Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 43
LÆKNAblaðið 2016/102 571 „Það var mikilvægt að skilja að þetta fólk var hrjáð af borgarastríði, ofsóknum og árásum og treysti bókstaflega engum sem komu í stórum bílalestum inn í þorpin með blikkandi ljósum og framandi fólk í einkennisbúningum,“ segir dr. Cheik Ibrahime prófessor í félagsmann- fræði í Dakar í Senegal. vilja íbúanna; þeir yrðu ekki þvingaðir til neins. Með þessu byggðum við varlega upp traust á milli okkar og þeirra þar til íbúarnir voru tilbúnir að hleypa erlendu hjálparliðunum inn í þorpin. Við byrj- uðum á verst sýktu svæðunum í Sierra Leone og fórum þaðan yfir til Malí og enduðum í Gíneu þar sem við mættum mestu andstöðunni og tók okkur lengstan tíma að sannfæra íbúana um að við vær- um að hjálpa þeim en ekki að ráðast á þá. Stundum vildu yfirvöld senda vopnaðar öryggissveitir með okkur því ástandið var talið mjög hættulegt en við höfnuðum því alltaf. Þá hefði verkefnið fallið um sjálft sig.“ Konurnar gegndu mikilvægu hlutverki „Við gegndum hlutverki talsmanns hinna marghrjáðu íbúa þessara landa og kom- um sjónarmiðum þeirra á framfæri við yfirvöld og alþjóðasamfélagið. Í hvert sinn sem við komum í nýtt þorp urðum við að byrja á byrjuninni. Mikilvægast var að sýna auðmýkt og snúa algjörlega við ímyndinni sem íbúarnir höfðu af yfirvöld- um og utanaðkomandi valdbeitingu. Við urðum að sýna varnarleysi og auðmýkt og sannfæra íbúanna um að við yrðum eyru þeirra og munnur í samskiptum við yfirvöld. Við ræddum við trúarleið- toga íbúanna og þær viðræður stóðu oft klukkutímum saman. Einnig var rætt við konurnar því þær hafa mikil völd í þorpunum og stjórna greftrunarsiðunum. Útskýrt var í hverju smithættan var fólgin og gátum komist að samkomulagi um að hægt væri sýna hinum látnu táknræna virðingu án þess að snerta líkin. Í sumum þorpum höfðu einhverjir íbú- ar verið handteknir og fangelsaðir vegna andstöðu sinnar og við þurftum þá að semja um lausn þeirra áður en hægt var að vinna traust þorpsbúanna. Þetta var stundum mjög tímafrekt og alþjóðasam- félagið var eðlilega mjög óþolinmótt. Við urðum því einnig að koma erlendum sam- starfsmönnum okkur í skilning um mikil- vægi þess að sýna þolinmæði, auðmýkt og skilning á aðstæðum. Aðstæðurnar sem við tókumst á við þarna eru í rauninni sammannlegar um allan heim og í öllum samfélögum. Þegar hætta steðjar að, hnappast samfélögin saman og verja sig gegn henni. Þorpssam- félög þessara Afríkulanda eru í engu frá- brugðin öðrum samfélögum að því leyti. Saga, menning og siðir hvers samfélags ráða því síðan hvernig viðbrögðin verða og það er mikilvægt að skilja þau til að geta komist í gegnum varnirnar og byrjað að hjálpa. Lexían sem við lærðum þarna mun gagnast alls staðar í framtíðinni þegar svipaðar aðstæður koma upp,“ sagði Cheik Ibrahime að lokum. U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.