Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2016, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 01.03.2016, Blaðsíða 37
LÆKNAblaðið 2016/102 145 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Norrænu sjúkrahúsleikarnir verða haldnir hérlendis dagana 9.-14. júní í sumar. Hjördís Guðmundsdóttir verk- efnastjóri leikanna á Íslandi segir að von sé á um 600 þátttakendum frá Norður- löndunum og allt að 200 Íslendingum. Keppt er í 15 greinum íþrótta og íþrótta- svæðið í Laugardal að miklu leyti lagt undir. „Nú þegar eru rúmlega 500 keppendur skráðir og við reiknum með að endanleg tala verði í kringum 800 manns,“ segir Hjördís. „Við miðum við að skráningu ljúki þann 30. mars og eins alltaf eru Ís- lendingarnir seinir til. Ég vil endilega hvetja alla sem áhuga hafa til að skrá sig tímanlega.“ Það kemur kannski einhverjum á óvart að Norrænu sjúkrahúsleikarnir hafa verið haldnir annað hvert ár allt frá árinu 1975 þó formleg samtök hafi ekki verið stofnuð um leikana fyrr en árið 1984. Fyrstu leik- arnir voru haldnir í Kaupmannahöfn og hafa Danir haldið leikana alls 10 sinnum, Noregur og Svíþjóð 5 sinnum hvor og Ísland einu sinni, árið 2002. Hjördís segir þessa ójöfnu skiptingu stafa af því að löndin skiptast ekki á um að halda leikana heldur er sótt um að halda þá hverju sinni. „Það eru heilbrigðisstofnanirnar sem mynda samtökin sem sækja um að halda leikana og Landspítalinn sótti semsagt um þetta núna og því eru leikarnir haldnir hér. Við verðum vör við mikla eftirvænt- ingu hjá norrænu þátttakendunum eftir því að koma til Íslands enda er landið eitt vinsælasta ferðamannaland í heimi þessa dagana. Við pössuðum að panta hótelher- bergi fyrir löngu síðan og því geta erlendir aðilar enn komist inn á hótel við Laugar- dalinn. En þetta lofar allt mjög góðu og við erum spennt að sjá hvernig til tekst.“ Keppnisgreinar í leikunum eru 15 alls, bæði hóp- og einstaklingsíþróttir. Keppt er í 5, 10 og 21 km hlaupi auk boðhlaups, golfs, handbolta, blaks, knattspyrnu, keilu, tennis, borðtennis, badminton, boule, skotfimi, pílukasts, bandí og fitness. Hjördís segir að liðin séu ýmist blönduð eða kynskipt og hvetur starfsmenn ís- lenskra heilbrigðisstofnana til að stofna lið og taka þátt. „Golfkeppnin er hluti af mótaröð Landspítalans sem ætti að vera hvatning til að taka þátt en rétt er að taka fram að allir geta verið með, það eru engin „lágmörk“ fyrir þátttöku. Flestir taka þátt ánægjunnar vegna og margir hafa verið með mörgum sinnum og hafa eignast góða vini í gegnum þátttöku í leikunum. Eitt af því sem margir hlakka til er lokahátíðin sem haldin verður í Laugardalshöllinni laugardagskvöldið 11. júní og sumir segj- ast aðallega vera með til að geta tekið þátt í veislunni. Það er líka rétt að undirstrika að allir starfsmenn heilbrigðisstofnana geta verið með, þetta er ekki eingöngu ætlað sérmenntuðu heilbrigðisstarfsfólki.“ Og þá er ekki annað eftir en að hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að skrá sig og gera Norrænu sjúkrahúsleikana í Reykjavík 2016 að eftirminnilegu íþrótta- móti og undirstrika með því mikilvægi hreyfingar og líkamsræktar. Norrænu sjúkrahúsleikarnir í Reykjavík í sumar Landspítala hlauparar í Gautaborg 2014.Landspítala strandblakkonur í Gautaborg 2014. „Nú þegar eru rúmlega 500 keppendur skráðir og við reiknum með að endanleg tala verði í kringum 800 manns,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir verkefnastjóri Norrænu sjúkrahússleikanna 2016. Blandað fótboltalið Landspítala í Lillehammer 2012. Gera ráð fyrir 800 þátttakendum

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.