Fréttatíminn - 29.04.2016, Qupperneq 58
2016 Ungbarnamataræðið
Í mörg ár höfum við verið að hugsa um okkur sjálf, hvaða kúr
á ég að prófa. Nýjasta æðið virðist vera heilsufæði ungbarna.
Barnamatur matreiddur frá grunni, með uppskriftum frá
mömmum. Þessi hlýtur að virka, enda hefur enginn séð feitt
ungbarn.
2015 Glútenlaust mataræði
Glúteinát varð reykingar 21. aldar. Ráðlagður skammtur af korn-
meti var áður 1/3 af disknum í fæðuhringnum. Frábærar fréttir
fyrir það eina prósent mannkyns sem þjást af glútenofnæmi,
enda hefur matarúrval í stórmörkuðum fyrir þá einstaklinga
aukist verulega í kjölfar hins bráðsmitandi glútenóþols.
2014 Paleo / Hellisbúamataræði
Paleo mataræðið hefur verið vinsælt síðustu ár og eru veitinga-
staðir farnir að bjóða upp á sérstaka paleo rétti. Mataræðið
byggist á því að borða eingöngu það sem forfeður okkar,
hellisbúarnir, átu. Engar unnar matvörur, mjólkurvörur, áfengi
eða sterkja. Miðað er við grænmeti, ávexti, fisk, kjöt og hnetur
sem uppistöðu.
2014 5:2 mataræðið
Kúrinn byggist á því að plata líkamann í að upplifa hungurs-
neyð og notar líkaminn þá orku úr fitubirgðunum. Borðað er
venjulega 5 daga vikunnar en kaloríuinntaka lækkuð niður í
25% tvo daga vikunnar. Fín leið til að svelta sig en láta það
hljóma heilsusamlega.
2013 Lágkolvetna mataræði
Vopnið svokallaða í baráttunni við offitu. Kolvetni eru tekin úr
fæðunni og spelthveiti varð vinsælt. Spelt hrísgrjón, brauð og
pasta. Sjálfstætt framhald þess þegar það var í tísku að borða
enga fitu, öll kolvetni eru tekin úr fæðunni.
2012 Hráfæði
Upp úr 2010 átti hráfæði hug heilsusérfræðinga. Mataræðið
byggist á því að borða einungis hrátt grænmeti, hráa ávexti,
fræ, hnetur og sjávarþara. Ekki má hita matinn upp fyrir 48°C
til að viðhalda ensímum í matnum.
2011 Olíur og vítamín
Mataræði með þá hugsjón að viðhalda heilsu með réttum
vítamínum, olíum, steinefnum og grænum djúsum.
Tilgangurinn er að yngja upp líkamann.
2009 Safakúrar
Við munum vart tímana fyrir Booztbarinn, Lemon og Joe and
the Juice. Það er hinsvegar ekki langt síðan safar og hristingar
urðu vinsælir. Svokallaðir safakúrar byggjast á því að hreinsa
líkamann með því drekka einungis safa í visst langan tíma.
Þessi er gerður til að þjást.
2008 Þjóðarkúrar
Árið 2008 komst í tísku að aðhyllast matarmenningu annarra
þjóðar í von um þyngdartap. „Franskar konur fitna ekki“,
„Japanskar konur eru hraustar“ og „Manhattan kúrinn“.
Íslenski kúrinn hefur þó ekki náð sömu vinsældum, enda eru
Íslendingar feitasta þjóð Evrópu.
2003 Atkins kúrinn
Kúrinn er upphafið að lágkolvetna lífsstílnum. Magn kolvetna
í fæðunni má aldrei vera meira en 20 gr. á dag (svipað og ein
heilhveitibrauðsneið). Fæðið samanstendur mest af fitu (60%),
próteinum (37%) og kolvetni (3%). Mataræðið náði vinsældum
hérlendis upp úr 2000. Flestir sem tóku þátt í Atkins-æðinu
birgðu sig upp af steikum í frystinn, örlítill frummannakeimur.
2000 Herbalife
Móðir safakúrsins er Herbalife kúrinn. Þá var mælt með
tveimur Herbalife hristingum á dag og hefðbundnum kvöld-
mat. Þrátt fyrir afhjúpanir í píramídasvindli Herbalife virðist
það halda sínu striki og nýtur vinsælda hérlendis.
Íslendingar
og heilsuæði
Á hverju ári fæðist nýtt heilsuæði. Fita er inni, fita er úti, borðaðu oft eða
borðaðu sjaldan. Forvitnilegt er að stikla á stóru og rýna í bókaútgáfur til
þess að sjá hvenær visst mataræði náði vinsældum.
5:2
Líkaminn er
plataður í að
upplifa
hungur
Ungi tónlistarmað-
urinn Aron Can
er á allra vörum
þessa dagana.
Hann ruddist inn
á tónlistarsenuna
með látum þegar hann
gaf út lögin Þekkir stráginn og
Enginn mórall. Í viðtali í Frétta-
tímanum fyrir skemmstu ræddi
Aron ásamt framleiðendunum, Ar-
oni Rafni og Jón Bjarna, tilvonandi
plötu kappans og vaxandi vinsæld-
ir. Síðan hefur þríeykið setið sveitt í
stúdíóinu og lagt lokahönd á verkið.
Á laugardaginn á Prik-
inu verður hlust-
unarpartí á hans
fyrstu útgáfu. „Ég
er svo heppinn að
fá að frumsýna mitt
fyrsta myndband og
frumflytja 8 laga út-
gáfuna Þekkir stráginn á Prikinu,“
segir Aron Can. „Útgáfan kláraðist í
fyrradag en við ætlum að spara eitt
lag fyrir sumarið. Gefa fólki góðan
sumarsmell, það veður allt að frétta
í sumar.“
Kanadíski rapparinn Drake gef-
ur út plötuna VIEWS í dag, en titl-
inum var breytt úr Views from the
6. Platan skartar 20 lögum, nokkur
þeirra eru þegar komin í spilun líkt
og Hotline Bling, One Dance með
Wizkid og Kyla og Pop Style með
Kanye West og Jay Z. Ekki náðist í
Drake fyrir umfjöllunina.
Úr rappheimum: Aron
Can og Drake taka helgina
Þekkir stráginn lagalisti:
1. Intro-(daglega)
2. Þekkir stráginn
3. Enginn mórall
4. Grunaður
5. Rúllupp
6. 2016
7. Tíu
8. Outro-(Plís talaðu)
58 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016
SVÍNSLEGA
GOTT
Í HÁDEGINU, Á KVÖLDIN
OG BARA ALLAN DAGINN
GASTROPUB
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
Kokteilar, bjór á
krana
og léttvín í glös
um – á hálfvirð
i!
HAPPY HOU
R
ALLA DAGA
15–18
DJÚSÍ BORGARI
úr sérvaldri rumbsteik og „short ribs“, í bjór-brioche brauði
með rauðlaukssultu, Búra, truu-mayo og vöufrönskum ...
... SVÍNVIRKAR
HREINN SÚKKULAÐIUNAÐUR
Ylvolg djöflakaka með mjúku kremi, vanilluís og rjóma ...
... DJÖFULLEGA GÓÐ!