Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 19.02.2016, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 19.02.2016, Qupperneq 46
 Innblástur er furðu- legur og skrítinn hlutur, stundum þarf að kreista hann fram í gömlum minningum. En tónlistin mín er að þróast í takt við mig. Angel Haze Angel Haze kom fram á Sónar í gærkvöld. Rapparinn ólst upp í einangruðu trú- félagi þar sem tónlist var fordæmd og í lagatextum er fjallað um átakanlega fortíð tónlistarmannsins. Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is „Hello. It’s me,“ svarar Angel Haze syngjandi í símtali við Frétta- tímann og fer að skellihlæja. „Ég er í mjög skrítnu skapi, ég var í útvarpsviðtali og einhvernveginn tókst mér að tala um rassgatið á mér í beinni.“ Rapparinn og söngvarinn Angel Haze hræðist ekki hreinskilni og að segja hug sinn við fjölmiðla. „Skítt með iðn- aðinn, hreinskilni er það sem gerir okkur mannleg og hjálpar okkur að vaxa og dafna. Hvað erum við án sannleikans? Bara rugludallar sem hlaupa í hringi, ég ætla ekki að taka þátt í því.“ Angel Haze er eitt stærsta nafn tónlistarhátíðarinnar Sónar í Reykjavík um helgina. Haze fædd- ist árið 1992 í Michigan og ólst upp í ströngu kristinlegu trúar- samfélagi. Haze lýsir samfélaginu sem afar litlu sem hafi einkennst af boðum og bönnum. Samskipti við fólk utan trúfélagsins voru for- dæmd og giltu strangar reglur um klæðaburð og kynni við hitt kynið. Haze var meinað að hlusta á tón- list, borða ákveðinn mat og fara á stefnumót. „Ætli ég hafi ekki verið 11 ára þegar ég fór að semja ljóð. Það var eina leiðin til að túlka tónlistina í mér. Þrátt fyrir tilraunir gat ég aldrei hlaupið frá þrá minni að skapa eitthvað. Ég vissi ætíð að mér var ætlað eitthvað utan trú- félagsins, eitthvað annað en að vera heittrúað kirkjubarn allt mitt líf.“ Haze sleit sambandi við móður sína og elti drauminn að gefa út tónlist. Árið 2012 gaf Haze út EP plötuna Reservation og hlaut frá- bæra dóma. Í kjölfarið lét Haze frá sér lagið Cleaning out my Closet sem fjallar um þá kynferðislegu misnotkun sem Haze varð fyrir sem barn. Fjölmiðlar hafa sýnt fortíð tónlistarmannsins mikla Úr heittrúuðu barni í rappara „Ég frétti af kvenkyns rapphópi sem er kenndur við Reykjavík á Sónar, ég hlakka til að sjá þær.“ athygli og því að Haze vill ekki skilgreina sig eftir kyni og er í hópi pankynhneigðra, hrífst af fólki óháð kyni. Haze segir það vera þreytandi á köflum að tala um fortíðina en sýnir fólki skilning að æska sín veki upp spurningar. „Fólk veltir sér mikið upp úr bakgrunni mín- um. Sérstaklega þegar ég greindi frá kynferðislegri misnotkun í æsku. Ég er hinsvegar allt önnur manneskja í dag og þessir atburðir eru fjarri mér. Þegar ég er stöðugt beðin um að ræða liðna atburði er sú ályktun dregin að ég sé föst í fortíðinni.“ Haze telur aftur á móti mikilvægt fyrir sig sem lista- mann að rifja upp tilfinningar og atburði. „Innblástur er furðulegur og skrítinn hlutur, stundum þarf að kreista hann fram í gömlum minningum. En tónlistin mín er að þróast í takt við mig og þann stað sem ég er á í dag.“ Haze segir sína hvatningu að gerast óttalaust listamaður vera rapparann Kanye West og lítur upp til hans hugsjónar. „Ég hef ekki hlustað nægilega á nýju plötuna hans en hún virðist vera smá blanda af Graduation og My Beautiful Dark Twisted Fantasy. Þessa dagana er ég mest að hlusta á eigin tónlist, Tracy Chapman og Ani DiFrankco. Þær eru báðar stórkostlegir textasmiðir og ég vil bæta mig í því.“ Á meðan Haze er á Íslandi er stefnan sett á að skoða landið og sjá Reykjavíkurdætur á sviði. „Ég hef heilan dag til þess að ferðast um landið og vil endilega sjá hverina. Ég frétti af kvenkyns rapphópi sem er kenndur við Reykjavík á Sónar, ég hlakka til að sjá þær.“ „Ætli ég hafi ekki verið 11 ára þegar ég fór að semja ljóð. Það var eina leiðin til að túlka tónlistina í mér.“ 46 | fréttatíminn | Helgin 19. febrúar–21. febrúar 2016 NÝ SENDING MEÐ KJÓLUM STÆRÐIR 14-28 Kjóll Verð: 9.990 kr Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9 Alla virka daga frá kl. 11-18 Laugardaga frá kl. 11-16 280cm 98cm 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Fax feni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12- 8 ∙ laug. 11- 6 Frábær verð, smart vöru , góð þjónusta Loksins komnar aftur *leg ings háar í mittinu kr. 5 0 . Tökum upp nýjar vörur dagle a Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mitt nu kr. 5 0 . Tökum pp nýjar vö ur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 58 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mitt nu kr. 5 0 . Tökum pp nýjar vö ur daglega Síðustu dagar útsölunnar. Aðeins 4 verð 1500 kr, 2000 kr, 3000 kr og 5000 kr Nú er bara að hlaupa og kaupa. Sennilega allra bestu kaupin í bænum 280cm 98cm Bláu húsin Faxafeni | S. 588 4499 | Opið mán.-fös. | 11-18 | lau. 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur RUG BOTNVERÐ Peysur, jakkar, tunikur, kjólar og margt fl. Verð frá 1.000 - 5.000 kr. Ekkert hærra e 5.000 kr Nú er bara að hlaupa og kaupa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.