Læknablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 42
570 LÆKNAblaðið 2016/102
Hér á landi var staddur í október doktor
Cheik Ibrahime frá Senegal í Afríku og
flutti erindi á málþingi um alþjóðlega
heilsu sem haldið var í Háskóla Íslands.
Ibrahime er prófessor í félagsmannfræði
með læknisfræðilega mannfræði og um-
hverfisfræði sem aukagreinar og gegnir
prófessorsstöðu við ríkisháskólann í
Dakar í Senegal. Erindi hans fjallaði um
félags- og mannfræðilegar aðferðir við
að vinna bug á ebólufaraldrinum í Vest-
ur-Afríku.
„Ég hef unnið fyrir Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunina WHO í mörg ár og sérstaklega
í baráttunni gegn HIV í Afríkulöndum.
Þegar ebólufaraldurinn braust út varð
fljótt ljóst að ekki yrði hægt að ráða
niðurlögum hans með læknisfræðilegum
aðferðum eingöngu. Félagsleg og menn-
ingarleg þekking á hefðum og siðum
hinna fjölmörgu ættbálka og þorpssamfé-
laga sem urðu fyrir barðinu á sjúkdómn-
um var í rauninni forsenda þess að hægt
væri að vinna á honum. Þessi sjónarmið
voru ekki höfð til hliðsjónar í upphafi
baráttunnar en okkur tókst að ná eyrum
WHO og ég og samstarfsfólk mitt vorum
fengin til að vera eins konar framverðir í
baráttunni; fara á undan lækna- og hjúkr-
unarteymunum inn í þorpin og vinna
íbúana á okkar band áður en hægt var að
hefjast handa við smitvarnir og læknis-
hjálp,“ segir Ibrahime í upphafi.
„Staðreyndin var sú að íbúar afskekktra
þorpa í Sierra Leone, Malí og Gíneu voru
mjög andsnúnir allri hjálp frá vestrænum
löndum og því var nauðsynlegt að senda
á undan þeim teymi félags- og mann-
fræðinga til að skilja í hverju andstaðan
fólst og finna leiðir til að fá íbúana til
samvinnu. Þeir neituðu að senda sýkta
einstaklinga í sjúkraskýlin og réðust á
lækna og sjúkrabíla þegar átti að sækja
sjúklingana. Fólkið taldi að ebólafar-
aldurinn væri hinum erlendu læknum að
kenna, og ýmist snerist til varnar eða flúði
úr þorpunum út í skógana þegar átti að
sækja sjúklinga eða einangra þorpin.
Það var mikilvægt að skilja að þetta
fólk var hrjáð af borgarastríði, ofsóknum
og árásum og treysti bókstaflega eng-
um sem komu í stórum bílalestum inn í
þorpin með blikkandi ljósum og framandi
fólk í einkennisbúningum. Öllum slíkum
táknum um vald er tekið með fullkominni
tortryggni. Skiljanlega. Þar á ofan eru enn
mjög lifandi í munnlegum frásögnum
íbúanna skelfilegar reynslusögur þegar
forfeður þeirra voru teknir og hnepptir í
þrældóm af hvítum þrælasölum svo allt
lagðist á eitt um að gera þetta mjög erfitt.“
Ibrahime segir að mannfræðiteymið
hafi oft lent í lífshættu og mætt mikilli tor-
tryggni í upphafi en ávallt tekist að vinna
traust íbúanna að lokum.
„Við sem fórum á undan urðum því að
afþakka ökutæki og fara fótgangandi inn
í þorpin klædd sömu klæðum og íbúarnir
og gefa það mjög skýrt til kynna að við
værum komin til að hlusta og fara eftir
Saga, menning og siðir
ráða viðbrögðunum
AKRANES • BORGARNES • BÚÐARDALUR • GRUNDARFJÖRÐUR • HÓLMAVÍK • HVAMMSTANGI • ÓLAFSVÍK • STYKKISHÓLMUR
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Starf læknis í Stykkishólmi
Laus er til umsóknar staða læknis við Heilbrigðistofnun
Vesturlands í Stykkishólmi.
Starfið felur fyrst og fremst í sér verkefni á háls- og bakdeild með möguleikum á tengingu
við störf í heilsugæslu. Hér er um framtíðarstarf að ræða. Áhugavert fyrir t.d sérfræðing eða
verðandi sérfræðing í heimilislækningum með sérstakan áhuga á háls- og bakvandamálum,
verkjameðferð og stoðkerfisvandamálum almennt.
Háls- og bakvandamálum er sinnt á sérstakri 13 rúma legudeild, sem tekur við sjúklingum af
öllu landinu. Í tengslum við deildina er stunduð sérhæfð verkja meðferð með búnaði til gegn-
um lýsingar. Aðstaða til sjúkraþjálfunar og almennrar endurhæfingar eru mjög góð. Stofnunin
er vel mönnuð sjúkraþjálfurum með breiða þekkingu á sviði endurhæfingar auk sérþekkingar
og þjálfunar í greiningu og meðferð stoðkerfisvandamála. Á staðnum er rekin heilsu gæslu-
stöð, sem þjónar um 1200 manns. Rannsóknastofa vel tækjum búin er starf rækt. Þá eru þar
starfrækt sjúkra- og hjúkrunarrými í rúmgóðu og vel búnu húsnæði. Aðstaða er til innlagna
bráðveikra.
Umsókn skal fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, starfsferil, rannsóknir og kennslustörf. Laun
eru sam kvæmt kjara samningi Læknafélags Íslands og ríkisins. Við ráðningar í störf á HVE er
ávallt tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til 31. desember 2016.
Upplýsingar um starfið gefa Þórir Bergmundsson framkvæmdastjóri lækninga og rekstrar,
GSM 8496987, tölvupóstur: thorir.bergmundsson@hve.is og Jósep Blöndal yfirlæknir
Stykkishólmi, s. 4321200, tölvupóstur: josep@hve.is.
Umsókn ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Ásgeiri Ásgeirssyni forstjóra
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, asgeir.asgeirsson@hve.is.
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R