Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.2016, Side 36

Læknablaðið - 01.12.2016, Side 36
564 LÆKNAblaðið 2016/102 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Á árlegu þingi samtaka evrópskra lyflækna vann Erna Sif Óskarsdóttir læknanemi á 6. ári fyrstu verðlaun fyr- ir besta ágrip á veggspjaldi. Erna Sif hóf nám í læknisfræði haustið 2011 en stundaði samhliða nám í næringarfræði og lauk mastersprófi í þeirri grein fyrir réttum tveimur árum. Áður hafði hún stundað flugnám og öðlast atvinnuflug- mannsréttindi. „Þetta var þriðja árs verkefnið mitt í lækn- isfræðinni og var reyndar hluti af stærra rannsóknarverkefni sem Þórarinn Árni Bjarnason deildarlæknir var að vinna und- ir handleiðslu Karls Andersen hjartasér- fræðings,“ segir Erna Sif. „Þórarinn Árni auglýsti eftir læknanemum til að starfa við rannsóknina þegar ég var á öðru ári og við vorum þrjú sem réðumst til hans. Okkar hlutverk var að kalla fólk í rannsóknina, taka blóðpruf- ur og skrá niðurstöður. Við ákváðum síðan öll þrjú að gera okkar þriðja árs verkefni út frá þessari stóru rannsókn Þórarins Árna.“ Þriðja árs verkefnið má líta á sem BS- verkefni læknanema enda verða ákveðin þáttaskil í náminu eftir þriðja árið. Erna Sif segir að misjafnt sé hvernig læknanem- ar vinni verkefnið, „Þetta er 18 eininga verkefni sem unnið er á síðari önn þriðja ársins. Sumir gera eigin rannsókn en sumir vinna með gögn frá öðrum og í lok námsársins eru verkefnin kynnt og þar með er því oftast nær lokið. En við héldum áfram með okkar verkefni og höfum bætt við það jafnt og þétt og erum nú búin að kynna það á þremur ráðstefnum lyflækna að þeirri síðustu meðtalinni. Í fyrra fórum við til Glasgow og Tallin og núna í haust til Amsterdam.“ Auk Ernu Sifjar eru það Linda Björk Kristinsdóttir og Steinar Orri Hafþórsson sem unnið hafa að rannsókninni undir handleiðslu Karls Andersen og Þórarins Árna en hvert þeirra um sig valdi sér eigin leið út frá meginrannsókninni. Tengsl D-vítamíns við sykurþol „Í stóru rannsókninni var Þórarinn Árni að skoða sjúklinga sem komu inn á hjarta- deildina með brátt kransæðaeinkenni og sykurþol hjá þeim. Mitt verkefni snerist um að rannsaka hvort finna mætti sam- band á milli styrks D-vítamíns í blóði og sykurþols hjá þessum sjúklingahópi. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum, sem náðu til rúmlega 100 sjúklinga, kom í ljós að því lakari sem D-vítamínbúskapurinn var, því meiri líkur voru á að sykurefnaskiptin væru óeðlileg; annaðhvort forstigsein- kenni sykursýki eða sjúklingurinn var með áður ógreinda sykursýki af tegund tvö. Síðan eigum við gögn yfir töluvert fleiri sjúklinga sem ég er að vinna úr núna tölfræðilega og er með grein í vinnslu. Af þessum fyrsta sjúklingahópi voru aðeins 28% með eðlileg sykurefnaskipti en við vorum einnig búin að útiloka þá sem voru með áður greinda sykursýki. Hlutfall þeirra sem voru með óeðlileg sykurefna- skipti er því nokkuð hærra en í almennu þýði. Vissulega þarf að rannsaka þetta mun betur en það má velta því fyrir sér hvort D-vítamíngjöf til þessara sjúklinga myndi draga úr þróun sykursýki og vera þá eins konar forvörn. Það þyrfti þó að skoðast vandlega.“ Erna Sif segir að þetta hafi ekki ver- ið rannsakað áður hjá þessum tiltekna sjúklingahópi en vissulega hafi tengsl D-vítamíns við sykurbúskap líkamans verið rannsökuð. „Niðurstöður eru reynd- ar nokkuð misvísandi en margar aðrar rannsóknir hafa sýnt svipaðar niður- stöður. “ Veggspjald Ernu Sifjar um niðurstöð- ur rannsóknarinnar var samþykkt inn á sýningu ráðstefnunnar í Amsterdam. „Tíu dögum fyrir ráðstefnuna var svo hringt í mig og mér tilkynnt að veggspjaldið mitt hefði verið valið eitt af þremur bestu og ég beðin um að halda 10 mínútna fyrirlestur um efni rannsóknarinnar. Sem ég og gerði ásamt tveimur öðrum. Daginn eftir var síðan tilkynnt hver væri sigurvegari af þessum þremur. Þetta var frábær viður- kenning fyrst og fremst en henni fylgdi þessi fína karfa með hollensku sælgæti, virðulegt viðurkenningarskjal og verð- launafé að upphæð 500 evrur.“ Veggspjald af þessu tagi er sannarlega ekki eins og hvert annað plaggat á vegg heldur úthugsuð lýsing í fáum orðum á yfirleitt mjög flóknu efni. „Það getur verið meiriháttar höfuðverkur að koma efni rannsóknar frá sér í til dæmis 250 orðum enda oft erfiðara að skrifa stuttan og skýr- an texta heldur en langan. Það er kannski galdurinn við gott veggspjald að það sé skýrt og öll efnisatriði komist til skila þrátt fyrir knappan texta. Uppsetningin skiptir Ekki eitt, ekki tvennt, heldur þrennt Erna Sif Óskarsdóttir er ein af þessum konum sem virðast geta allt

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.