Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 19.02.2016, Qupperneq 52

Fréttatíminn - 19.02.2016, Qupperneq 52
Tónskáldið Jóhann Jóhannsson er sérstakur gestur á kvikmyndahá- tíðinni Stockfish. Kvikmyndahátíðir í Reykjavík hafa verið ómissandi hluti af borgarlífinu til fjölda ára. Þótt kvikmyndahá- tíðin Stockfish sé nú haldin í annað sinn byggir hún á grunni Kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem fyrst var stofnað til árið 1978. Þá var hátíðin haldin í Háskóla- bíói og Tjarnar- bíói og var fastur punktur kvikmynda- unnenda í Reykjavík til fjölda ára. Á Kvikmyndahátíðinni Stockfish, sem haldin er í Bíó Para- dís, verða sýndar á þriðja tug verð- launakvikmynda en auk þess verður efnt til samtals um kvikmyndalist- ina og kvikmyndagerð með fjölda vinnustofa og fyrirlestra. Tón- skáldið Jóhann Jóhannsson verður áberandi á hátíðinni þar sem sér- stök áhersla verður á kvikmyndir og tónlist en alls taka 45 gestir frá Evrópu og Asíu þátt í hátíðinni. Íslenskur kvikmyndaiðnaður hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum. Kvikmyndahátíðir á borð við Stockfish hafa stuðlað að tengsla- myndun og verið uppspretta nýrra samvinnuverkefna á milli landa. Næstu daga verður boðið upp á veislu í formi fjölbreyttra kvikmynda frá mörgum löndum með ólíkum þemum. Shorts & Docs hátíðin er nú hluti af Stockfish, sérstök dagskrá fyrir börn verður á hátíðinni ásamt því að eistneskar og pólskar myndir verða í sér- stökum fókus. Reykjavíkurborg hefur átt gott samstarf við kvikmyndaiðnaðinn sem er ein mikilvægasta kjölfesta skapandi greina á landinu. Fram- tíðin er björt og spennandi – og eitt brotið af þeirri heildarmynd er kvikmyndahátíðin Stockfish. Ég hvet þig til að líta við á heimili kvikmyndanna í Bíó Paradís á Hverfisgötunni og taka þátt. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Unnið í samstarfi við Stockfish Film Festival Stockfish Film Festival hófst í gær, fimmtudag, og stendur yfir til 28. febrúar í Bíó Para-dís. Stockfish er bransahátíð sem hefur það markmið að efla íslenska kvikmyndamenningu á breiðum grundvelli og að opna fyrir samtal og samstarf við erlendan kvikmyndaiðnað. Hátíðin er haldin af öllum fagfélögunum í kvikmynda- iðnaðinum á Íslandi í samvinnu við Heimili kvikmyndanna, Bíó Paradís. Á hátíðinni í ár verða sýndar yfir fjörutíu kvikmyndir og von er á yfir fjörutíu gestum alls staðar að úr heiminum. Opnunarmynd hátíðarinnar er The Diary of a Teenage Girl og er Sara Gunnarsdóttir, sem gerði teikningar í myndinni, gestur hátíðarinnar. Með aðalhlutverk í myndinni fara Kristen Wiig, Alexander Skarsgård og Bel Powley. Meðal annarra frábærra mynda sem verða sýndar eru Son of Saul, sem tilnefnd er til Óskarsverðlauna í ár sem besta erlenda kvikmyndin. Lászlo Rajk leikmyndahönnuður verður viðstaddur Q&A sýningu myndarinnar. Þá má nefna hina margumtöluðu Victoria, sem tekin var upp í einungis einu skoti og er Sturla Brandth Grøvlen, upp- tökustjóri myndarinnar, gestur hátíðarinnar í boði ÍKS og verður viðstaddur Q&A sýningar myndar- innar. Sturla er einmitt tilnefndur til Edduverðlauna í ár fyrir kvikmynda- töku í Hrútum. Kvikmyndin I Am Yours er sýnd og leikstjórinn, Iram Haq, verður viðstödd tvær Q&A sýningar myndarinnar um helgina. MiðaSala Hægt er að kaupa miða á Stockfish á Tix.is og í Bíó Paradís. Hátíðarpassi Verð: 9.500 kr. Hátíðarpassi veitir þér aðgang að öllum sýningum og viðburðum hátíðar á meðan húsrúm leyfir. Passinn veitir þér einnig eftirfarandi afslætti hjá samstarfsaðilum hátíðarinnar: Bíó Paradís: Bjór og vín á 650 kr. Hlemmur Square: 25% afsláttur af mat og happy hour verð á bjór og víni. Kaffi Vínyl: Happy hour verð á bjór og víni. Klippikort Verð: 3.900 kr. Veitir þér aðgang að þremur sýningum. Stakur miði Verð: 1.400 kr. Tónlistarþema á Stockfish Sérstakur gestur Stockfish í ár er tónskáldið Jóhann Jóhannsson en fyrstu dagar hátíðarinnar eru tileinkaðir tónlist í kvikmyndum og sjónvarpi. Jóhann er sem kunnugt er Golden Globe verðlaunahafi og var aftur til- nefndur til Óskarsverðlauna í ár. Í dag, föstudag, klukkan 18, verður listamannaspjall með Jóhanni eftir sýningu myndar hans, End of Summer. Á morgun, laugardaginn 20. febrúar, verða tvær pallborðsumræður. Synchronization: Innsetning tón- listar í kvikmyndir og sjónvarp þar sem fjallað verður m.a. um það hvernig tónlist er valin í kvikmyndir og sjónvarp. Þátttakendur eru: Barði Jóhannsson, Edna Pletchetero (synchronization and publishing for Sigur Rós), Ian Cooke (music supervisor, Amy) og Sarah Bridge (music supervisor, The Theory of Everything). Stjórnandi er Guðrún Björk Bjarnadóttir hjá STEF. Composing: Tónlistarsköpun fyrir kvikmyndir og sjónvarp þar sem fjallað verður m.a. um mikilvægi tónlistarsköpunar fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Þátttakendur eru: Jóhann Jóhannsson, Hilmar Örn Hilmarsson, Ólafur Arnalds og Biggi Hilmars. Stjórnandi: Louise Johansen (dagskrárgerðarkona hjá CPH PIX). Báðar þessar pallborðsumræður eru opnar öllum og frítt inn. Um kvöldið verður haldið sérstakt tón- listarpartí Stockfish í samstarfi við Hlemm Square þar sem Ceasetone spila og DJ a. Partíið byrjar klukkan 21, er opið öllum og fríar veitingar á meðan birgðir endast. Jóhann Jóhannsson sérstakur gestur á hátíðinni í ár. Kvikmyndaveisla í Bíó Paradís Yfir fjörutíu myndir sýndar á kvikmyndahátíðinni Stockfish. www.stockfishfimfestival.is www.facebook.com/stockfishfilmfestival @StockfishFest stockfishfestival Leikstjórinn Rachid Bouchareb er einnig gestur hátíðarinnar, en í vikunni var nýjasta mynd hans, Road to Istanbul, heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Hann kemur beint frá Berlín á Stockfish með myndina sína og verður viðstaddur Q&A sýningu hennar. Þetta er frábært tækifæri fyrir íslenska áhorfendur að sjá stórmynd frá leikstjóra, sem hefur verið tilnefndur þrisvar til Óskars- verðlauna, strax eftir heimsfrum- sýningu. KRINGLUNNI | SKEIFUNNI | SPÖNGINNI | SMÁRALIND dagar! AFSLÁTTUR The Diary of a Teenage Girl er opnunarmynd Stockfish í ár. Sara Gunn- arsdóttir, sem gerði teikningar í myndinni, er gestur hátíðarinnar. leikstjórinn Rac- hid Bouchareb kemur á Stock- fish með nýja mynd sína sem var frumsýnd á Berlínarhá- tíðinni í vikunni. Hér er hann með frú Vigdísi Finnbogadóttur á Stockfish Fim Festival í fyrra. Ljósmynd | Carolina Salas. Kvikmyndaveislan Stockfish GEIRSGATA 9 (the old harbor) TEL: (354)519 5050 Hverfisgata Laugavegur Tryggvagata Að al st ræ ti Geirsgata Læ kja rg ata . Ka lkofnsvegur Sæ Æg isg arð ur 52 | fréttatíminn | HELGIN 19. FEBRúAR–21. FEBRúAR 2016 Kynningar | Menning aUGlÝSiNGaDEilD FRÉTTaTÍMaNSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.