Fréttatíminn - 15.04.2016, Side 76
4 góð ráð frá Mumma í Kríu
til að passa vel upp á hjólin
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Nú er vorið loksins komið og það
þýðir að götur og stígar fyllast af
hjólandi fólki. Guðmundur Ingi
Bjarnason, betur þekktur sem
Mummi í Kríu, er einn aðal hjóla-
viðgerðamaður landsins og hann
vill að fólk passi betur upp á hjólin
sín. Haldi þeim hreinum. Bæði
hvað varðar útlitið en líka svo þau
endist betur. Skítug tannhjól slitna
margfalt hraðar en hrein.
1. Loft í dekkin
Alltaf þegar kemur að því að grafa
hjólgarminn upp eftir veturinn
er loftið úr börðunum farið í
heimsókn til vina sinna í andrúms-
loftinu. Þá þarf að pumpa. Flestir
áhugamenn dröslast þá upp á
bensó og blása í með bíladælunum
þar en það er náttúrlega alger
vitleysa. Eina vitið er að eiga stóra
hjólapumpu með loftþrýstings-
mæli. Hversu mikið loft fer svo í
dekkin fer algerlega eftir hvurs-
lags barðar eru undir. Þumalputta-
reglan er því minna sem dekkið er,
þeim mun meiri þrýstingur skal
vera í dekkjunum. Mummi mælir
með því að kynna sér hversu mik-
ill þrýstingur á að vera í dekkinu
en það stendur alltaf á hliðinni á
barðanum.
2. „Lúbdjobb“
Keðjan og tannhjólin þurfa að
vera vel smurð en Mummi segir
að það megi ekki bara smyrja og
smyrja – það þurfi að hreinsa líka.
Best er að fá sér góðan olíu- eða
tjöruhreinsi, sem hægt er að fá í
hjólabúðum, setja smá í fötu eða
spreyja varlega á tannhjólin og
bursta þau síðan með gömlum
uppþvottabursta eða tannbursta.
Sérstaklega afturtannhjólið og svo
auðvitað keðjuna líka. Framtann-
hjólið og svæðið þar sem sveifar-
settið mætir rammanum þurfa líka
að fá smá ást.
Svo er bara að láta góða smurn-
ingu dropa á keðjuna á meðan
fótstiginu er snúið í það minnsta
fjórum sinnum. Gott að skipta
líka reglulega um gíra svo olían
komist nú á allt það sem hún þarf
að komast. Passa bara að hvorki
smyrja né olíuhreinsa bremsurnar.
Diskabremsur eru sérstaklega við-
kvæmar og það á aldrei að nota
olíusprey á þær.
3. Bremsur
Það mikilvægasta, þegar hjólað er
úti á götum bæjarins, er að geta
bremsað. Og þá þurfa bremsurnar
líka að vera í lagi. Púðarnir, hvort
sem um er að ræða gamaldags
klemmubremsur eða diska, eyðast
og þá þarf að skipta um reglulega.
Því enginn vill enda framan á bíl
eða ljósastaur. Auk þess sem slitnir
púðar geta beinlínis eyðilagt út frá
sér. Sérstaklega gamaldags púða-
bremsur. Stundum og þá sérstak-
lega á þessum eldri týpum dugar,
svona fyrst um sinn, að strekkja
á bremsuvírnum með því að snúa
upp á róna við bremsuhandföngin.
Slíkt dugar þó ekki endalaust og þá
getur þurft að strekkja á vírnum
sjálfum eða að skipta um púða.
4. Gírarnir
Flestir kannast við pirring þegar
gírabúnaðurinn virkar ekki sem
skyldi. Annað hvort gerist ekkert
eða keðjan hleypur um tvö tann-
hjól þegar einungis var beðið um
eitt. Mummi bendir á að yfirleitt
þegar gírar vanstillast sé slaki á
vírnum eða hann ryðgaður innan í
barkanum og hann vill alls ekki að
áhugamenn rjúka beint í að skrúfa
stilliskrúfurnar. Sérstaklega ef
skilningurinn á téðum skrúfum er
lítill og kunnáttan til stillinga þar
af leiðandi lítil sem engin. Ef aug-
ljós slaki er á vírnum má strekkja
hann en skrúfurnar vill Mummi
sjá um, geðheilsu hjólarans til
heilla
Hjólavorið mikla er komið
Mynd | Hari Mummi í Kríu vill að fólk passi vel upp á hjólin sín.
4 | fréttatíminn | Helgin 15. apríl–17. apríl 2016
Hjól