Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 8
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
16
-0
92
4
525 2080 // sala@valitor.is // www.valitor.is
Posi með
myntvali
Bjóddu viðskiptavinum þínum upp á Myntval.
Með Myntvali (DCC) skynjar posinn ef kortið
er erlent og korthafi getur valið gjaldmiðilinn
sem hann greiðir í.
ÞÚ SÉRÐ UM SÖLUNA – VIÐ SJÁUM UM GREIÐSLUNA
Mynd | Hari
Neytendamál Erfið ferð í sláturhúsið
Þessi mynd af íslenskum
kjúklingi í neytenda
pakkningum hefur gengið
ljósum logum um Facebook
en hann hefur greinilega
beinbrotnað og marist illa
áður en honum var slátrað.
Sif Traustadóttir Rossi dýralæknir
segir að áverkarnir hafi ekki getað
komið fram eftir að kjúklingurinn
var dauður. Það sé verið að tína
upp þúsundir fugla á eins stuttum
tíma og hægt sé og þeir séu svo
fluttir í kössum í sláturhús. Það sé
vel þekkt í framleiðsluferlinu að
þetta gerist. „Auðvitað er reynt að
gera það þannig að fuglarnir komist
heilir í sláturhúsið, enda rýrnar
verðmætið ef það eru brotin bein.
En það er tínt í myrkri og miklum
flýti og kassarnir sem þeir eru í eru
frekar gisnir. Það er því alltaf væng-
ur hér og fótur þar sem stendur út
og skaðar á fuglunum eru óhjá-
kvæmilegir,“ segir Sif. | þká
Marinn og
brotinn kjúklingur
Fjármálaráðherra segist
ekkert geta fullyrt um hvort
fleiri ráðherrar eigi eignir
á Tortóla, en stjórnsýslu
fræðingur segir að forsætis
ráðherra hefði tvímælalaust
átt að upplýsa um félag
konu sinnar á Bresku Jóm
frúreyjum. Forseti ASÍ spyr
hvers vegna það hafi ekki
verið gert fyrir sjö árum,
þegar Sigmundur Davíð sett
ist á þing.
Ingimar Karl Helgason
ritstjorn@frettatiminn.is
„Hann átti tvímælalaust að upplýsa
um þetta. Þetta er það stórt mál
sem tengist þeim verkefnum sem
hann hefur sem forsætisráðherra,“
segir Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir,
dósent í opinberri stefnumótun og
stjórnsýslu við Háskóla Íslands.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagðist að-
spurður á Alþingi í gær, ekki geta
sagt um hvort aðrir ráðherrar ættu
eignir á Tortóla.
Málið snýst um félagið Wintris
inc. sem er í eigu eiginkonu for-
sætisráðherra, en komið hefur á
daginn að félagið er skráð á Bresku
Jómfrúreyjum og gerði mörg
hundruð milljóna króna kröfur í
þrotabú föllnu bankanna.
Skrif í kjölfar fyrirspurnar
Það var ekki fyrr en í kjölfar fyrir-
spurnar blaðamannsins Jóhannesar
Kr. Kristjánssonar sem Anna Sigur-
laug Pálsdóttir upplýsti um erlent
félag í sinni eigu í stöðuuppfærslu á
Facebook. Hún tók fram að félagið
ætti hún ein hefði greitt alla skatta
því tengdu. Umfjöllun fjölmiðla hef-
ur leitt í ljós að félagið Wintris Inc.
er skráð á aflandssvæðinu Bresku
Jómfrúreyjum og gerði enn fremur
hundraða milljóna króna kröfur í
þrotabú Landsbankans, Glitnis og
Kaupþings. Jóhannes Kr. Kristjáns-
son vildi það eitt segja að afrakstur
vinnu sinnar yrði birtur á næstu
vikum, en hann hefur athugað
ásamt fleirum eignir Íslendinga í
skattaskjólum erlendis.
Hví ekki 2009?
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir Alþýðusambandið enga
formlega afstöðu hafa til máls for-
sætisráðherra, „nema að leiðtogar
þjóðarinnar þurfa að koma hreint
fram. Það er skrýtið að þetta mál
komi upp 2016 en ekki 2009 þegar
viðkomandi fer á þing sem leiðtogi
flokks,“ og vísar til þess að þetta
vor var Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson fyrst kjörinn á þing. Hann
undrast jafnframt að ekki sé tekið
tillit til maka við hagsmunaskrán-
ingu þingmanna og að þeir geri
grein fyrir skuldum sínum.
Nýjar reglur Alþingis
Daginn eftir að Anna Sigurlaug
greindi frá því að hún ætti félagið
Wintris, ræddi Alþingi og sam-
þykkti siðareglur fyrir þingmenn.
Þar segir meðal annars „Þing-
menn skulu við störf sín forðast
árekstra milli almannahagsmuna
og fjárhagslegra hagsmuna þeirra
eða annarra hagsmuna sem eru
faglegir, persónulegir eða tengdir
fjölskyldu þeirra […]“.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður VG, spurði í umræðum um
hagsmunatengsl forsætisráðherra á
miðvikudag hvort ráðherrann hefði
vakið athygli á „fjölskylduhags-
munum sínum sem kröfuhafi í búi
íslensku bankanna þegar hér voru
til meðferðar frumvörp um stöðug-
leikaskatt og stöðugleikaframlög?
Hefði hann ekki brotið siðaregl-
urnar hefðu þær verið komnar til
framkvæmda með því að gera það
ekki?“
Um áður gildandi reglur um
hagsmunaskráningu þingmanna,
sagði Einar K. Guðfinnsson, forseti
Alþingis, skýrt að þær tækju ekki til
maka. Í umfjöllun um reglurnar á
vef alþingis segir að hún sé til upp-
lýsinga og skráðir hagsmunir hafi
engin áhrif á störf þingmanna sem
aðeins séu bundnir sannfæringu
sinni. Séu hagsmunir hins vegar
tengdir þeim persónulega „er þeim
í sjálfsvald sett að segja sig frá máli.
Það er þeirra ákvörðun og á þeirra
ábyrgð,“ segir á vef Alþingis.
Siðferðisleg tvöfeldni
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins og einn
forvera Sigmundar Davíðs í emb-
ætti forsætisráherra, kallar eftir
skýringum Sigmundar á tvöföldu
siðferði. Hann verji rétt þeirra sem
kjósi að standa utan krónuhagkerf-
isins og hafi aðstöðu til. En hann
haldi því fram að á sama tíma
Fræðimenn sem hafa látið málið
til sín taka hafa verið á einu máli
um að til þess að hægt verði að
byggja upp traust, verði stjórn-
málamenn að ganga fram fyrir
skjöldu til að upplýsa um hags-
munatengsl sín. Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofn-
unar, tekur undir það. „Það nægir
ekki að fólk bregðist við einstaka
dæmum eftir á heldur verða stjórn-
málamenn og viðskiptalífið að
ganga fram fyrir skjöldu með því
að upplýsa um hagsmunatengsl,
tryggja gegnsæi um söluferli eða
hvað annað sem um er að ræða.“
Aflandsfélög Stjórnsýslufræðingur afdráttarlaus
Stórmál sem forsætis-
ráðherra bar að upplýsa
Sótt er að Sigmundi Davíð Gunnlaussyni úr öllum
áttum vegna peninga sem eiginkona hans, Anna
Sigurlaug Pálsóttir, geymir á bresku Jómfrúareyjum
8 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016