Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 18.03.2016, Side 56

Fréttatíminn - 18.03.2016, Side 56
56 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016 Brasseraðir lambaskankar með púrtvíns sveppasósu og heimagerðu flatbrauði Borið fram með rauðkáli, grænum og gulum baunum. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 5– 05 90 Úrval af mildum og ómótstæðilegum ostum á veisluborðið. Dala-Auður, Dala-Kastali og Dala-Camembert fullkomna veisluna. ÚR DÖLUNUM PÁSKAÞRENNAPá Pá Fyrir 4 - 6 4 lambaskankar ferskt timian 16 hvítlauksgeirar smjörklípa salt og pipar Aðferð: 1. Raðið skönkunum í ofnfast mót og skerið 4 djúp göt í hvern skanka, beint inn í kjötið, um sentímetra djúpt með litlum hnífi. 2. Stingið hvítlauksgeir- unum inn í kjötið og bindið timianið utan um með snæri. 3. Stráið salti og pipar yfir skankana og nuddið þeim upp úr smá smjörklípu. 4. Setjið inn í ofn á 150°C í 40 mín. Hellið þá einum lítra af vatni í formið og eldið áfram á 130°C í um 1 klukkutíma og 20 mín. 5. Takið út úr ofni og berið fram. Púrtvíns­ sveppasósa 1 laukur 2 hvítlauksgeirar 1,5 dl púrtvín 1 pk sveppir – Flúða- eða kastaníusveppir 2,5 dl rjómi 2 msk rjómaostur (ef vill) 1-2 tsk salt svartur pipar Aðferð: 1. Skerið laukinn og hvít- laukinn smátt og svitið á pönnu í smá olíu. 2. Skerið sveppina í báta og steikið með laukn- um. 3. Hellið púrtvíni út á og leyfið að sjóða niður um helming eða í ca. 2 mín. 4. Hellið rjóma út á og sjóðið niður þar til þykknar. 5. Bætið rjómaostinum út í, ef vill. 6. Saltið og piprið! Ath. smakka vel til, salt og pipar er mjög mikil- vægur þáttur í þessari sósu. Flatbrauð 5 dl hveiti ½ tsk salt 2 dl mjólk 60 g smjör ólívuolía / hvítlauksolía Aðferð: 1. Setjið smjör og mjólk í pott og hitið þar til smjör bráðnar. 2. Blandið hveiti og salti saman í skál og hellið mjólkur- blöndu yfir. 3. Hrærið deigið saman með sleif og hnoðið þar til hefur myndast ein heild. 4. Skiptið deiginu upp í litlar kúlur og fletjið þær út þar til ca. 2-3 mm þykkar. 5. Steikið á stórri pönnu, með smá olíu. Tekur um 1 mín á hvorri hlið, en það fer samt eftir pönnum og eldavélum. Matartíminn Páskaskankar Ylfu Ylfa Helgadóttir á veitinga­ staðnum Kopar leggur til nýstárlega útfærslu á páskalambinu í ár en þó fá ákveðnir grunnþættir að halda sér. „Ég er mjög spennt fyrir því að eyða páskunum með fjölskyldunni. Ég fæ að vísu ekki að vera með manninum mínum því hann er að vinna en ég fæ að vera með öllum hinum. Þetta eru góðar stundir sem maður fær ekki nógu oft,“ segir Ylfa Helgadóttir, matreiðslu- maður og einn eigenda veitinga- staðarins Kopar. Kopar fagnar þriggja ára af- mæli í maí og hefur notið mikilla vinsælda. „Já, við njótum mikils meðbyrs. Þarna við höfnina hefur myndast veitingaþorp í útjaðri miðbæjarins og viðtökurnar hafa verið frábærar,“ segir Ylfa sem gaf sér tíma til að setja saman girni- lega uppskrift að páskalambinu í ár. Það er nokkuð óvenjulegt, kjöt af skönkum borið fram í heimatil- búnu flatbrauði. Meðlætið er þó hefðbundið og helst úr dós, eins og Ylfa orðar það sjálf. „Stundum er gaman að gera smá tilbreytingu á hefðum. Þegar hefð- in er mikil þá eru breytingar vand- meðfarnar. Þessi uppskrift felur í sér tilbreytingu á páskamatnum sem nær samt að innihalda flesta þá þætti sem okkur þykir svo vænt um að fá með páskalærinu,“ segir Ylfa. „Í minni fjölskyldu var barist um skankabitann, enda af mörgum talið besta kjötið. Bragðmikið og safaríkt, sérstaklega þegar það er eldað af nærgætni. Margar fjöl- skyldur þekkja að borða fajitas eða tacos og hér er útfærsla af íslensku páska fajitas með heimagerðu flatbrauði, rauðkáli og grænum baunum og svo framvegis.“ Mynd | Rut Ylfa Helgadóttir á veitingastaðnum Kopar færir okkur girnilega uppskrift að páskalambi. Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp Við notum ekki MSG í súpuna okkar. Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum og stórmörkuðum landsins. Tilvalið í veisluna eða á hlaðborðið. Fást í öllum helstu matvöruverslunum og í fiskborði stórmarkaðanna. Árstíðabundnar vörur sem hafa slegið í gegn

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.