Fréttatíminn - 29.04.2016, Qupperneq 24
Þrátt fyrir að sögur af
raunum fólks á leigumarkaði
og fjölskyldum á hrakhólum
verði sífellt algengari
virðast engar lausnir vera
í sjónmáli. Samt er erf-
iður leigumarkaður engin
nýlunda í Reykjavík, líkt
og saga viðmælanda okkar,
Helgu Rakelar, minnir
á. Leigumarkaðurinn í
Reykjavík hefur alltaf verið
erfiður, þó hann hafi sjaldan
verið jafn slæmur og í dag.
Líkt grafið hér fyrir neðan sýnir þá
hafa leigjendur komið mun verr út
Hruninu en þeir sem áttu eigið hús-
næði. Því þrátt fyrir að ofuráhersla
hafi verið á stökkbreytingu lána og
lækkun eiginfjár húseigenda í kjöl-
far Hrunsins hefur almenn kjara-
skerðing og síðar hækkun húsleigu
haft mun verri áhrif afkomu leigj-
enda en hækkun skulda hafði á
húseigendur. Ásta Hafberg, stjórn-
armeðlimur Samtaka leigjenda á Ís-
landi, segir ástandið vera hreint út
sagt glatað. Sjaldan hafi verið jafn
erfitt að eignast eigið húsnæði þar
sem krafa um eigið fé sé strangari
en áður, stór hópur fólks hafi misst
húsnæði í Hruninu og margir van-
treysti kerfinu. „Í dag horfum við
upp á það að það er ekkert öruggt
húsnæðiskerfi fyrir lágtekju- og
millitekjufólk á Íslandi. Staða leigj-
enda á Íslandi hefur alltaf verið
slæm en frá því að verkamannabú-
staðakerfið, sem var eina örugga
húsnæðiskerfið á Íslandi, var lagt
af árið 1999 á stór hópur fólks
ekki nokkurn tíma eftir að eignast
öruggt húsnæði. Við berum okkur
saman við Norðurlöndin í flestum
efnum en stjórnvöld virðast ekki
hafa neinn áhuga á að skapa hér
örugga búsetu með til að mynda
kaupleigukerfum, búseturétti eða
almennum leigufélögum, eins og
hafa verið lengi við líði þar.“
Viðmælendur Fréttatímans eru
allir sammála um að þrátt fyrir að
það reynist illmögulegt að ráða við
fokdýrt leiguverðið þá sé það óör-
yggið og óvissan á markaðinum sem
sé verst, ekki síst fyrir barnafólk.
Uppsagnarfrestir með stuttum fyr-
irvara og stuttir leigusamningar séu
ekki til þess gerðir að skapa örugga
búsetu.
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
SUMAR SMELLIR
STÚTFULLAR VERSLANIR AF ÖLLUM HEITUSTU GRÆJUNUM!
48” SNJALLSJÓNVARP
119.990
4K SALORA
4KULTRA HD 3840x2160SNJALLARA SJÓNVARP MEÐ INNBYGGÐU 4K NETFLIX NÝ
SENDIN
G
VAR AÐ
LENDA
!
ÞRÁÐLAUS HÁTALARI
9.900
DIXXO
5
ÞÚSUND AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR 14.900 LED LÝSINGEINSTAKLEGA FLOTT SÉRSTILLANLEG 360 GRÁÐU LED LÝSING.
7” SPJALDTÖLVA
SILICON
BUMPER
VARNARHLÍF
14.990
747
ROCK100
HEYRNARTÓL
FYLGJA
Guðmundur H. Helgason og
fjölskylda hans hafa búið
að tveimur stöðum frá því
þau fluttu frá Akureyri fyrir
tveimur árum
Leigumarkaðurinn Leiga hefur hækkað langt umfram verðlag
Óvissan og óöryggið verst
Á meðan leiguverð hækkar og
framboð af leiguíbúðum minnkar er
aðstoð við leigjendur lítil sem engin.
Á sama tíma fjölgar ferðamönnum
sem keppa við borgarbúa um gistingu
og byggingakranar verktakanna reisa
fleiri hótel en heimili.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ekki forsvaranlegt að kaupa
Guðmundur leigir 110 fermetra íbúð í Úlfarsárdal fyrir 240.000 krónur
á mánuði og þakkar fyrir að hafa skrifað undir 3 ára samning.
25
20
15
10
5
0
2004 2014
Leigjandi á
almennum markaði
Húsnæðiseigandi
með lán
Húsnæðiseigandi,
skuldlaust
6,4%
5,4%
11,3%
6,1%
12,2%
18,7%
Hlutfall heimila sem greiddu meira en 40 prósent ráðstöfunartekna í húsnæðiskostnað. Heimild: Hagstofa Íslands
Leigjendur fóru verst út úr Hruninu Þrátt fyrir að ofuráhersla hafi verið á stökkbreytingu lána og lækkun eiginfjár húseigenda í kjölfar Hrunsins hafði almenn kjaraskerðing og
síðar hækkun húsaleigu mun verri áhrif afkomu leigjenda en hækkun
skulda hafði á húseigendur.
Á grafinu sést að Hrunið fjölgaði ekki þeim íbúðareigendum í skuld-
lausri eign, sem bjuggu við íþyngjandi húsnæðiskostnað. Áhrif almennr-
ar kjaraskerðingar sést ekki frá þessum sjónarhóli. Og heldur ekki hjá
þeim íbúðareigendum sem bjuggu í skuldsettri eign. Ástæður þess eru
margþættar. Sumir misstu húsnæðið og færðust yfir í hóp leigjenda,
aðrir nutu margvíslegra aðgerða sem fólust í frestun greiðslna af lánum,
skuldaniðurfærsla vegna ólögmætis erlendra lána lækkaði greiðslubyrði,
vaxtabætur voru stórhækkaðar og svo framvegis.
Aðstoð við leigjendur var hins vegar lítil sem engin. Kjaraskerðingin
hafði mikil áhrif á hópinn, enda eru leigjendur almennt tekjulægri en
íbúðareigendur, og síðan hefur húsaleiga hækkað umfram laun og verð-
lag á síðustu árum. |gse
Guðmundur hefur búið með konu
sinni og dóttur í tveimur leigu-
íbúðum í Reykjavík frá því að fjöl-
skyldan flutti frá Akureyri fyrir
tveimur árum. „Það var nú aðeins
auðveldara að finna leiguhúsnæði
fyrir norðan en þegar við fluttum
suður blasti allt annar raunveru-
leiki við okkur. Eftir mikla leit
fundum við íbúð í Grafarholti og
vorum þar í tvö ár, þar til eigend-
urnir skildu og ákváðu að selja.
Við vildum ekki fara langt svo
dóttir okkar gæti haldið áfram
í skólanum og fundum þá þessa
íbúð hjá Almenna leigufélaginu.
Þetta er góð íbúð en alveg fokdýr
því við borgum 240.000 krónur
fyrir 110 fermetra. Það góða er að
við skrifuðum upp á þriggja ára
samning svo við vitum hvar við
verðum næstu árin.“
Guðmundur býst ekki við að
kaupa íbúð þrátt fyrir óöryggið
á leigumarkaðinum. „Ég tel ekki
forsvaranlegt að kaupa eins og
ástandið er í þessu landi, miðað
við vextina á lánunum er hagstæð-
ara að leigja. Ég myndi kannski
helst gera kaupleigusamning
um búsetu-íbúð því þar lendir
skellurinn á leigufélaginu ef eitt-
hvað gerist. En það verður að gera
eitthvað í húsnæðismálum, það er
nauðsynlegt að bæta framboðið og
fjölga lausnum á leigumarkaði svo
fólk hafi tryggt aðgengi að íbúð.“
| hh
Mynd | Hari
24 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016