Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 29.04.2016, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 29.04.2016, Qupperneq 38
Páll Ingólfur Árnason var 98 kíló fyrir 10 mánuðum og talsvert verr á sig kominn en hann hélt Guðrún Veiga Guðmundsdóttir gudrunveiga@frettatiminn.is Páll Ingólfur Árnason, múrara- meistari og verkefnisstjóri hjá um- hverfis- og skipulagssviði Reykja- víkur, hefur alltaf verið mikið gefinn fyrir útivist en fór að stunda göngur og fjallgöngur markvisst fyrir tæplega ellefu mánuðum. „Ég hef alltaf hreyft mig mikið og taldi mig vera í nokkuð góðu formi, en svo kom nú annað á daginn þegar ég fór til læknis í maí á síðasta ári.“ Páll greindist með óvirkan skjaldkirtil fyrir sjö árum og alls- kyns kvilla í kjölfarið, þar á meðal sykursýki 2. „Ég breytti sáralitlu hjá mér á þessum tíma, hélt bara áfram að lifa eins og hver annar maður, passaði ekkert sérstaklega upp á sykurinn eða neitt slíkt,“ segir Páll sem fékk þau tíðindi í fyrra að ef hann gerði ekki eitt- hvað í sínum málum væri stutt í að hann þyrfti að fara að sprauta sig vegna sykursýkinnar. „Ég er mjög þrjóskur maður og ákvað strax að taka þetta föstum tökum. Ég leitaði ráða hjá læknum og öðrum sem glímt höfðu við þessa tegund af sykursýki og voru allir sammála um að hreyfing væri besta meðalið. Það get ég svo al- deilis tekið undir,“ segir Páll sem í dag er laus við sykursýkina. Páll Ingólfur gengur 2-3 í viku. Einu sinni í viku fer hann með hópi sínum Fjallagarpar og gyðjur sem hægt er að finna á Facebook. Eins gengur hann vikulega með hópi sem er undir handleiðslu Einars Skúlasonar og kallast Vesen og vergangur. „Fyrir tíu mánuðum var ég 98 kíló, í dag er ég 73 kíló. Ég hafði það val að fara að sprauta mig með insúlíni eða taka tilveruna föstum tökum, “ segir Páll sem breytti mataræðinu samhliða aukinni hreyfingu. „Þetta kostar auðvitað sjálfsaga en það er svo sannarlega þess virði. Ég fæ mér nú stundum nammi enda allt gott í hófi.“ Það er nóg framundan hjá Páli sem æfir nú af kappi fyrir hæsta tind Íslands. „Þessa stundina er ég að æfa mig fyrir göngu á Hvanna- dalshnúk en ég stefni á að ganga hann, ásamt fleirum, þann 14. maí næstkomandi.“ 5 góð ráð Páls fyrir gönguferðir 1. Góða skapið er nauðsynlegt að hafa með í hvers kyns útvist. „Það eru reyndar alltaf allir í góðu skapi þegar þeir stunda skemmtilega útivist. Ég hef engan fýlupúka hitt á fjöllum,“ segir Páll og hlær. 2. Góðir skór til þess að ganga á, þú ferð ekki á fjöll án þess að vera í góðum skóm. Skóbúnaður er alveg númer eitt, tvö og þrjú. 3. Gott nesti er nauðsynlegt í lengri ferðir. „Sjálfur tek ég með mér Snickers, rúsínur og hnetur. Og auðvitað nóg af vatni. Margir taka með sér flatkökur og eins er vinsælt að hafa með sér slátur. Það verður öllum heitt sem fá sér slátur, þannig að það er mjög gott að hafa það í nestispokanum,“ segir Páll. 4. Það borgar sig vera vel undirbúinn fyrir hverja árstíð og eiga til dæm- is góða göngubrodda fyrir veturinn og góða göngustafi sem hægt er að nota allan ársins hring, fyrir þá sem kjósa það. Einnig skaltu alltaf hafa regnfatnað meðferðis. Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt og þess vegna er mikilvægt að vera við öllu búinn. 5. Síðast en ekki síst mælir Páll með því að göngugarpar hafi þrúgusyk- ur í bakpokanum sínum. „Það geta allir lent í því að verða orkulausir, þá hjálpar þrúgusykurinn alveg ótrúlega.“ Dr. Shubanghee ayurvedískur læknir mun kenna hér á Íslandi Sigrast á stressi og streitu með Ayurveda og jóga. Staður: Jógasetrið, fimmtudagurinn 5. maí, kl. 13:00 - 18.00 Verð: 8.900 kr. Ayurveda, þyngdaraukning og offita Staður: Jurtaapótekið, laugardagurinn 7. maí, kl. 14:15 - 17:15 Verð: 6.500 kr Ayurveda og augun Staður: Jurtaapótekið, 9. maí, kl. 18:30 - 21:30 Verð: 6.500 kr. Einnig einkatímar lausir 9. og 10. maí verð 12.000 kr Jurtaapótek | Skipholt 33 | sími 552 1103 facebook.com/jurtaapotek Gekk af sér sykursýkina Mynd | Hari Páll Ingólfur Árnason æfir nú af kappi fyrir hæsta tind Íslands. Páll Ingólfur Árnason fór að stunda fjallgöngur og göngur markvisst fyrir tæplega 11 mánuðum. Útivist Allir fá að prófa kajak Þeir sem hafa hug á að prófa kajakróður geta látið slag standa sér að kostnaðarlausu „Áhuginn á sportinu er alltaf að aukast en nú er hægt að fá miklu fjölbreyttari báta en áður og þú velur þér bara erfiðleikastig. Það er vel hægt að finna eitthvað við allra hæfi. Hægt er að róa kajak sér til ánægju og yndisauka, svo er aftur á móti hægt að stunda þetta sem íþrótt og þá ertu kominn svolítið á annan stað, orðinn sjálfbjarga og farinn að elta uppi öldurnar og læt- in,“ segir Eymundur Ingimundar- son, meðlimur í Kayakklúbbnum, sem stofnaður var árið 1981. Kayakklúbburinn á báta sem allir geta komið og fengið að prófa. Einu sinni í viku eru svokallaðir félags- róðrar og þá er kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa hug á að prófa kajak- róður að láta slag standa. „Fólk getur komið og fengið lánaðan bát, þær græjur sem til þarf og prófað og verið með. Þá er aldrei farið hraðar en sá sem er hægastur. Það kostar ekkert að koma og prófa og hver veit nema að þú fáir delluna.“ Vorhátíð Kayakklúbbsins verður haldin við aðstöðu klúbbsins í Geld- inganesi laugardaginn 7. maí. Nán- ari upplýsingar má finna á heima- síðunni, kayakklubburinn.is. | gvg Mynd | Hari Kayakklúbburinn var stofnaður árið 1981. 38 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.