Fréttatíminn - 29.04.2016, Side 60
Götudansarinn
Natasha Monay
Royal er stödd í
lyftunni hans Spessa, ljósmyndara
í gömlu Kassagerðinni á Laugar-
nesi. Á ferðalaginu upp fjórar
hæðir hússins segir hún frá þeirri
hæð að skilja eftir sig arfleifð götu-
dansara á Íslandi.
Natasha kom til Íslands fyrir
18 árum og var fengin til þess að
kenna götudans í Kramhúsinu. Á
þeim tíma var enginn að stunda
götudans á Íslandi og fáir sem
þekktu til iðjunnar. Þegar Natasha
hóf kennslu var eingöngu sam-
kvæmisdans í boði í Kramhúsinu.
Á eigin spýtur kynnti hún Íslend-
ingum nýjan heim. „Það hefur
verið stöðug hæð að fylgjast með
senunni blómstra ár frá ári. Þau
sem kenna hip-hop, breik, popping
og annan götudans í dag voru flest
allt nemendur mínir og forréttindi
að fylgjast með þeim. Ég hef elskað
vinnuna mína frá fyrsta degi.“
Natasha bjó áður í New York og
segir danssenuna þar sambæri-
lega fótboltaáhuga Íslendinga. Hún
komi af þeirri kynslóð sem kom
götudansi á laggirnar. Það var því
verk fyrir höndum að kenna stífum
Íslendingum, sem kunnu helst
ballett og samkvæmisdans, að
sleppa taumnum og tengjast götu-
dansinum. „Það komu dagar sem
ég hugsaði hvað í fjandanum ég
væri að gera. Ég var ein að kenna
og ferðaðist um land allt með nám-
skeið og ætlaði ekki gefast upp. Í
Kramhúsinu byrjaði ég með 10-12
manna hóp sem síðan óx, það varð
einnig stökk þegar So You Think
You Can Dance þættirnir urðu vin-
sælir.“
Frá árinu 1998 hefur Natasha
stýrt sínum eigin hópi sem ber
nafnið Element Crew. Framan
af voru eingöngu Íslendingar í
hópnum en í nýrri kynslóð Ele-
ment Crew stendur aðeins einn Ís-
lendingur eftir. Því hefur Natöshu
einnig tekist að sameina ólíkar
þjóðir undir hatti götudansins á
Íslandi. „Það vantar smá aga í Ís-
lendingana, þeim finnst gaman að
mæta í tímana en taka ekki næsta
skrefið. Í dag samanstendur Ele-
ment Crew af fólki frá Indlandi,
Tælandi, Bandaríkjunum og Spáni.
Við erum nýkomin frá Kaup-
mannahöfn þar sem við kepptum
fyrir hönd Íslands í breikkeppni og
komumst í undanúrslit.“
Natasha segir götudanssenuna
aldrei hafa verið hærri en í dag. Ís-
lendingar þurfi þó að vera óhrædd-
ir við að kýla hlutina áfram. „Það
er tækifæri til að stækka enn
meira. Ég gleðst í hvert skipti sem
ég sé nemendur miðla kunnáttu
sinni áfram til næstu kynslóðar. Ég
elska að hafa skapað markað fyrir
götudans á Íslandi.“ | sgk
„Það komu dagar sem ég hugsaði hvað í fjandanum ég væri að gera. Ég var ein
að kenna og ferðaðist um land allt með námskeið og ætlaði ekki gefast upp.“
Kynnti stirðum
Íslendingum
götudans
Lyftan #16
Spessi
Lítil þróun hefur orðið í hreinlætisvörum
kvenna síðan dömubindi og túrtappar
komu á markað. Það gæti loksins verið að
breytast, sprotafyrirtæki, undir leiðsögn
kvenna, þróa nýjar leiðir til einfalda
konum lífið, það er ekki seinna vænna.
Snjall-álfabikar
Fyrirtækið Loon Labs þróar álfabikar sem
er tengdur þráðlaust við app í símanum.
Appið veitir gögn um magn blæðinga og lit,
svo hægt sé að fylgjast með breytingum á
heilsufari og stöðu blæðinga. Verkefnið var
sett á Kickstarter með það að markmiði
að safna 50.000 dollurum en það tókst að
safna 160.000 dollurum.
App fyrir tíðahringinn
Clue er app sem allar konur
þurfa að sækja. Á mjög ein-
faldan máta heldur appið utan
um tíðahringinn þinn, hægt er
að sjá hvenær egglos á sér stað,
fá áminningu um pilluna eða hormóna-
hringinn. Með tímanum fer appið að þekkja
þinn tíðahring og mynstur.
Nærbuxur sem dömubindi
Fyrirtækið Thinx hefur framleitt sérstak-
ar nærbuxur sem koma í veg fyrir bletti í
buxum. Nærbuxurnar halda sama magni og
tveir túrtappar. Þær nýtast sem vörn gegn
leka og slysum og eru sérstaklega sniðugar
dagana sem blæðingarnar eru
í nánd. Einnig hefur íslensk-
ur fatahönnunarnemi, Sara
Guðný Jónsdóttir, hannað nær-
fatalínuna Revol Girl fyrir kon-
ur meðan á blæðingum stendur.
Einnig eru brjóstahaldararnir hann-
aðir með það í huga að brjóstin stækka á
meðan blæðingum stendur.
Bómullartúrtappar upp að dyrum
Heimsendir túrtappar gerðir úr 100% bóm-
ull hljómar of gott til að vera satt. En hvers
ætti pítsa að vera aðgengilegri en túrtapp-
ar? Fyrirtækið Lola hefur það að markmiði
sínu að senda bómullar túrtappa heim til
kvenna víðsvegar um heiminn.
Tölum um… eitthvað aðeins meira en túrtappa
Hvers vegna ætti pítsa að vera aðgengilegri en túrtappar?
Upprifjun á
túrskattinum
Ísland 24%
New York 0%
Írland 0%
Kenía 0%
Danmörk 25%
Bretland 5%
Slóvakía 20%
*Í desember 2015 lögðu átta þingmenn
fram frumvarp um breytingar á lögum
um virðisaukaskatt á dömubindum og
túrtöppum, að hann fari úr 24
prósentum í 11 prósent.
Hvað taka
stjörnurnar í
réttstöðulyftu?
Auðunn Blöndal
sjónvarpsmaður:
230 kíló
Bubbi Morthens
söngvari:
Tekur ekki rétt-
stöðulyftu en
„power-cleanar“
95 kíló
Felix Bergsson
skemmtikraftur:
125 kíló
Snorri Björnsson
ljósmyndari:
190 kíló
Saga Garðarsdóttir
grínisti:
120 kíló
Halldór Halldórsson,
Dóri DNA, grínisti:
200 kíló
Gauti Þeyr Másson,
Emmsjé Gauti rappari:
170 kíló
Marta María Jónas-
dóttir fréttastjóri:
115 kíló
60 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 29. APRÍL–1. MAÍ 2016