Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 82

Fréttatíminn - 18.03.2016, Blaðsíða 82
2 | fréttatíminn | Helgin 18. mars–20. mars 2016 Crossfit NÁNAR Á FACEBOOK TERRANOVA HEILSA Terranova stendur fyrir gæði, hreinleika og hámarks virkni. Inniheldur engin fylliefni, bindiefni eða önnur aukaefni. Terranova - bætiefnin sem virka. Fæst í fl estum heilsuvörubúðum, apotekum, Ly u og í Nettó Til að ná hámarks árangri er afar mikilvægt að huga vel að næringu líkamans. Vörurnar frá Terranova hafa hjálpað mér að ná lengra, ég finn að líkaminn er mun fljótari að jafna sig eftir æfingar sem er afar mikilvægt við stífa þálfun. SIGURJÓN ERNIR STURLUSON, MA NEMI Í ÍÞRÓTTAFRÆÐI VIÐ HÍ. Sigurjón var sigurvegari Þrekmótaraðarinnar 2015 í karlaflokki HÁMARKS VIRKNI HÁMARKS ÁRANGUR fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr, snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin Ögurhvarfi 2 | 203 Kópavogur | sími 577 6000 | garmin.is toppaðu gærdaginn GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is Á R N A S Y N IR Kíkið á verðin eftir tollalækkun Æfingapeysa, hálfrennd 6.990 kr. íþróttafatnaður stærðir 36-46 Crossfit er fyrirtæki sem var stofnað árið 2000 en rætur þess liggja lengra aftur í tímann þegar stofnandi þess, Greg Glassman, var unglingur sem æfði fimleika. Eins og margir jafnaldrar hans í íþróttinni vildi Greg verða sterkari og hann komst að því að með því að nota ketilbjöllur og lóð varð hann sterkari en fimleikamenn sem unnu aðeins með líkamsþyngd sína. Greg hafði áhuga á mörgum íþróttum og þá sérstaklega hjól- reiðum. Hann gerði sér að leik að því að keppa við vini sína í hinum ýmsu íþróttum og komst að því að vinir hans gátu unnið hann í einstökum greinum, en enginn gat sigrað hann í öllum. Hann fór því að velta fyrir sér hver fórnarkostnaðurinn væri við að sérhæfa sig aðeins í einni grein og sú spurning er kjarninn í Crossfit æfingakerfinu sem leggur áherslu á fjölbreytni og fjölhæfni. Ómar R. Valdimarsson byrjaði að æfa crossfit fyrir rúmum þremur árum og hefur gjörbreytt lífi sínu. Crossfit hefur notið mikilla vinsælda hérv á landi síðustu ár, ekki síst eftir frábæran árangur þeirra Annie Mistar Þórisdóttur og Katrínar Tönju Davíðs- dóttur á Heimsleikunum. Það eru þó ekki allir sem stefna á heimsyfirráð í greininni því fjöldinn allur af Íslend- ingum stundar Crossfit sér til ánægju og yndisauka. Einn þeirra er Ómar R. Valdimars- son, tæplega fertugur fjölskyldufaðir í Garðabæ. Ómar starfar sem blaða- maður hjá Bloomberg-fréttaveitunni og er auk þess héraðsdómslögmaður. Fyrir rúmum þremur árum ákvað hann að taka líf sitt til endurskoðunar. „Þá var ég bara orðinn spikfeitur. Ég steig á vigtina og var orðinn 99,9 kíló og ákvað að ég ætlaði ekki að verða hundrað. Ég var ekki í formi, var þreyttur og það var slen í mér. Ég hugsaði með mér að þetta gengi ekki upp og bað því um að fá byrj- endanámskeið í Crossfit í jólagjöf frá systrum mínum,“ segir Ómar sem tók æfingarnar strax föstum tökum. Hann kveðst reyndar hafa passað sig á að stíga ekki strax aftur á vigtina. „Ekki fyrr en ég var nokkuð viss um að ég hefði lést talsvert. En svo hef ég tekið af mér tuttugu kíló á þessum rúmu þremur árum. Það sem hefur gerst líka er að ég fór að borða öðruvísi. Það kemur svolítið sjálfkrafa þegar maður fer að æfa oft. Ég æfði fyrst þrisvar í viku. Síðan tók ég mataræðið í gegn, dró úr ein- földum kolvetnum og fór að borða minna brauð og hvítt pasta. Ég hætti samt ekkert alveg að borða þetta. Þeg- ar ég svo fjölgaði æfingunum upp í 5-6 þá fór mikið að gerast. Þá fór maður að sjá árangur í speglinum.“ Og þú ert ekkert að róast, ekkert á leiðinni að hætta? „Nei, ég elska crossfit, það er ekkert öðruvísi.“ Þó Ómar hafi viljað léttast þegar hann byrjaði í Crossfit var önnur und- irliggjandi ástæða. „Ég fann bara að ég þyrfti að gera þetta. Ég er enn tiltölulega ungur og er með ung börn sem krefjast orku. Maður þarf að geta leikið sér með þeim. Ég vildi bara geta haldið á ein- um krakka og kannski tveimur Bónus- pokum án þess að vera alveg búinn á því.“ Er ekkert erfitt að finna tíma fyrir æfingarnar? „Nei, það er nú það sem er svo brilljant að þetta er alla jafna ekki nema um klukkutími sem fer í æfing- Ætlaði ekki að verða hundrað kíló Hvaðan kemur Crossfit?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.