Læknablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 36
564 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Á árlegu þingi samtaka evrópskra
lyflækna vann Erna Sif Óskarsdóttir
læknanemi á 6. ári fyrstu verðlaun fyr-
ir besta ágrip á veggspjaldi. Erna Sif
hóf nám í læknisfræði haustið 2011 en
stundaði samhliða nám í næringarfræði
og lauk mastersprófi í þeirri grein fyrir
réttum tveimur árum. Áður hafði hún
stundað flugnám og öðlast atvinnuflug-
mannsréttindi.
„Þetta var þriðja árs verkefnið mitt í lækn-
isfræðinni og var reyndar hluti af stærra
rannsóknarverkefni sem Þórarinn Árni
Bjarnason deildarlæknir var að vinna und-
ir handleiðslu Karls Andersen hjartasér-
fræðings,“ segir Erna Sif.
„Þórarinn Árni auglýsti eftir
læknanemum til að starfa við rannsóknina
þegar ég var á öðru ári og við vorum þrjú
sem réðumst til hans. Okkar hlutverk var
að kalla fólk í rannsóknina, taka blóðpruf-
ur og skrá niðurstöður. Við ákváðum síðan
öll þrjú að gera okkar þriðja árs verkefni
út frá þessari stóru rannsókn Þórarins
Árna.“
Þriðja árs verkefnið má líta á sem BS-
verkefni læknanema enda verða ákveðin
þáttaskil í náminu eftir þriðja árið. Erna
Sif segir að misjafnt sé hvernig læknanem-
ar vinni verkefnið, „Þetta er 18 eininga
verkefni sem unnið er á síðari önn þriðja
ársins. Sumir gera eigin rannsókn en
sumir vinna með gögn frá öðrum og í lok
námsársins eru verkefnin kynnt og þar
með er því oftast nær lokið. En við héldum
áfram með okkar verkefni og höfum bætt
við það jafnt og þétt og erum nú búin að
kynna það á þremur ráðstefnum lyflækna
að þeirri síðustu meðtalinni. Í fyrra fórum
við til Glasgow og Tallin og núna í haust
til Amsterdam.“
Auk Ernu Sifjar eru það Linda Björk
Kristinsdóttir og Steinar Orri Hafþórsson
sem unnið hafa að rannsókninni undir
handleiðslu Karls Andersen og Þórarins
Árna en hvert þeirra um sig valdi sér eigin
leið út frá meginrannsókninni.
Tengsl D-vítamíns við sykurþol
„Í stóru rannsókninni var Þórarinn Árni
að skoða sjúklinga sem komu inn á hjarta-
deildina með brátt kransæðaeinkenni og
sykurþol hjá þeim. Mitt verkefni snerist
um að rannsaka hvort finna mætti sam-
band á milli styrks D-vítamíns í blóði
og sykurþols hjá þessum sjúklingahópi.
Samkvæmt fyrstu niðurstöðum, sem náðu
til rúmlega 100 sjúklinga, kom í ljós að því
lakari sem D-vítamínbúskapurinn var,
því meiri líkur voru á að sykurefnaskiptin
væru óeðlileg; annaðhvort forstigsein-
kenni sykursýki eða sjúklingurinn var
með áður ógreinda sykursýki af tegund
tvö. Síðan eigum við gögn yfir töluvert
fleiri sjúklinga sem ég er að vinna úr núna
tölfræðilega og er með grein í vinnslu. Af
þessum fyrsta sjúklingahópi voru aðeins
28% með eðlileg sykurefnaskipti en við
vorum einnig búin að útiloka þá sem voru
með áður greinda sykursýki. Hlutfall
þeirra sem voru með óeðlileg sykurefna-
skipti er því nokkuð hærra en í almennu
þýði. Vissulega þarf að rannsaka þetta
mun betur en það má velta því fyrir sér
hvort D-vítamíngjöf til þessara sjúklinga
myndi draga úr þróun sykursýki og vera
þá eins konar forvörn. Það þyrfti þó að
skoðast vandlega.“
Erna Sif segir að þetta hafi ekki ver-
ið rannsakað áður hjá þessum tiltekna
sjúklingahópi en vissulega hafi tengsl
D-vítamíns við sykurbúskap líkamans
verið rannsökuð. „Niðurstöður eru reynd-
ar nokkuð misvísandi en margar aðrar
rannsóknir hafa sýnt svipaðar niður-
stöður. “
Veggspjald Ernu Sifjar um niðurstöð-
ur rannsóknarinnar var samþykkt inn á
sýningu ráðstefnunnar í Amsterdam. „Tíu
dögum fyrir ráðstefnuna var svo hringt í
mig og mér tilkynnt að veggspjaldið mitt
hefði verið valið eitt af þremur bestu og ég
beðin um að halda 10 mínútna fyrirlestur
um efni rannsóknarinnar. Sem ég og gerði
ásamt tveimur öðrum. Daginn eftir var
síðan tilkynnt hver væri sigurvegari af
þessum þremur. Þetta var frábær viður-
kenning fyrst og fremst en henni fylgdi
þessi fína karfa með hollensku sælgæti,
virðulegt viðurkenningarskjal og verð-
launafé að upphæð 500 evrur.“
Veggspjald af þessu tagi er sannarlega
ekki eins og hvert annað plaggat á vegg
heldur úthugsuð lýsing í fáum orðum á
yfirleitt mjög flóknu efni. „Það getur verið
meiriháttar höfuðverkur að koma efni
rannsóknar frá sér í til dæmis 250 orðum
enda oft erfiðara að skrifa stuttan og skýr-
an texta heldur en langan. Það er kannski
galdurinn við gott veggspjald að það sé
skýrt og öll efnisatriði komist til skila þrátt
fyrir knappan texta. Uppsetningin skiptir
Ekki eitt,
ekki tvennt,
heldur þrennt
Erna Sif Óskarsdóttir er ein af þessum
konum sem virðast geta allt