Magga Pála
Uppeldisáhöldin
Magga Pála gefur foreldrum
ráð um uppeldi stúlkna
og drengja milli 0 og 10 ára.
Sendið Möggu Pálu ykkar
vandmál á netfangið.
maggapala@frettatiminn.is
Hægðir, frá lófataki
yfir í leyndarmál
Kæra Margrét Pála.
Ég skrifa þér í vandræðum mínum vegna þess að ég treysti þér
best á þessu landi til að gefa mér góð ráð. Þannig er að ég á ný-
lega orðið fjögurra ára barnabarn, þessi litla stúlka býr ásamt
móður sinni í húsinu hjá okkur afa. Vandræðin eru varðandi
hægðir, hún pissar í klósettið og aldrei verða slys hvað það
varðar. Málið er að hún ærist úr hræðslu ef að hún á að hafa
hægðir í klósett og vill þá fá bleyju. Við erum búin að reyna allt
en hún er alveg óviðráðanleg varðandi þetta mál. Hvað telur
þú að sé best fyrir okkur að gera í þessu máli? Er þetta óal-
gengt vandamál? Mútur duga því miður ekki.
Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Snuran.is - Síðumúla 21 - sími 537 5101 - snuran@snuran.is
Konudagurinn
er á sunnudag
Lentz Lovebox
Handgerðar karamellur
3.290 kr
Finnsdottir
Pipanella vasar
Verð frá 6.100 kr
7 daga heilsunámskeið dagana 6.-13. mars 2016
Komdu með!
Á námskeiðinu lærum við að bera ábyrgð á eigin heilsu með því að huga að mataræði, reglulegri hreyfingu, streitu
og andlegri heilsu. Á námskeiðinu er lögð áhersla á hressilega hreyfingu, hollt mataræði, fræðslu, slökun og útivist í
fallegu umhverfi. Farið verður í markmiðasetningu í heilsueflingu og mikilvægi þess að horfa lengra fram í tímann.
Verð pr. einstakling með gistingu er 130.000 kr.
í einbýli en 123.500 kr. í tvíbýli.
Hressandi námskeið fyrir þá sem vilja koma sér af stað, setja sér markmið varðandi
hreyfingu og mataræði og huga að andlegri líðan.
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Nánari upplýsingar og skráning á heilsustofnun.is
eða í síma 483 0300.
6.-13.
mars
2016
32 | fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016