Fréttatíminn - 18.03.2016, Síða 64
Jógakennarinn Arnbjörg Kristín býður á laugardaginn upp á
gongslökun á ylströndinni í Nauthólsvík. Hún segir gongslök-
un veita hugarró og hvíld fyrir huga, líkama og sál. „Fólki er
frjálst að vera ýmist ofan í pottinum eða sitja hjá bakkanum
og hlusta. Í hálftíma spila ég á gong og það framkallar dýpri
slökun og streitulosun, frí frá huganum. Útsýnið yfir hafið
og samspilið með náttúrunni gerir upplifunina að algjörum
lúxus. Þetta er uppáhaldsstaðurinn minn til spila á gongið á
höfuðborgarsvæðinu.“
Arnbjörg spilar á gongið á ylströndinni einu sinni í mánuði
og er viðburðurinn auglýstur á Facebook síðu ylstrandarinn-
ar og á vefsíðu hennar yogaivatni.is.
GOTT
UM
HELGINA
Ferðalag um hugmynda– og ævintýraheim Kjarvals, fyrir börn á
aldrinum 6-8 ára, verður á laugardaginn. Aðgangur er ókeypis og frá-
bær vettvangur fyrir börn til þess að kynnast verkum Kjarvals sem
eru innblásin af íslenskri náttúru og þjóðsögum. Og svo fá börnin að
mála sitt andsvar við Kjarval og náttúrunni. Þorgerður Ólafsdóttir
myndlistarmaður stýrir námskeiðinu og eru foreldrar velkomnir
með. 19. mars frá klukkan 13-16 á Kjarvalsstöðum.Blúshátíð Reykjavíkur verður sett
á laugardaginn, klukkan 14. Skóla-
vörðustígurinn verður undirlagður
vegna hátíðarinnar, sýning á göml-
um eðalbílum og blústónlist á hverju
horni. Það verður kveikt upp í grillinu
og boðið upp á grillað beikon, kjúk-
lingavængi og pylsur. Í framhaldi af
því verða tónleikar í Borgarbókasafni
í Grófinni frá klukkan 16-17.
Á sunnudaginn heldur dagskráin
áfram í Borgarbókasafninu, klukkan
15. Blústónlistarmaðurinn Chicago
Beau kemur fram og rithöfundarnir
Árni Þórarinsson, Einar Kárason og
Ólafur Gunnarsson segja blússögur.
Dagskráin heldur áfram út vikuna og
má nálgast hana á blues.is.
Kanadíski barítónsöngvarinn Tomis-
lav Lavoie fer með hlutverk Lepo-
rello í uppsetningu verksins Don
Giovanni í Íslensku óperunni.
Kanadíski barítónsöngvarinn
Tomislav Lavoie fer með hlutverk
Leporello í uppsetningu verksins
Don Giovanni í Íslensku óperunni.
Tomislav byrjaði söngferilinn
fyrir algjöra tilviljun þegar söngv-
ari sem syngja átti Mesetto í Don
Giovanni í heimalandi hans veiktist
viku fyrir frumsýninguna. Tomis-
lav var fiðluleikari í sýningunni,
en tók söngtíma aukalega, og báðu
stjórnendur sýningarinnar hann um
að læra hlutverkið á viku. Í fram-
haldinu ákvað barítónsöngvarinn að
hefja fullt söngnám.
Lokasýning á Don Giovanni verð-
ur í Hörpu á laugardaginn.
Viskíklúbbur, karókí og
spurningakeppni – uppskrift að
góðu kvöldi.
Hvernig á að fagna afmæli net-
útvarpsstöðvar?
Alvarp Nútímans
heldur upp á sitt
tveggja ára af-
mæli um helgina
og slær því upp
veislu með því
besta sem það
hefur upp á að
bjóða. Það stefnir í hið skemmti-
legasta kvöld sem byrjar á viskís-
mökkun með viskígúrúnum
MAJÓ kl. 20, færist út í improv
og karókí og endar á dansi fram
á nótt.
Hver verða úrslit
Gettu betur?
Kvennaskólinn í Reykjavík og Menntaskólinn við
Reykjavík mætast í úrslitum Gettu betur í beinni
útsendingu föstudaginn klukkan 20 á RÚV.
Oddur Tyrfingur
Oddsson
MK-ingur
„MR tekur þetta, einfaldlega
sigurstranglegra liðið.“
Börn mála verk
„MR-ingar taka þetta, ekki
spurning. Jón Kristinn er
nokkrum númerum of góður.“
Sindri Már
Fannarsson
MH-ingur
„MR tekur þetta og Jónki (Jón
Kristinn) fer ekki einn heim.“
Birna María
Másdóttir
Verslingur
Gong, gong og slökun
Söngvari fyrir tilviljun
Kjúklingavængir og blús
Podcast á afmæli
Það verður opið hjá okkur um helgina:
Laugardag 12 til 16
Sunnudag 12 til 16
VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720
Koffein Apofri - 100% hreinar koffíntöflur
VANT
AR
Þ
IG
ORKU
?
• Á morgnana
• Í skólann og prófalesturinn
• Í vinnuna
• Fyrir æfinguna
ÞÆGILEG ORKA
ÞEGAR ÞÚ ÞARFT
Á HENNI AÐ HALDA
ÁN ALLRA AUKAEFNA
Fæst í næsta apóteki, Hagkaupum, Fjarðarkaupum, 10-11 og Iceland
SÍMI 5 700 900
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI,
GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
Gildir til
26. mars
MÁLBJÖRG - FÉLAG UM STAM
BÝÐUR
FRÍTT Í BÍÓ
LAUGARDAGINN 19. MARS
KL 15:00
BÆJARBÍÓ Í HAFNARFIRÐI
ÞEMA KVIKMYNDANNA ER STAM
STUTTERER THE WAY WE TALK
64 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016