Fréttatíminn - 29.04.2016, Side 8
Viðbragð Forstöðukona Seljahlíðar segir starfsmenn sína hafa gert ófyrirgefanleg mistök
Neitar því að Judith hafi hringt
Ergo veitir
umhverfisstyrk
sími 440 4400 > www.ergo.is
Umhverfissjóður Ergo auglýsir eftir
umsóknum um umhverfisstyrk
Sjóðurinn úthlutar umhverfisstyrk að fjárhæð
500.000 kr. að jafnaði einu sinni til tvisvar á
ári til frumkvöðlaverkefna en markmið sjóðsins
er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á sviði
umferðar- og umhverfismála.
Sendu inn þína hugmynd
Einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um
styrkinn. Viðskiptaáætlun þarf að fylgja
umsókninni ásamt skýringu á því hvernig
nýta eigi styrkinn.
Frestur til að senda inn umsóknir er til 20. maí.
Öllum umsóknum verður svarað.
Kynntu þér málið nánar á ergo.is
Judith Júlíusdóttir, 96
ára íbúi í þjónustuíbúð
Reykjavíkurborgar, fékk
blóðtappa í heila og þurfti
að hringja öryggiskallkerfi í
einn og hálfan tíma áður en
henni var komið til hjálpar.
Konurnar tvær á nætur-
vakt heyrðu hvorki í kall-
inu né í dóttur Judithar og
lögreglunni sem bönkuðu
á gluggana og hringdu
dyrabjöllunni.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Judith Júlíusdóttir er hraust kona
á tíræðisaldri sem hafði séð um
sig sjálf þar til hún fyrir ári flutti í
þjónustuíbúð sem Reykjavíkurborg
rekur í Seljahlíð í Breiðholti. Ætt-
ingjar hennar töldu, öryggisins
vegna, að betra væri að hún byggi
í þjónustuíbúð þar sem er sólar-
hringsvöktun og starfsfólk sem gæti
verið henni innan handar ef eitt-
hvað kæmi upp á. Hvert herbergi er
sérstaklega búið öryggiskallkerfi.
Auk þess er neyðarhnappur frá
Securitas á hverju herbergi.
Fyrir rúmri viku fannst Judith
hún vera máttfarin en fann ekki til
og hafði því ekki miklar áhyggjur.
Klukkan fjögur um nótt vaknaði
hún með ónot og fann að öll vinstri
hlið líkamans var dofin. Hún hafði
fengið blóðtappa í heila og hringdi
því á næturvaktina eftir hjálp. Selja-
hlíð er þriggja hæða hús með 72
íbúum. Þessa nótt voru tvær kon-
ur á vakt en forstöðukonan var á
bakvakt.
Þó Judith hringdi látlaust í fimm-
tíu mínútur eftir hjálp var enginn
sem brást við og kom henni til
bjargar. Þá greip hún til þess ráðs að
hringja úr farsíma sínum til dóttur
sinnar, Margrétar Stefánsdóttur,
sem býr í sömu götu. Hún þorði
hinsvegar ekki að hringja neyðar-
hnappi Securitas. Margréti brá auð-
vitað við símtalið og var komin á
staðinn aðeins nokkrum mínútum
síðar. Margrét hélt áfram að hringja
í vaktsíma hússins en án árangurs.
Þegar hún kom að húsinu hringdi
hún dyrabjöllunni en enginn
svaraði. Eftir að hafa reynt að ná til
starfsfólksins í nokkurn tíma ákvað
hún að hringja á lögregluna. „Ég
var búin að ganga hringinn í kring-
um um húsið, banka á glugga og
reyna að láta í mér heyra en enginn
opnaði. Lögreglan kom á staðinn en
hafði ekki önnur úrræði en ég til að
komast inn. Útidyrnar voru læstar
og enginn svaraði dyrabjöllunni. Á
endanum kom næturvaktin til dyra
og opnaði fyrir okkur. Þá hafði liðið
einn og hálfur klukkutími frá því
mamma hringdi fyrst eftir hjálp,“
segir Margrét.
Hún segir þær hafi fengið þær
skýringar að hvorki bjöllusími á her-
bergi móður hennar né dyrasíminn
hafi verið stilltir á vaktsíma starfs-
fólksins. Þessvegna hafi enginn
heyrt til þeirra. „Mér finnst alvarlegt
að kerfið þarna sé ekki í lagi og hvað
eru fáir á vakt. Mér finnst það vera
mannekla að hafa tvær fullorðnar
konur á vakt hjá 72 íbúum sem
borga sérstaklega fyrir sólarhring-
sþjónustu. Það getur varla talist góð
umönnun. Við eru mjög reið yfir því
hvað þetta tók langan tíma og þökk-
um fyrir að ekki fór verr. Mamma
er enn að jafna sig og tíminn leiðir
í ljós hvort hún nái sér að fullu eftir
blóðtappann.“
Margrét segir móður sína mjög
ánægða á Seljahlíð og þar sé alla
jafna mjög gott starfsfólk. Henni
finnist hinsvegar ekki annað hægt
en að láta vita af atvikinu þar sem
um lífsspursmál hafi verið að ræða.
Rekstrarvandi Seljahlíðar hefur
áður ratað í fjölmiðla en fyrir ári
fjallaði Stöð 2 um að gríðarlegt álag
væri á starfsfólki heimilisins og ekk-
ert gengi að ráða nýtt fólk. Starfs-
fólk heimilisins hafði þá skrifað
borgarstjóra og landlækni bréf og
gert þeim grein fyrir að enginn
hjúkrunarfræðingur hafi fengist til
að sinna sumarafleysingum og því
hafi annars árs læknanemi verið
fenginn til starfa. Á tímabilum hafi
enginn hjúkrunarfræðingur verið
að störfum á heimilinu sem er bæði
dvalar- og hjúkrunarheimili fyrir
aldraða. Forsvarsmenn velferðar-
sviðs Reykjavíkurborgar deildu
áhyggjum sínum af stöðunni og
ítrekuðu að erfiðlega gengi að fá
fólk í svo illa launuð störf sem
hjúkrun við aldraða.
„Sauð á mér eftir svar forstöðu-
konunnar“
Katrín Ósk Jóhannsdóttir, barna-
barn Judithar, hefur sjálf unnið um
tíma á Seljahlíð og ákvað því að
ganga á forstöðukonuna og inna
eftir svörum. Hún segist orðlaus
yfir viðbrögðum sem hún fékk.
„Þetta atvik kom flatt upp á
okkur. Amma hefur ekki áður þurft
á slíkri hjálp að halda og segir sjálf
að sér líði vel þarna, þó auðvitað
séu hlutir sem mættu betur fara. Ég
ákvað að spyrja forstöðukonu Selja-
hlíðar um hversvegna það gat gerst
í þjónustuíbúð að amma fengi ekki
hjálp í neyðartilviki fyrr en einni
og hálfri klukkustund eftir að hún
fyrst kallaði á hjálp. Forstöðukonan
glotti við mér og ég fékk þau svör að
það væri ekkert við þessu að gera.
Hún sagðist ekki vita hversvegna
ekkert heyrðist í dyrabjöllunni. Nú
væri þetta búið og gert og ekkert
við því að gera. Ég fékk engin svör
frá henni og það sauð á mér að fá
þessi viðbrögð. Ég óskaði því eftir
að fá að tala við næturvaktarstarfs-
mennina í eigin persónu, í von um
að geta fengið einhverjar skýringar.
Forstöðukonan greindi mér frá
því að starfsmennirnir ynnu bara
á næturvöktum og myndu aldrei
gera sér sérstaka ferð að heimilinu
til að ræða þetta mál. Hún sagði að
mögulega gæti hún sent okkur nótu
um málið.“
Katrín segir nauðsynlegt að vekja
athygli á þessu og að svarað sé
fyrir það þegar upp koma mistök af
þessu tagi. „Því hvað ef þetta hefði
farið verr? Ef þetta hefði verið upp
á líf og dauða? Dugar að segja að
þetta sé bara búið og gert?“
Velferð Allir öryggisventlar brugðust þegar Judith fékk blóðtappa
Enginn heyrði neyðarkallið
Í Seljahlíð í Breiðholti búa 72 íbúar en aðeins tvær konur eru á næturvakt. Erfiðlega hefur gengið að manna heimilið.
Margrét Árdís Ósvaldsdóttir, forstöðukona
á Seljahlíð, telur að Judith hafi alls ekki
hringt á hjálp úr herbergi sínu. Þær upp-
lýsingar hafi hún frá næturvaktinni.
Skýringar forstöðukonunnar eru í algjörri andstöðu
við frásagnir Judithar og fjölskyldu hennar sem Frétta-
tíminn hefur rætt við. „Þetta er auðvitað alveg aga-
legt. Þetta er leiðindaatvik sem ekki er hægt að leið-
rétta, þetta átti sér stað og vonandi kemur þetta ekki
fyrir aftur,“ segir Margrét. „Atvikið gerist aðfaranótt
sumardagsins fyrsta. Ég fékk starfsmann frá Securitas
til að fara yfir málið daginn eftir og hann komst að
því að símar næturvaktarinnar hafi verið stilltir hljóð-
lausir. Þessvegna heyrðu þeir ekki í símtölum sem
streymdu inn frá lögreglu og aðstandendum. Það eru
auðvitað ófyrirgefanleg mistök.“
Aðspurð um hversvegna hún efist um að Judith hafi
hringt úr herbergi sínu á hjálp, segir Margrét: „Já, hún
telur sig hafa hringt en hún gerði það ekki. Ég fékk
þær upplýsingar frá næturvaktinni. En hún upplifir
þarna ákveðna bið. Á hæðunum okkar eru vaktstöðv-
ar og þær taka allar hringingar og þær fara ekkert af
fyrr en búið er að svara. Ef hún hefði hringt þá hefði
verið svarað. Það er ekki hægt að hunsa kerfið.“
Skilurðu reiði aðstandenda hennar yfir atvikinu?
„Vissulega og við erum að fara yfir stöðuna eftir
þetta. Við höfum bætt við símanúmerinu mínu við
dyr hússins ef upp koma atvik að næturlagi og ein-
hver þurfi að komast inn í húsið. Við höfum ekki lent
í þessu áður.“
Judith segist ekki í nokkrum vafa um að hún hafi
ítrekað hringt á næturvaktina. „Ég hringdi og hringdi í
meira en klukkutíma en það kom enginn til mín.“ | þt
Judith
Júlíusdóttir
er enn að
jafna sig eftir
blóðtappann.
Katrín Ósk Jóhanns-
dóttir, barnabarn
Judithar, furðar
sig á svörum
forstöðukonu
Seljahlíðar
við atvikinu.
8 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016