Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 18.03.2016, Side 65

Fréttatíminn - 18.03.2016, Side 65
LAUGARDAGINN 19. MARS 14.00 PÉTUR OG ÚLFURINN eftir PROKOFIEV Orgelleikari: MATTIAS WAGER frá Stokkhólmi Sögumaður: HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR leikkona Aðgangseyrir: 2500 kr. / listvinir: 50% afsláttur – ókeypis fyrir börn. PÁLMASUNNUDAGUR 20. MARS 10.00 “Upp upp mín sál”-fræðslustund um Passíusálmana. Mörður Árnason ræðir um Passíusálmana í tengslum við útgáfu sína 2015. 11.00 Messa með birkigreinum! Innreiðarinnar í Jerúsalem minnst. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og messuþjónum, Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju syngur, stj. Ása Valgerður Sigurðardóttir, félagar úr Mótettukórnum syngja, orgelleikari Hörður Áskelsson. Barnastarf. 17.00 KROSSGANGA KRISTS- Le chemin de la croix eftir franska tónskáldið Marcel Dupré. Orgelleikari: MATTIAS WAGER FRÁ STOKKHÓLMI Lesari: SÓLVEIG SIMHA LEIKKONA Verkið Le chemin de la croix eða Krossganga Krists samanstendur af 14 hugleiðingum um staðina sem Kristur stöðvaði á á krossgöngu sinni upp Golgatahæð. Byggir tónsmíðin á samnefndu ljóði eftir franska skáldið Paul Claudel, sem leikkonan Sólveig Simha flytur á frummálinu. Aðgangseyrir: 2500 kr. / listvinir: 50% afsláttur SKÍRDAGUR 24. MARS 17.00 SÖNGVAHÁTÍÐ BARNANNA 120 barna kór ásamt hljóðfæraleikurum flytja fjölbreytta kirkjusöngva. Mikil stemmning og sveifla ríkir á þessum tónleikum og fyllist kirkjan ávallt af glöðum tónleikagestum á öllum aldri. Flytjendur: Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, stjórnandi Helga Loftsdóttir Graduale futuri, Langholtskirkju, stjórnandi Rósa Jóhannesdóttir Kórskóli Langholtskirkju, stjórnandi Bryndís Baldvinsdóttir Barnakór Seljakirkju, eldri og yngri deild, stjórnandi Rósalind Gísladóttir Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju, stjórnandi: Ása Valgerður Sigurðardóttir Barnakór Ísaksskóla, stjórnandi: Ása Valgerður Sigurðardóttir ásamt hrynsveit og Klais-orgeli Hallgrímskirkju. Umsjón: Margrét Bóasdóttir, verkefnastjóri kirkjutónlistar á Biskupsstofu. Ókeypis aðgangur. SKÍRDAGUR 24. MARS 20.00 MESSA / GETSEMANESTUND / FÖSTUTÓNLEIKAR SCHOLA CANTORUM Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, heldur upp á tveggja áratuga afmælið með flutningi fagurrar kórtónlistar. Á dagskránni eru meðal annars verk eftir Tallis og Lotti og hið heimsfræga Miserere eftir Allegri. Tónleikarnir eru í beinu framhaldi af Getsemanestund kirkjunnar, þ.s. táknræn athöfn fer fram eftir að síðustu kvöldmáltíðarinnar hefur verið minnst og altari kirkjunnar verið afskrýtt. Prestur: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Stjórnandi Hörður Áskelsson. Ókeypis aðgangur. FÖSTUDAGURINN LANGI 25. MARS 11.00 HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA Á FÖSTUDAGINN LANGA. Litanía Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestur: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Stjórnandi og organisti Hörður Áskelsson. 13.00 - 18.00 PASSÍUSÁLMAR HALLGRÍMS PÉTURSSONAR- HEILDARFLUTNINGUR Í ár eru eftirtaldir lesarar úr röðum Mótettukórs Hallgrímskirkju fyrr og nú: Gísli Sigurðsson, Guðrún Hólmgeirsdóttir, Halldór Hauksson, Inga Harðardóttir, Svanhildur Óskarsdóttir, Ævar Kjartansson, Guðrún Finnbjarnardóttir, Elva Dögg Melsted,Snorri Sigurðsson og Gunnar Thor Örnólfsson. Umsjón: Svanhildur Óskarsdóttir og Ævar Kjartansson. Hörður Áskelsson og Björn Steinar Sólbergsson leika á Klais- orgelið milli lestra. Ókeypis aðgangur. PÁSKADAGUR 27. MARS 8.00 OG 11.00 HÁTÍÐARMESSUR Á PÁSKADAG Hátíðarmessur með prestum kirkjunnar og Mótettukór Hallgrímskirkju, sem flytur glæsilega hátíðatónlist tengda páskum, m.a. fornan helgileik úr Hólabók frá 1589 ( kl. 8 ). Stjórnandi Hörður Áskelsson, orgelleikari Björn Steinar Sólbergsson. Prédikun: kl. 8 Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir; kl. 11 Dr. Sigurður Árni Þórðarson. Páskabarnastarf, umsjón Inga Harðardóttir. Ensk messa kl. 14. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. ANNAR PÁSKADAGUR 28. MARS 11.00 FERMINGARMESSA. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Inga Harðardóttir cand. theol, Mótettukór Hallgrímskirkju syngur, Hörður Áskelsson leikur á orgel. DYMBILVIKA OG PÁSKAR Í HALLGRÍMSKIRKJU 2016 LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 34. STARFSÁR Miðasala á MIDI.IS og í Hallgrímskirkju s. 510 1000 Sjá nánar: LISTVINAFELAG.IS, HALLGRIMSKIRKJA.IS

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.