Fréttatíminn - 19.02.2016, Qupperneq 73
Ekki er sjálfgefið að fólk tengist
barninu sínu um leið og það fæðist
og sumum reynist það mjög erfitt.
Ástæðan getur verið fæðingarþung-
lyndi sem vel þekkt hjá mæðrum og
þekkist einnig hjá feðrum þó minna
sé um það rætt. Einnig getur verið
um annan geðheilsuvanda að ræða
sem hindrar það að foreldrar tengist
börnum sínum. Miðstöð foreldra og
barna sérhæfir sig í tengslaeflandi
meðferð fyrir verðandi
foreldra og foreldra
með börn að eins árs
aldri. Í meðferð hjá
miðstöðinni er farið
í mikla sjálfsvinnu
þannig að fólk
þarf að opna
sig og jafnvel
leita langt
til baka til
þess að finna
ástæður fyrir
tengslaröskuninni.
Allar upplýsingar á
fyrstutengsl.is
|5fréttatíminn | HElgin 19. fEbrúAr–21. fEbrúAr 2016
Nurofen Apelsin
Íbúprófen mixtúra fyrir börn
á aldrinum 6 mánaða til 12 ára
Nurofen Apelsin 40 mg/ml mixtúra, dreifa. Inniheldur Íbúprófen. Til skammtímameðferðar gegn vægum til miðlungi alvarlegum verkjum eða hita. Skammtar og lyfjagjöf: Til inntöku. Dagsskammtur af Nurofen er 20-30 mg/kg
líkamsþyngdar tekin inn í 3-4 aðskildum skömmtum á u.þ.b. 6 til 8 klst. fresti. Mælt er með því að sjúklingar sem eru viðkvæmir í maga taki Nurofen með mat. Ekki ráðlagt fyrir börn yngri en 6 mánaða eða undir 8 kg. Aðeins til
skammtímanotkunar. Leita skal til læknis ef einkenni versna. Ef lyfið er notað án lyfseðils og einkenni barnsins eru viðvarandi í meira en 3 daga skal leita til læknis. Lágmarka má aukaverkanir með því að nota lægsta virka skammt í eins
stuttan tíma og hægt er til að meðhöndla einkenni. Ekki má taka lyfið ef þú: Hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni, bólgueyðandi gigtarlyfjum, hveiti eða einhverju innihaldsefnanna, sögu um berkjukrampa, astma, nefslímubólgu eða ofsakláða í
tengslum við inntöku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja, sögu um blæðingar eða rof í meltingarvegi í tengslum við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum, virk sár, eða sögu um endurtekin sár/blæðingar í maga,
virka blæðingu í heila eða annars staðar, alvarlega lifrarbilun, alvarlega nýrnabilun, alvarlega hjartabilun, storkuvandamál, óútskýrðar truflanir á blóðmyndun svo sem blóðflagnafæð, ert á síðasta þriðjungi meðgöngu, tekur önnur bólgueyðandi
gigtarlyf eða meira en 75 mg af acetýlsalicýlsýru daglega, ert með hlaupabólu, hefur nýlega gengist undir stóra skurðaðgerð, hefur ofþornað. Gæta skal sérstakrar varúðar og ræða við lækni eða lyfjafræðing ef þú ert með, hefur
einhvern tíman fengið eða átt hættu á að fá: Bandvefssjúkdóm, þarmasjúkdóm, hjarta og/eða æðasjúkdóm, skerta nýrnastarfsemi, lifrarsjúkdóm, óþol fyrir sykrum eða ef þú tekur önnur lyf. Regluleg notkun verkjalyfja getur leitt til
varanlegra truflana á nýrnastarfsemi. Andþyngsli geta komið fyrir ef barnið hefur astma, langvinnt nefrennsli, sepa í nefi eða ofnæmissjúkdóma. Örsjaldan hefur verið greint frá alvarlegum viðbrögðum í húð í tengslum við notkun bólgueyðandi
gigtarlyfja. Hætta skal notkun Nurofen Apelsin strax við fyrstu merki um útbrot á húð, sár á slímhúðum eða önnur einkenni ofnæmisviðbragða. Lyf svo sem Nurofen Apelsin geta tengst aukinni hættu á hjartaáfalli eða heilaslagi. Ekki nota
meira en ráðlagðan skammt og ekki lengur en ráðlagt er. Ef blæðing eða sár koma fram í meltingarvegi ætti að hætta meðferð strax. Hættan á blæðingum, sáramyndun eða rofi í meltingarvegi eykst við notkun stærri skammta af bólgueyðandi
gigtarlyfjum, hjá sjúklingum með sögu um sár í meltingarvegi, einkum ef þeim hafa fylgt blæðingar eða rof og hjá öldruðum. Lyfið getur dulið einkenni sýkinga og hita. Sjúklingar með sögu um aukaverkanir í meltingarfærum, sérstaklega
aldraðir, ættu að hafa samband við lækni án tafar og greina frá öllum óvenjulegum einkennum frá meltingarvegi. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
• Hitalækkandi
• Verkjastillandi
• Bólgueyðandi
Fæst án lyfseðils í apótekum
Sýnt hefur verið fram á að Nurofen apelsin slær
á hitann eftir aðeins 15 mínútur og áhrifanna
gætir í allt að 8 klukkustundir
Nurofen 4x30 copy.pdf 1 31/08/15 12:02
næring móður er ótrúlega mikilvægur partur af því að
líða vel á meðgöngu og að barnið fái öll þau næringar-
efni til þess að stækka og þroskast sem best. næring
móður og barns, nmb.is, er afar gagnlegur vefur fyrir
konur á meðgöngu og nýbakaða foreldra. Þar eru afar
aðgengilegar upplýsingar um það hvernig best er að
nærast til þess að hafa sem best áhrif á vöxt, þroska
og heilsu. Vefurinn er gagnvirkur þannig að hægt er
að skrá niður það sem þú eða barnið þitt borðar yfir
daginn og fá til baka svörun þar sem þú færð „einkunn“
byggða á fæðunni. Þannig er hægt að hafa yfirsjón og
bæta neysluhætti ef þess þarf. Ekki má þó gleyma því
að treysta innsæinu því að þrátt fyrir að það sé gott að
eiga greiðan aðgang að ógrynni upplýsinga þá er skyn-
semin alltaf besta vopnið.
Næring móður
og barns
Tengslaeflandi
meðferð
Pinterest hlýtur að teljast himnaríki
fyrir barnshafandi konur og foreldra
ungra barna. Þar er hægt að finna
á auðveldan máta ógrynni af frá-
bærum upplýsingum um það hvernig
má gera heima alls konar búnað sem
fylgir þessu tímabili í lífi fólks. Dæmi
um það sem má finna á aðgengi-
legan hátt á Pinterest eru leiðir til
að nýta gallabuxurnar þínar sem
lengst þegar bumban fer að stækka,
hvernig hægt er að búa til frábært
burðarsjal, hvernig á að útbúa eigin
blautþurrkur, allt um notkun tau-
bleyja, hvernig föndra má snuddu-
bönd, hvernig búa má til hollan
barnamat og fleira og fleira. best er
að fletta upp „DiY pregnancy“ og þá
dælast upplýsingarnar til þín.
Allskonar
fyrir óléttar
og nýbakaðar