Fréttatíminn - 06.05.2016, Blaðsíða 2
„Mig óraði ekki fyrir því
fremur en aðra í upphafi árs,
að Guðni Th. Jóhannesson
færi sjálfur í forsetaframboð
á lokastigi bókarinnar,“ segir
Egill Jóhannsson, bókaút-
gefandi hjá Forlaginu
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Guðni, sem hafði „legið undir
feldi og hugleitt forsetaframboð í
talsverðan tíma,“ lét slag standa á
uppstigningardag.
Hann á fljótlega að skila For-
laginu handriti að bók um forseta-
kosningar, forseta Íslands og sögu
embættisins frá upphafi til okkar
daga. Bókin var ætluð til útgáfu í
tilefni af forsetakosningunum.
„Þetta er allt saman afar at-
hyglisvert. Ákvörðun um bókina
var tekin fyrir löngu síðan og var
fyrst og fremst hugsuð til að fræða
þjóðina um embættið. Engum datt
í hug að höfundurinn myndi gefa
kost á sér áður en bókin væri til-
búin.“
Hann segist þó alls ekki vera fúll
út í Guðna þótt hann hafi áhyggjur
af því að hann geti ekki skilað
bókinni innan tilskilins frests. En
kemur bókin út í ljósi þess að höf-
undurinn er sjálfur þátttakandi í
leiknum? „Þetta á bara allt saman
eftir að koma í ljós,“ segir for-
leggjarinn.
Þá áttu þættir Stöðvar 2 um for-
seta Íslands að hefjast 25. apríl en
ekkert bólar á þeim. Þáttagerðar-
maðurinn var Sigurjón Magnús
Egilsson sem er orðinn ritstjóri
Hringbrautar og aðalviðmæland-
inn var Guðni Th. Jóhannesson
sem er sjálfur kominn í forseta-
framboð.
Sigurjón M. Egilsson segir að
þegar hann hætti störfum hjá 365
hafi hann boðið stjórnendum að
láta annan fjölmiðlamann tala
inn á þættina í sinn stað. Hann
hafi hins vegar ekkert heyrt um
af hverju þættirnir hafi ekki enn
komist á dagskrá.
Bókmenntir Bók um forsetaframboð í uppnámi
Engum datt í hug að höfundurinn færi í framboð
Guðni, sem hafði „legið undir
feldi og hugleitt forsetaframboð í
talsverðan tíma,“ lét slag standa á
uppstigningardag.
Brotafl fjarlægir
merkingar sínar
Stærstur hluti tollkvóta
fyrir innflutt svínakjöt fer til
innlends framleiðanda sem
notar það í unnar kjötvörur.
Félag atvinnurekenda segir
þetta gert til að halda uppi
verðinu
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Mata, dótturfyrirtæki Langasjávar,
hefur átt einna hæsta boð í toll-
frjálsan kvóta fyrir innflutning á
svínakjöti og fengið til sín meiri-
hluta tollkvótans sum árin. Í ár
fær fyrirtækið 70% af innflutnings-
kvótanum í sinn hlut.
Fyrirtækið Coldrock Invest-
ments á Möltu á tvo þriðju hluta í
félaginu Langasjó sem er skráð á
lágskattasvæðinu Möltu, eins og
Fréttatíminn greindi frá í síðustu
viku.
Mata er leiðandi í sölu og dreif-
ingu grænmetis og ávaxta til versl-
ana, veitingastaða og mötuneyta
á Íslandi. Annað dótturfyrirtæki
Mata er Síld og fiskur ehf, sem er
einn þekktasti framleiðandi kjötá-
leggs og svínakjöts en markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins á markaði
fyrir svínakjöt er 40 til 45%
Ætla má að það eigi að vinna
kjötið áfram hjá Síld og fiski og
pakka því í neytendaumbúðir.
Ólafur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri félags atvinnurek-
enda, segir að það skjóti skökku
við að fyrirtæki sem fái milljarða
meðgjöf frá neytendum í formi
hárra innflutningstolla skuli jafn-
framt komast í aðstöðu til að
Matvæli Fyrirtæki fær milljarða í meðgjöf ríkinu og hindrar samkeppni
Kaupa tollkvóta fyrir
innflutt svínakjöt til
að halda uppi verðinu
Verktakafyrirtækið Brotafl sem nú sætir
lögreglurannsókn fyrir umfangsmikil skatt-
svik, er enn með fulla starfsemi í gangi á
byggingarreitum við horn Frakkastígs og
Hverfisgötu. Þar er verið að byggja íbúðar-
húsnæði. Þegar Fréttatíminn leit við á
byggingarlóðinni var starfsmaður Brotafls í
óða önn að rífa Brotaflsmerkingar af bílum
fyrirtækisins. Hann vissi ekki hvers vegna hann hafði verið beðinn
um að fjarlægja merkingar fyrirtækisins af bílunum.
Fyrirtækið hefur verið áberandi í stórframkvæmdum í miðbæn-
um að undanförnu og sjást bílar og tæki þeirra við helstu verslun-
argötur bæjarins. Facebook-síða Brotafls hefur nýlega verið tekin
niður og sömuleiðis Facebook-síða Kraftbindinga, en það verktaka-
fyrirtæki er einnig til rannsóknar í sama máli. Heimasíður beggja
fyrirtækja hafa verið teknar niður á undanförnum dögum. | þt
amk … nýtt blað, borið út með Fréttatímanum
Frá og með morgundeginum mun Fréttatíminn koma út
tvisvar í viku, bæði á föstudögum eins og áður en einnig
á laugardögum. Sem fyrr verður Fréttatíminn borinn út
í hús á höfuðborgarsvæðinu en fæst einnig gefins á fjöl-
förnum stöðum víða um land.
amk, nýtt blað sem hefur göngu sína í dag, mun verða
borið út með Fréttatímanum báða dagana. Það fjallar um
fólk og fjölskyldur, heimili og heilsu, mat og margt fleira.
Með þessum breytingum verða sýnilegar ýmsar breyt-
ingar á Fréttatímanum og enn frekar á næstu vikum.
Það er von útgefenda blaðsins að lesendur taki þessum
breytingum vel og hafi af þeim bæði gagn og gaman.
Fréttatíminn kemur út á morgun
Frá og með
deginum í
dag munu
lesendur fá
tvö blöð í stað
eins; bæði
Fréttatímann
og amk. Og á
morgun og alla
laugardaga
héðan í frá fá
lesendur bæði
blöðin.
Mata hf.
Mata er dótturfyrirtæki Langa-
sjávar ehf en systurfélög Mata
hf, sem selur og flytur inn
grænmeti og ávexti, eru Mat-
fugl ehf, sem er einn stærsti
framleiðandi kjúklingaafurða á
landinu, Síld og fiskur ehf, sem
framleiðir kjötálegg og svínakjöt
undir vörumerkinu Ali og Salat-
húsið sem framleiðir brauðsalöt
og matarsalöt undir merkjum
Stjörnusalats, Eðalsalats og Úr-
valssalats.
Kjarni málsins
Innlendum framleiðendur er í lófa
lagið að bjóða hátt í tollkvóta fyrir
innfluttar búvörur og halda þannig
uppi verðinu. Þannig fara neytend-
ur á mis við verðlækkunina sem var
tilgangurinn með samningunum við
Evrópusambandið á sínum tíma.
Tollkvóta fyrir svínakjöt
úthlutað til Mata hf.
Heimild: Atvinnuvegaráðuneytið
Ár Magn % af 200
tonnum
2009 94.806 47,4
2010 30.000 15,0
2011 77.143 38,6
2012 181.818 90,9
2013 0 0,0
2014 84.000 42,0
2015 59.600 29,8
2016 138.750 69,4
Í ár fær Mata 70% af innflutningskvótanum í sinn hlut.
hækka verðið á þeim vörum sem
á að flytja inn á engum eða lágum
tollum til að búa til samkeppni við
innlenda landbúnað.
Fólskuleg hópárás á unglingsstúlku tekin upp á síma
Lögreglan rann-sakar unglings-stúlkur vegna líkamsárásar gegn eineltis-fórnarlambi
Valur Grettissonvalur@frettatiminn.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar fólskulega líkamsárás sem beindist gegn unglingsstúlku nærri Langholtsskóla. Ein stúlkan tók árásina upp á síma og hefur Fréttatíminn myndskeiðið undir höndum. Þar sjást þrjár stúlkur lemja og niðurlægja unglings-stúlkuna, sem er nemandi í Austurbæjarskóla, með hrotta-legum hætti, en árásin átti sér stað á þriðjudaginn var.„Þetta mál er í algjörum forgangi hjá okkur,“ sagði Benedikt Lund, lögreglu-fulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem varðist þó allra frétta af málinu þar sem stúlkurn-ar eru allar undir átján ára aldri. „Við erum með um
fjögur hundruð mál á okkar könnu, þannig að það ætti að sýna hversu alvarlega við töku á þessu máli,“ bætti hann við.
Samkvæmt heimildum Frétta-tímans var stúlkan lokkuð upp í Langholtsskóla þar sem hinar stúlk-urnar virðast hafa setið fyrir henni. Engin þeirra er þó nemandi í skól-anum. Myndbandið sem um ræðir er rétt um hálf mínúta og sýnir lok árásarinnar. Þar má sjá fórnarlamb-ið sitja hágrátandi á gangstéttinni á meðan ein stúlka, sem hefur sig mest í frammi, sparkar í bak og hnakka fórnarlambsins. Þá heyrist fórnarlambið hrópa „fyrirgefðu“ þegar sú sem leiðir árásina rífur í hárið á henni. Hún sparkar því næst kröftuglega í bak stúlkunnar. Ungur maður sést í myndskeiðinu
og má heyra að hann er að hringja í lögregluna. Þá reynir annar pilt-ur að bægja stúlkunum frá þar sem hann stumrar yfir fórnarlambinu. Samkvæmt heimildum hefur stúlkan mátt þola gróft einelti, þá helst á netinu. Ekki náðist í skóla-stjórnendur Austurbæjarskóla vegna málsins.
Stjórnarmaður í foreldrafélagi skólans, Stefán Jónsson, hafði ekki heyrt um málið þegar Fréttatíminn ræddi við hann degi eftir árásina.„En við munum að sjálfsögðu óska eftir upplýsingum um málið,“ sagði hann í samtali við blaðið.Fjölskyldu fórnarlambsins er mjög brugðið og vildu þau ekki tjá sig um málið og sögðust treysta því að lögreglan rannsakaði það til hlítar.
frettatiminn.is ritstjorn@frettatiminn.isauglysingar@frettatiminn.is
18. tölublað7. árgangur
Föstudagur 06.05.2016
Þrjár stúlkur sjást á myndbandinu á meðan sú fjórða tekur árásina upp. Tveir vegfarendur reyndu að koma fórnarlambinu til aðstoðar.
Talið er að árásin sé tilkomin vegna eineltis en fórnarlambið er nemandi í Austurbæjarskóla. Lögreglan segir málið alvarlegt. Gróft eineltismál í forgangi
Almenningur tapaði 750 milljörðumAflandsreikningar sköpuðu gríðartjón
Dorrit slapp ekki við útvarpsgjaldiðNeikvætt eigið fé Dorritar ehf.
10
6
Fyrsta tölublað
Vala og ÁsgeirAllt það góða við Ísland er að versna 20
Ólga vegna Seljahlíðar
Óánægðir aðstandendur 14
Svín í framboðiFurðulegir forsetaframbjóðendur 24
Mynd | Hari
www.sagamedica.is
SagaPro
Minna mál með
KRINGLUNNI ISTORE.IS
Viðurkenndur endursöluaðili
Sérverslun með Apple vörur
DJI vörurnar eru lentar!
Vertu laus viðLIÐVERKINA
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og í heilsuhillum verslana
„Sem hlaupari þá er mikilvægt að halda öllum liðum vel smurðum. Ég hef notað Nutrilenk Active í töluverðan tíma og finn að líkaminn þolir langvarandi álag mun betur og eymsli í liðum eru miklu minni en áður. Ég mæli hiklaust með Nutrilenk Active. Það virkar.“
Friðleifur Friðleifsson, hlaupari og íþróttamaður.
Eitt mest selda
bætiefni fyrir
liðina á Íslandi.
BIRNA GLÍMDI VIÐ ÍÞRÓTTAÁTRÖSKUN Á UNGLINGSÁRUNUM
ÓLÖF SIGRÍÐUR ER EFNILEGUR FATAHÖNNUÐUR
HLEYPUR MARAÞON Í JAKKAFÖTUM
MAGGA PÁLA:ÞRIGGJA ÁRA SEM LEMUR BÍTUR OG SLÆR
FANNEY Í DRAUMASTARFINU HJÁ JAMIE OLIVER 4
HLAUPADROTTNINGIN MÖLBRAUT Á SÉR RISTINA OG HLEYPURVARLA AFTUR
TRÚIR EKKIHVAÐ LAGIÐER VINSÆLT
FÖSTUDAGUR 06.05.16
SILJA ÚLFARS
4 SÓLGLERAUGUSEM FULLKOMNASUMARLÚKKIÐ
Vertu laus við
LIÐVERKINA
Fæst í flestum apótek
um, heilsubúðum og í
heilsuhillum verslana
„Sem hlaupari þá er mikil
vægt að
halda öllum liðum vel smu
rðum.
Ég hef notað Nutrilenk Act
ive í
töluverðan tíma og finn að
líkaminn
þolir langvarandi álag mu
n betur og
eymsli í liðum eru miklu m
inni en
áður. Ég mæli hiklaust me
ð Nutrilenk
Active. Það virkar.“
Friðleifur Friðleifsson,
hlaupari og íþróttamaður.
Eitt mest selda
bætiefni fyrir
liðina á Íslandi.
BIRNA GLÍMDI VIÐ
ÍÞRÓTTAÁTRÖSKUN
Á UNGLINGSÁRUNUM
ÓLÖF SIGRÍÐUR
ER EFNILEGUR
FATAHÖNNUÐUR
HLEYPUR
MARAÞON Í
JAKKAFÖTUM
MAGGA PÁLA:
ÞRIGGJA ÁRA
SEM LEMUR BÍTUR
OG SLÆR
FANNEY Í DRAUMASTAR
FINU HJÁ JAMIE OLIVE
R 4
HLAUPADROTTNINGIN
MÖLBRAUT Á SÉR
RISTINA OG
HLEYPUR
VARLA AFTUR
TRÚIR EKKI
HVAÐ LAGIÐ
ER VINSÆLT
FÖSTUDAGUR
06.05.16
SILJA
ÚLF RS
4 SÓLGLERAUGU
SEM FULLKOMNA
SUMARLÚKKIÐ
2 | fréttatíminn | 6. maí 2016