Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 11
LÆKNAblaðið 2016/102 539 einkenni, meðgöngulengd við greiningu og fæðingu, mynd- greiningar, niðurstöður myndgreininga, fylgikvilla og fósturlát ásamt vefjagreiningum hjá þeim konum sem gengust undir að- gerð. Farið var yfir aðgerðarlýsingar og svæfingarskrár hjá þeim konum sem fóru í gallblöðrutöku á ofangreindu tímabili og að- gerðartími, þyngd og hæð sjúklings, ASA-flokkun og fylgikvillar aðgerðar skráð. Nýgengi var reiknað út frá tölum um fæðingar á vef Hagstofu Íslands á árunum 1990-2010.16 Tilskilin leyfi frá vís- indasiðanefnd Landspítala og Persónuvernd voru fengin fyrir rannsókninni. Upplýsingar voru skráðar í tölvuforritið Microsoft Excel® (Microsoft, Redmond WA). Niðurstöður Rannsóknarþýði og sjúkdómsgreiningar Alls greindust 182 konur með gallvegasjúkdóm á meðgöngu og 6 vikum eftir barnsburð á tímabilinu 1990-2010. Níutíu og sjö konur voru útilokaðar þar sem greining átti sér stað á 6 vikna tímabilinu eftir barnsburð. Sjö konur voru útilokaðar vegna rangrar grein- ingar og ein vegna þess að sjúkraskrá fannst ekki. Það voru því 77 konur sem uppfylltu skilyrði rannsóknarinnar. Nýgengi gall- steinasjúkdóma á rannsóknartímabilinu reiknast því 0,09%. Upp- lýsingar um meðalaldur, legutíma og fjölda innlagna má finna í töflu I. Flestar konurnar fengu greininguna gallkveisa á rannsóknar- tímabilinu (n=59, 76,6%). Aðrar greiningar voru bráð gallblöðru- bólga, gallgangasteinar (choledocholithiasis) eða gallsteina-brisbólga (tafla II). Þrjár konur fengu greininguna brisbólga en einungis í einu tilfelli var hægt að tengja hana við gallsteina. Hin tvö tilfellin voru annars vegar brisbólga í kjölfar gallvegaspeglunar (endoscopic retrograde cholangiopancreatography, ERCP) þar sem fjarlægðir voru steinar úr gallgangi og hins vegar brisbólga af óljósum toga þar sem ekki voru greindir gallsteinar í gallblöðru eða gallgöngum á myndrannsóknum. Ekkert tilfelli sýkingar í gallgöngum átti sér stað á meðal rannsóknarþýðis. Klínísk birtingarmynd, greiningaraðferðir og aðgerðir Algengasta einkennið sem konur höfðu við komu var verkur í efri hægri fjórðungi kviðar með eða án leiðni aftur í bak eða upp í herðablöð (n=63). Önnur einkenni voru fátíðari en ógleði, upp- köst og kláði voru tiltölulega algeng einkenni (mynd 1). Meðal einkenna sem féllu í flokkinn „Annað“ voru niðurgangur (n=5), öndunaróþægindi (n=5) og dökkt þvag (n=2) ásamt öðrum sjald- gæfari einkennum á borð við slappleika, hroll, minnkaða matar- lyst og ljósar hægðir. Algengasta myndrannsóknin var ómskoðun en 70 konur (91%) voru greindar þannig. Í flestum tilfellum var ómun eina mynd- rannsóknin sem gerð var. Tvær konur fóru í kjölfar ómunar í gallvegaspeglun og þrjár í segulómun af gallvegum (magnetic re- sonance cholangiopancreatography, MRCP) vegna gruns um steina í gallvegum. Í fjórum tilfellum fóru konur bæði í segulómun og í gallvegaspeglun í kjölfar ómunar. Ein kona hlaut greiningu með segulómunarrannsókn og gallvegaspeglun án undangenginnar ómskoðunar en þá hafði gallblaðran þegar verið fjarlægð. Engar myndrannsóknir af gallblöðru eða brisi fundust hjá 6 konum en líklegt verður að teljast að greining hafi þá farið fram utan Landspítala. Af 77 konum rannsóknarinnar fóru 32 í gallblöðrutöku á rann- sóknartímabilinu, 15 á meðgöngu og 16 innan 6 vikna frá fæðingu. Ábendingar fyrir aðgerðum voru bráð gallblöðrubólga (n=6) eða endurtekin gallkveisa (n=26). Allar aðgerðirnar voru framkvæmd- R A N N S Ó K N Tafla II. Greiningar kvenna rannsóknarinnar. Fjöldi sjúklinga n=77 Gallkveisa 59 Bráð gallblöðrubólga 7 Brisbólga 1 Gallgangasteinar 10 Tafla I. Aldursdreifing, fjöldi innlagna per konu og legutími. Fjöldi sjúklinga n=77 Meðalaldur 29 (bil: 19-43) Meðal innlagnarfjöldi 1,8 (bil: 1-7) Legutími í dögum (miðgildi) 1 (bil: 1-31) Mynd 1. Einkenni við greiningu. Hver súla sýnir hlutfall sjúklinga með tiltekið ein- kenni. RUQ = right upper quadrant (hægri efri fjórðungur kviðar). Mynd 2. Fjöldi gallblöðrutakna á hverjum þriðjungi meðgöngu. Þriðjungur meðgöngu

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.